Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 26
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Hafliði
Helgason
haflidi@frettabladid.is
Það er afar mikilvægt að bandalög opinberra starfs-manna hafi náð samkomulagi við ríki og sveitar-félög um nýtt lífeyriskerfi fyrir allt launafólk á
Íslandi. Það er hluti af því markmiði að ná sátt á vinnu-
markaði og bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga.
BSRB skrifaði undir samkomulag við ríki og sveitar-
félög á mánudag, eins og önnur heildarsamtök opin-
berra starfsmanna. Með því samkomulagi er fyrirkomu-
lagi lífeyrismála breytt og tekið upp nýtt kerfi þar sem
allir launamenn hafa sömu réttindi.
Samhliða því hafa ríki og sveitarfélög skuldbundið sig
til að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins
og hins almenna. Sú vinna á að taka að hámarki 10 ár
og mun BSRB beita sér af fullum þunga til að tryggja að
staðið verði við þann hluta samkomulagsins.
Þegar breytingar eru fram undan eru eðlilega margar
skoðanir á því hvaða leið eigi að fara. Gríðarleg vinna
liggur á bak við það samkomulag sem undirritað var
á mánudag og hefur frá upphafi verið fjallað um það á
lýðræðislegan hátt innan BSRB.
Allir formenn aðildarfélaga BSRB samþykktu árið
2010 að fara í þessa vegferð. Bandalagið hefur allt frá
þeim tíma gætt hagsmuna núverandi sjóðsfélaga í líf-
eyrissjóðum opinberra starfsmanna og þeirra sem síðar
munu verða félagar.
Allt frá því þessi vegferð hófst hefur verið fjallað um
stöðu viðræðnanna á fundum og þingum BSRB og
áherslur bandalagsins skerptar og skýrðar. Sú vinna
komst á lokapunkt þegar formannaráð BSRB, sem er
æðsta vald þess milli þinga, fjallaði um málið í byrjun
september. Á fundi formannaráðsins var farið ítarlega
yfir niðurstöðu í samningaviðræðum við ríki og sveitar-
félög. Að því loknu fór fram atkvæðagreiðsla þar sem
formenn 22 félaga af 26 samþykktu að fela forystu BSRB
að skrifa undir samkomulagið.
Vinnunni er ekki lokið. BSRB mun sjá til þess að
staðið verði við alla þætti samkomulagsins. Vinna við
greiningu og leiðréttingu á launum er fram undan. Þar
mun bandalagið halda áfram að gæta hagsmuna sinna
félagsmanna.
Lýðræðisleg ákvörðun
um lífeyrismál
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
Vinnunni er
ekki lokið.
BSRB mun sjá
til þess að
staðið verði
við alla þætti
samkomu-
lagsins.H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
1
31
01
5
DAGAR REKKJUNNAR
LÍKLEGA ÞÆGILEGUSTU RÚM Í HEIMI
King Koil World Luxury er lúxus sem allir eiga skilið.
ATH! Einnig til í öðrum stærðum og gerðum.
Lexington Firm (Queen size 153x203 cm)
Fullt verð 350.014 kr.
TILBOÐSVERÐ 252.445 kr.
Örlög skýrslu sem kynnt var í upphafi sem skýrsla meirihluta fjárlaganefnd-ar verða sífellt reyfarakenndari. Staða skýrslunnar er sú að hún er send áfram sem einkaskýrsla formanns nefndarinnar til stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar þingsins.
Forseti Alþingis hefur lýst því yfir að hún sé ekki
þingskjal og niðurstaða fjárlaganefndar sjálfrar er nú
að hún sé raunverulega álit einstaklings, jafnvel þótt sá
einstaklingur sé formaður nefndarinnar.
Burtséð frá innihaldi skýrslunnar, sem snýst reyndar
um mál sem önnur nefnd þingsins fjallaði um með
formlegum hætti, eru þau vinnubrögð sem viðhöfð
voru vart til þess fallin að auka á virðingu þingsins.
Það kann vel að vera að efni séu til þess að skoða
betur hvernig staðið var að yfirfærslu eigna úr gjald-
þrota bönkum yfir til nýrra banka. Efalaust má líka
eftir á benda á eitt og annað sem betur hefði mátt fara
í þeim fordæmalausu aðstæðum sem stjórnmálamenn
og embættismenn stóðu frammi fyrir þegar ákvarðanir
voru teknar.
