Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 22
Hér eru margir að hjálpast að við að draga fé í Steinstúnsdilkinn.
Ein og ein ær er hyrnd og þær er auðvelt að handsama. En langflest lömbin eru
kollótt, bæði hrútar og gimbrar.
Hilmar Hjartarson, Ágúst Guðmundsson og Ragnar Torfason léku undir fjöldasöng. Úlfar Eyjólfsson, bóndi í Krossnesi, tók vel
undir og klappaði í takt.
Réttað var á Melum í Árnes-hreppi á Ströndum síðasta laugardag eftir tveggja daga
göngur. Það var tíundi smölunar-
dagur heimafólks og hunda. Nú
hafði einnig skyldulið og vini
drifið að – jafnvel alla leið frá
Ameríku – til að kemba fjöll og
dali við Eyvindarfjörð, Ófeigsfjörð
og Ingólfsfjörð. Enn fleiri smalar
af öllum stærðum bættust við
uppi á Eyrarhálsinum til að reka
fjárhópinn niður Meladalinn og
veðrið lék við menn og skepnur.
Við réttina var stemningin góð,
vasapelarnir gengu manna á milli
og söngurinn ómaði í haust-
blíðunni undir harmóníku- og
gítartónum.
Eflaust var þó gleðin blandin
því fjórar fjölskyldur eru að hætta
búskap í sveitinni og ungt fólk er
að flytja burt. Því var það táknrænt
fyrir tregann sem undir bjó að þegar
lagið Blessuð sértu sveitin mín var
sungið gerði skúr og himnarnir
grétu höfgum tárum um stund.
Þegar mesta réttastússið var
yfirstaðið buðu hjónin á Melum,
Júlía Fossdal og Björn Torfason,
smölunum heim til sín í steik og
ávaxtagraut og var þar þéttsetinn
bekkurinn.
Um næstu helgi verður aftur
stór smölun í hinum víðáttumikla
Árneshreppi, þá verður reynt að
hreinsa svæðið allt suður undir
Kaldbaksvík. – gun
Réttastemning
í Árneshreppi
Stefán
Karlsson
stefank@365.is
ljósmyndari
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r22 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-4
8
5
C
1
A
A
7
-4
7
2
0
1
A
A
7
-4
5
E
4
1
A
A
7
-4
4
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K