Fréttablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 4
21.600 kr. á mánuði* 55.498 kr. á mánuði* 43.437 kr. á mánuði*22.290 kr. á mánuði*
6.750.000 kr.
Kia Sorento EX Luxury
Árgerð 1/2015, ekinn 47 þús. km,
dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 6,7 l/100 km.
2.590.000 kr.
Kia Rio EX
Árgerð 2/2016, ekinn 9 þús. km,
dísil, 1396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla 3,8 l/100 km.
2.690.000 kr. 5.290.000 kr.
Kia cee’d LX Kia Optima EX Premium
Árgerð 4/2015, ekinn 37 þús. km,
dísil, 1396 cc, 90 hö, beinskiptur
eyðsla 4,2 l/100 km.
Árgerð 7/2016, ekinn 3 þús. km,
dísil, 1685 cc, 142 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 4,4 l/100 km.
Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 84 mánuði. Vextir 8,75% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,5%.
Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
*
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
Ábyrgð fylgir! NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Fasteignir „Þetta eru engin alvöru
viðbrögð enn þá, en við höfum fengið
svolítið af fyrirspurnum,“ segir Þórir
Níels Kjartansson, framkvæmdastjóri
í Vík og einn eigenda jarðarinnar
Hjörleifshöfða í Mýrdalshreppi.
Hjörleifshöfði, sem var auglýstur
til sölu í ágúst, er um 11.500 hekt-
arar að stærð. Verðhugmynd er 500
til 1.000 milljónir króna.
Innan jarðarinnar eru Hjörleifs-
höfði og Hafursey. Landið nær frá
Kötlujökli í norðri að sjó að sunnan
og er að mestu sandar. Þjóðvegur eitt
liggur í gegn um jörðina.
Þórir segir að nýverið hafi verið
brugðið á það ráð að auglýsa jörðina
með hjálp Facebook. Var auglýsing-
unni beint til notenda í nokkrum
Evrópulöndum. Auglýsingin hafi
fengið nokkur viðbrögð.
„Þó hafa aðeins fáar fyrirspurnir
borist,“ segir Þórir.
Að sögn Þóris hafa landeigendur
reynt að selja íslenska ríkinu jörðina,
en það hafi ekki borið árangur.
„Það hefur aldrei komist svo langt
að tala um verð,“ segir Þórir um sam-
tal sitt við stjórnvöld.
„Ég tel að ríkið ætti að stefna að
því að eignast svona sérstakar lendur
þegar þær eru til sölu. Ég er búinn að
vera í viðræðum við ráðherra þriggja
ríkisstjórna og það kom ekkert út úr
þeim. Þannig að við gáfumst upp á
þessu og prófuðum að setja þetta á
sölu.“ – hlh
Hjörleifshöfði fæst keyptur á Facebook
Horft til norðurs. Hjörleifshöfði er í forgrunni, en Hafursey er fjær, næst Kötlujökli.
Mynd/Þórir níels Kjartansson
Heilbrigðismál Verð á B-vítamín
sprautulyfi hækkaði í innkaupum
SÁÁ um 4.700 prósent þegar eitt
fyrirtæki fékk einkaleyfi á sölunni
á Íslandi. Verðið fór úr 525 krónum
á skammt í rúmar 25.000 krónur.
„Þetta er í grunninn klúður úr heil-
brigðisráðuneytinu,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson, læknir SÁÁ á Vogi.
„Hvernig dettur ríkinu í hug að veita
einu fyrirtæki einkaleyfi á B-vítamín-
markaði á Íslandi? Við gætum keypt
þetta ódýrt frá Færeyjum.“
Þórarinn segir lyfjakostnað SÁÁ
hafa hækkað um eina milljón á
mánuði. „Við erum ekki að sjá að
ríkið bæti okkur þetta svo við þurf-
um bara að taka þetta á okkur.“
B-vítamín segir Þórarinn geta
verið lífsnauðsynlegt langt leiddum
fíklum í fráhvörfum. – sa
Lyf hækkaði
um 4.700%
Ég er búinn að vera í
viðræðum við ráð -
herra þriggja ríkisstjórna og
það kom ekkert
út úr þeim.
Þórir Níels Kjartans-
son, einn eigenda
Hjörleifshöfða
almenningsíþróttir Laugardals-
laugin er vinsælasta sundlaugin á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur
fram í nýjum aðsóknartölum frá
sundlaugunum á höfuðborgarsvæð-
inu yfir fjölda sundgesta fyrstu átta
mánuði þessa árs.