Mikilvægast er að skoðun á því sem úrskeiðis kann
að hafa farið sé fagleg og lágmarks krafa er að þeir sem
bornir eru sökum fái tækifæri til að svara fyrir sig áður
en boðað er til blaðamannafundar og slíkt plagg kynnt
sem álit meirihluta þingnefndar.
Í því ljósi má hafa skilning á að embættismaður sem
borinn er alvarlegum sökum geri nefndarmanni grein
fyrir því að hann kunni að baka sér réttarábyrgð með
slíkum fullyrðingum. Jafnvel þótt slík samskipti emb-
ættismanna og þingmanna séu alla jafna óheppileg.
Að taka slíkri áminningu sem hótun er nokkuð
djúpt í árinni tekið miðað við það sem á undan er
gengið.
Síðasta ríkisstjórn eyddi síðustu kröftum sínum í
stjórnarskrármálið og mörg mikilvæg mál sátu á hak-
anum. Nú liggja fyrir þinginu mál sem skipta miklu
fyrir framtíðina. Hið fyrra er afnám gjaldeyrishafta
sem ekki er á borði fjárlaganefndar. Hitt er jöfnun líf-
eyrisréttinda á almennum vinnumarkaði sem kemur
til kasta nefndarinnar og liggur á að afgreiða. Framlag
ríkisins til þess máls er verulegt og vegna tekna ríkis-
sjóðs á þessu ári þarf að klára málið nú þar sem mikill
afgangur blasir við á þessu ári.
Fortíðin hverfur ekki og hafi menn hug á að skoða
nánar verk manna eftir fall bankanna mun verða
nægur tími til þess. Það krefst vandaðra og yfir-
vegaðra vinnubragða og engar líkur á að botn fáist
í málið á þeim stutta tíma sem eftir lifir fram að
kosningum.
Framtíðin er mikilvægasta verkefnið og þingmenn
ættu að hafa það í huga og taka hag landsmanna fram
yfir þrætubókarhálfkæring sem má bíða betri tíma.
Skrýtin örlög
skýrslu
Í því ljósi má
hafa skilning
á að emb-
ættismaður
sem borinn er
alvarlegum
sökum geri
nefndar-
mönnum
grein fyrir því
að þeir kunni
að baka sér
réttarábyrgð
með slíkum
fullyrðingum.
Viðbrögðin
Fréttablaðið greindi frá því
á þriðjudag að peningar til
kaupa á nýjum lyfjum væru
uppurnir. Síðar sama dag
útskýrði María Heimisdóttir,
framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Landspítalans, hvaða
afleiðingar þetta hefði. Að
sjúklingar hefðu í einhverjum
tilfellum ekki aðgang að
lyfjum sem spítalinn vildi
helst bjóða þeim. Þegar
Bjarni Benediktsson, efna-
hags- og fjármálaráðherra,
svaraði fyrir fréttina í viðtali
á Bylgjunni í gær urðu við-
brögð hans þau að segja hana
ranga.
Áhyggjuefnið
Það getur vel verið rétt hjá
Bjarna að á þessu ári hafi
hálfum milljarði verið bætt
í lyfjakaup. Það getur líka
vel verið að sjúklingar á
Norðurlöndunum séu jafn
settir sjúklingum á Íslandi,
ólíkt því sem fullyrt var í
frétt Fréttablaðsins. Megin-
inntakið í frétt blaðsins,
að peningar til kaupa á
nýjum lyfjum eru nú upp-
urnir, stendur þó óhaggað
með staðfestingu frá lyfja-
greiðslunefnd. Það hlýtur að
vera áhyggjuefni fyrir alla
sem vilja setja heilbrigðismál
í forgang. Og sérlegt áhyggju-
efni fyrir stjórnmálamenn nú
þegar nær líður kosningum.
jonhakon@frettabladid.is
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r26 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð
SKOÐUN
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-6
F
D
C
1
A
A
7
-6
E
A
0
1
A
A
7
-6
D
6
4
1
A
A
7
-6
C
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K