Fréttablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 20
Bandaríkin Aðfaranótt þriðjudags
munu tveir fylgismestu forseta
frambjóðendurnir í Bandaríkjunum
etja kappi í kappræðum. Ljóst er að
frambjóðendurnir, Donald Trump
úr röðum Repúblikana og Hillary
Clinton úr röðum Demókrata, þurfa
að standa sig vel enda getur fylgi
frambjóðenda aukist verulega eftir
góða frammistöðu.
Það sást síðast þegar þriðju
kappræðurnar á milli Baracks
Obama Bandaríkjaforseta og
Repúblikanans Mitts Romney svo
gott sem tryggðu Obama sigur í
kosningunum. Samkvæmt grein
ingu tölfræðisíðunnar FiveThirty
Eight getur sigurvegarinn átt von
á um þriggja prósentustiga fylgis
aukningu.
Undanfarnar vikur hefur Clinton
verið með forskot á Trump, eða allt
frá landsþingi Demókrata í lok júlí.
Þegar mest var hafði Clinton nærri
níu prósentustiga forskot en það
hefur nú minnkað niður í um eitt
prósentustig.
Listi yfir umræðuefni kappræðn
anna var opinberaður fyrr í vikunni
sem og form þeirra. Kappræðurnar
munu standa yfir í níutíu mínútur,
án hlés, og verður þeim skipt upp í
fimmtán mínútna lotur.
Þau þrjú umræðuefni sem opin
beruð voru eru öryggismál, fram
tíðarsýn og velgengni í efnahags
málum. Þó voru þau sett fram með
þeim fyrirvara að breytingar gætu
orðið ef stór fréttamál koma upp.
Kappræðurnar munu fara fram í
Kappræður gætu ráðið úrslitum
Fyrstu kappræður í forsetakosningabaráttunni í Bandaríkjunum fara fram aðfaranótt þriðjudags.
Kappræðurnar gætu skipt sköpum. Forskot Hillary Clinton hefur minnkað verulega undanfarnar vikur.
Leigjendur eru
ánægðir hjá okkur
almennaleigufelagid.is
Langtíma
leigusamningur
Sveigjanleiki
24/7 þjónusta
Niðurstöður úr nýrri þjónustukönnun Almenna
leigufélagsins* sýna að 87% viðskiptavina eru
ánægð með að leigja hjá félaginu.
Við erum stolt af niðurstöðunni og
ætlum okkur að halda áfram að
tryggja einstaklingum og fjölskyldum
á leigumarkaði húsnæðisöryggi,
stöðugleika og enn betri þjónustu.
Ánægð/ur – 87,1%
Hvorki né – 8,4%
Óánægð/ur – 4,5%
8,4%
4,5%
87,1%
*Könnunin var framkvæmd af Gallup fyrir Almenna leigufélagið dagana 16. - 29. júní 2016.
Long Island í New Yorkfylki. Áhorf
endur verða í salnum en þeim verð
ur ekki heimilt að klappa, fagna eða
baula á frambjóðendur svo búast
má við því að þögn verði í salnum.
Tekur sér hlé
Hillary Clinton hefur ákveðið að taka
sér hlé frá formlegri kosningabaráttu
til þess að undirbúa sig betur fyrir
kappræðurnar. Hún mun einungis
heimsækja tvö baráttufylki í vikunni,
Flórída og Pennsylvaníu. Tíma sínum
telur hún betur varið í að undirbúa
sig með teymi sínu frá heimili sínu í
Chappaqua í New Yorkfylki.
Fjölmiðlar vestanhafs hafa greint
frá því að líklega sé hún að búa sig
undir árásir Trumps á hana á grund
velli umdeildra mála. Í því samhengi
eru helst nefnd vandræði hennar
með tölvupóst sinn, heilsa hennar
og framhjáhald Bills Clinton, eigin
manns hennar. Clinton varð upp
vís að því að nota einkapóstþjón
fyrir tölvupóst sinn í tíð sinni sem
utanríkisráðherra sem gengur gegn
reglugerðum þar sem slíkir þjónar
eru ekki jafn öruggir fyrir árásum
og hinir opinberu. Þá hefur heilsa
hennar einnig verið vandamál en
hún greindist með lungnabólgu fyrr
í mánuðinum.
Einnig er búist við því að hún muni
snúa leik Trumps gegn honum sjálf
um með beittum árásum. CNN grein
ir frá því að kappræðuteymi Clinton
leiti að hnyttnu svari sem muni fá
athygli fjölmiðla. Þá er hún sögð hafa
horft á frammistöðu Trumps í forval
skappræðum Repúblikana.