Alls sóttu 544.089 Laugardals-
laugina á tímabilinu, en um er að
ræða 42% allra sundgesta sundlauga
Reykjavíkurborgar. Sé tekið mið af
heildaraðsókn á höfuðborgarsvæð-
inu, sem er yfir 2 milljónir, fóru um
23% þeirra í Laugardalslaugina.
Næstvinsælasta sundlaugin á
tímabilinu er Sundlaug Kópavogs,
en þangað fór 283.051 í sund. Í
þriðja sætinu er Lágafellslaug í
Mosfellsbæ með 271.699 sundgesti
og í því fjórða Versalalaug í Kópa-
vogi með 234.034 gesti. Reykja-
víkurlaugarnar Vesturbæjarlaug
og Árbæjarlaug koma loks í fimmta
og sjötta sæti. Hafa 207.266 komið
í Vesturbæinn, en 180.286 í Árbæ-
inn.
Þegar tölur yfir sölu stakra sund-
miða eru skoðaðar er Laugardals-
laugin langefst, en alls keyptu
93.217 slíka miða í laugina á tíma-
bilinu. Meginástæðan fyrir þessu er
hversu margir erlendir ferðamenn
sækja laugina.
Að sögn Loga Sigurfinnssonar,
forstöðumanns Laugardalslaugar,
hefur heimsóknum þar fjölgað
á undanförnum árum í takt við
almenna fjölgun ferðamanna til
landsins. „Í gegnum tíðina hafa
útlendu ferðamennirnir verið að
koma hingað í lok dagsferða, það
er seinnipartinn og kvöldin. Sífellt
fleiri eru þó að koma hingað á dag-
inn,“ segir hann.
Logi segir að heildaraðsókn í
laugina hafi aukist nokkuð frá
því í fyrra eða um tæp 43 þúsund.
Sala á stökum miðum hefur aftur
á móti dregist saman um tæp 10
þúsund, en verð þeirra var hækkað
úr 650 krónum í 900 í nóvember
í fyrra. „Eins og umræðan hefur
heyrst hér hjá okkur eftir að staka
gjaldið hækkaði þá áttaði fólk sig í
rauninni á því hvað afsláttarkjörin
eru góð,“ segir Logi og bendir á sala
á afsláttarkortum hafi aukist, en
verð þeirra stóð í stað þegar verð á
stökum miðum hækkaði.
Það skal tekið fram að aðsóknar-
tölur í sundlaugar Hafnarfjarðar
eru ekki inni í þessum útreikningi,
en þær eru teknar saman í lok hvers
árs. hlh@frettabladid.is
Sundgestum hefur fjölgað um
yfir 40 þúsund í Laugardalslaug
Af öllum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins eru flestir stakir miðar seldir í Laugardalslauginni. Flestir sem
miðann kaupa eru erlendir ferðamenn, segir forstöðumaður laugarinnar. Næstvinsælasta laugin er Sund-
laug Kópavogs. Heildaraðsókn í sundlaugar höfuðborgarsvæðisins er kominn yfir tvær milljónir.
1. Laugardalslaug
544.089 93.217
Manns staKir Miðar
2. Sundlaug Kópavogs
283.051 51.407
Manns staKir Miðar
3. Lágafellslaug í Mosfellsbæ
271.699 48.350
Manns staKir Miðar
4. Versalalaug í Kópavogi
234.034 40.391
Manns staKur Miði
5. Vesturbæjarlaug
207.266 30.172
Manns staKir Miðar
6. Árbæjarlaug
180.208 18.685
Manns staKir Miðar
✿ mest sóttu sundlaugar höfuðborgarsvæðisins
Fyrstu átta mánuði ársisins
23,6%
Sundgesta á höfuðborgar-
svæðinu fóru í Laugardalinn.
Fólk áttaði sig í
rauninni á því hvað
afsláttarkjörin
eru góð og
voru góð.
Logi Sigurfinnsson,
forstöðumðaur
Laugardalslaugar
FlóttaFólk Tugir ríkja heita að taka
við 360 þúsund flóttamönnum á
þessu ári, tvöfalt fleirum en tekið
var við í fyrra. Jafnframt verði fé til
málefna flóttafólks aukið um jafn-
virði ríflega 500 milljarða króna.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
tilkynnti þetta í New York í gær,
þar sem leiðtogar heims hafa rætt
um málefni flóttamanna í tengsl-
um við Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna. – gb
Taka við tvöfalt
fleiri á flótta
Flóttafólk í Grikklandi. Fréttablaðið/ePa
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F i m m t U D a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-5
2
3
C
1
A
A
7
-5
1
0
0
1
A
A
7
-4
F
C
4
1
A
A
7
-4
E
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K