Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 6
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
Kynntu þér
málið á olis.is
FRÁ:
TIL:
Vildarpunktasöfnurum Olís býðst nú
einstakt Vildarpunktatilboð á
borgarferðum með Icelandair.
OLÍS
GILDIR Í 24
STUNDIR
Ferðatímabil: 2.–19. desember.
Þú bætir við 18.045 kr. (skattar og gjöld)
Báðar leiðir
39.900 VildarpunktarIcelandair
CHIC
AGO
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA
•
1
6
42
95
Frá kl. 12 á hádegi 22. sept. til kl. 12 á hádegi 23. sept.
stjórnsýsLA Guðmundur Árnason,
ráðuneytisstjóri í fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu, hringdi í Harald
Benediktsson, nefndarmann í fjár-
laganefnd, á föstudaginn til að ræða
við hann um efni skýrslu sem þing-
mennirnir Vigdís Hauksdóttir og
Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu
á dögunum undir heitinu „Einka-
væðing bankanna hin síðari“.
Í gær lagði Vigdís fram skýrsluna á
fundi fjárlaganefndar og óskaði eftir
að samþykkt yrði að hún yrði send
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til
meðferðar. Af því tilefni lagði Val-
gerður Gunnarsdóttir fram bókun
þar sem tekið er undir þá kröfu að
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
rannsaki málið.
„Þingmenn innan stjórnarmeiri-
hluta fjárlaganefndar hafa fengið
beinar hótanir um æru- og eigna-
missi frá háttsettum embættis-
manni eftir að skýrslan hafði verið
kynnt,“ segir í bókuninni sem Guð-
laugur Þór, Ásmundur Einar Daða-
son, Haraldur Benediktsson og Páll
Jóhann Pálsson undirrita auk Val-
gerðar.
Haraldur sagði síðan í yfirlýsingu
að símtal ráðuneytisstjórans og
samskipti hans við sig sem alþingis-
mann og fulltrúa í fjárlaganefnd
væru óviðeigandi og hótunin í sinn
garð væri grafalvarleg.
Sagðist Haraldur hafa leitað leið-
beininga frá Umboðsmanni Alþing-
is, upplýst forseta Alþingis um efni
símtalsins og sent kvörtunarbréf til
Bjarna Benediktssonar, fjármála- og
efnahagsráðherra.
Í yfirlýsingu sem Guðmundur
Árnason sendi frá sér í gær segir
hann að í samtali sínu við Harald
hefði hann tjáð Haraldi þá skoðun
sína „að ásakanir í skýrslu sem að
sögn nýtur stuðnings meirihluta
nefndarinnar, þar á meðal hans,
feli í sér rætnar og alvarlegar ásak-
anir á hendur þeim sem komu að
samningum milli gömlu og nýju
bankanna að hálfu ríkisins“, eins
og segir í yfirlýsingunni.
Guðmundur segist hafa viljað
ganga úr skugga um að Haraldur átt-
aði sig á alvarleika slíkra ásakana og
að umræddir starfsmenn áskildu sér
rétt til að láta reyna á persónulega
ábyrgð þeirra sem slíku héldu fram
fyrir dómstólum, enda æra þeirra og
starfsheiður að veði.
Guðmundur kveðst ekki hafa átt
önnur samtöl við þingmenn um
þetta mál. „Sé það upplifun Harald-
ar að samtalið hafi falið í sér hótun
af minni hálfu er hann beðinn vel-
virðingar á því,“ segir hann í yfir-
lýsingunni.
Þá minnir Guðmundur á að Guð-
laugur Þór hafi opinberlega beðist
afsökunar á orðalagi í skýrslunni
sem skilja mátti sem „árásir á emb-
ættismenn og sérfræðinga“, svo
notuð séu orð hans. „Það liggur í
eðli máls að slíkt lætur enginn sér
í léttu rúmi liggja og í því samhengi
átti tilvitnað samtal sér stað,“ segir
Guðmundur. jonhakon@frettabladid.is
Kvartaði við ráðherra
undan ráðuneytisstjóra
Ráðuneytisstjóri ræddi við nefndarmann í fjárlaganefnd um ásakanir á hendur
sér í bankaskýrslu Vigdísar Hauksdóttur. Nefndarmaðurinn telur sér hafa verið
hótað. Hefur sent kvörtun til Bjarna Benediktssonar vegna umrædds símtals.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, og Guðlaugur Þór Þórðarson vara-
formaður kynntu skýrsluna fyrir fréttamönnum á dögunum. Fréttablaðið/Ernir
Gífurlegt tjón
Mikið tjón hefur orðið á indónesísku eyjunni Jövu í vikunni vegna flóða og aurskriða. Alls eru nítján látnir,
þar af sextán í bænum Garut á austurhluta Jövu. Níu er enn saknað, þar af átta í Garut, eftir að tvær ár sem
renna í gegnum bæinn flæddu yfir bakka sína. Vegir og byggingar stórskemmdust sömuleiðis. nordicpHotos/aFp
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-6
5
F
C
1
A
A
7
-6
4
C
0
1
A
A
7
-6
3
8
4
1
A
A
7
-6
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K