Hógværari Trump
Demókratar eru sagðir hafa áhyggj
ur af því að Donald Trump nýti sér
sviðsljósið til þess að sýna hógvær
ari hlið á sjálfum sér. Hann muni
forðast umdeild málefni líkt og lof
orð hans um að banna innflutning
fólks frá löndum með tengsl við
hryðjuverkahópa.
Þótt Trump hafi ekki sagt fjölmiðl
um mikið um undirbúningsferlið
hefur hann deilt á fyrirkomulagið.
Trump telur fjölmiðla vinna gegn
sér og bað hann því um að enginn
stjórnandi yrði í kappræðunum.
Einungis hann og Clinton ein gegn
hvort öðru á sviðinu. Þeirri tillögu
var hins vegar hafnað og mun Lester
Holt frá NBC stýra kappræðunum.
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Eftirminnileg atvik
úr kappræðum
Gerald Ford, 1976
Þegar Repúblikan-
inn Gerald Ford,
þáverandi for-
seti, atti kappi
við Demó-
kratann Jimmy
Carter sagði
hann að í sinni
forsetatíð hefðu Sovétríkin engin
yfirráð yfir Austur-Evrópu. Átti það
eftir að reynast honum dýrkeypt
þar sem fjölmiðlar fjölluðu um
fátt annað næstu daga og hædd-
ust að forsetanum en flestir vissu
að ítök Sovétríkjanna á svæðinu
væru mikil og varð mönnum tíð-
rætt um svokallað járntjald.
Ronald Reagan, 1984
„Ég mun ekki gera aldur að kosn-
ingamáli. Ég ætla ekki að nýta mér
æsku og reynslu-
leysi mótfram-
bjóða míns
í pólitískum
tilgangi,“ sagði
Ronald Reagan,
þáverandi for-
seti, í kappræðum
gegn Demókratanum Walter
Mondale. Ummælin voru svar við
spurningu um aldur hans sjálfs en
Reagan var þá elsti forseti í sögu
Bandaríkjanna. Salurinn hló að
ummælunum og Mondale líka
en Mondale var 56 ára og hafði
þjónað sem öldungadeildarþing-
maður í tólf ár og varaforseti í
fjögur.
Lloyd Bentsen, 1988
Ein eftirminnilegustu ummæli
kappræðusögunnar voru í vara-
forsetaefnakappræðum á milli
Lloyds Bentsen,
varaforsetaefnis
Demókratans
Michaels
Dukakis, og
Dans Quayle,
varaforseta-
efnis George
H.W. Bush. Quayle var spurður út
í ungan aldur sinn, 42 ár, og hvort
hann hefði nægilega reynslu til
að verða forseti ef Bush félli frá.
Í svari sínu minnti Quayle á að
John F. Kennedy hefði verið 46 ára
þegar hann varð forseti. Svaraði
Bentsen þá: „Ég þjónaði undir Jack
Kennedy. Ég þekkti Jack Kennedy.
Jack Kennedy var vinur minn.
Þingmaður, þú ert enginn Jack
Kennedy.“ Við því átti Quayle fá
svör og sagði: „Þetta var óþarfi.“
George H.W. Bush, 1992
George H.W. Bush, þáverandi
forseti, vakti mikla athygli í
kappræðum
gegn Demó-
kratanum
Bill Clinton,
þó ekki fyrir
ummæli sín
heldur líkams-
tjáningu. Þegar
áhorfandi bar upp spurningu
leit Bush á úrið sitt á meðan
Clinton fylgdist með og hlustaði.
Áhorfendum fannst þetta merki
um vanvirðingu og féll fylgi Bush
í kjölfar kappræðnanna en hann
tapaði á endanum fyrir Clinton í
kosningunum.
Al Gore, 2000
Líkt og með
Bush vakti
frammistaða
Demókratans
Als Gore í
kappræðum
gegn Repúblik-
ananum George W.
Bush athygli vegna líkamstjáningar
hans. Gore varð skotspónn fjöl-
miðla í kjölfar kappræðna en hann
andvarpaði margoft þegar Bush
svaraði spurningum kappræðu-
stjórnanda. Andvarpið var nægi-
lega hávært til að það heyrðist
greinilega.
Þáttarstjórnandinn Jimmy Fallon brá sér í gerfi Donalds Trump þegar hann fékk Hillary Clinton í heimsókn í þátt sinn, The Tonight Show. NoRDiCpHoToS/GeTTy
40%
styðja Donald Trump
41%
styður Hillary Clinton
2 2 . s e p t e m B e r 2 0 1 6 F i m m t U d a G U r20 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-3
9
8
C
1
A
A
7
-3
8
5
0
1
A
A
7
-3
7
1
4
1
A
A
7
-3
5
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K