Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 35

Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 35
fólk kynningarblað Fjöldi rannsókna staðFestir virkni glucosamin súlFats „Margar rannsóknir hafa verið gerðar sem staðfesta virkni gluco­ samin súlfats við einkennum vægr­ ar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné og hefur það lengi verið notað við liðverkjum. Síðan 2007 hefur verið gerð sú krafa að vörur sem innhalda glucosamin séu fram­ leiddar og seldar sem lyf sem tryggir gæði, virkni og öryggi vörunnar,“ segir Hákon Steinsson, lyfjafræðingur hjá LYFIS. Heilbrigður liðvökvi og brjósk er mikilvægt Fyrir HreyFanleika liða Hnéliðurinn er stærsti liður mannslíkamans og á honum er mikið álag við dagsins amst­ ur. Mikilvægur þáttur í hreyfan­ leika liða er brjósk sem hylur enda beinanna sem mætast og liðvökv­ inn sem auðveldar hreyfingar. Við slitgigt í hné og öðrum liðum koma fram skemmdir í liðnum, þar með talin þynning á liðbrjóskinu ásamt því að yfirborð þess verður gróf­ ara. Breyting verður einnig á beini og öðrum vefjum þannig að hreyfan leiki verður ekki eins og hann á að vera. glucosamin súlFat við- Heldur gæðum liðvökva og dregur úr niðurbroti brjósks Glucosamin LYFIS inniheldur glucosamin súlfat sem er eðlileg­ ur efnisþáttur í liðbrjóski og lið­ vökva. Rannsóknir hafa sýnt að inntaka glucosamin súlfats örvar nýmyndun mikilvægra „smur­ efna“ í liðum, m.a. hýalúron­ sýru. Auk þess hefur glucosam­ in súlfat einnig reynst hindra virkni brjóskeyðandi ensíma sem og myndun annarra vefjaskað­ andi efna. Þessi áhrif geta stuðl­ að að vægri bólgueyðandi verkun. Vegna verkunarmáta glucos­ amins geta liðið nokkrar vikur þar til dregur úr einkennum slitgigtar (einkum verkjum). Glucosamin LYFIS fæst í 30 skammta pökkum í apótekum og er á góðu verði. 2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r Glucosamin LYFIS inniheldur glucosamin súlfat á duftformi og eru 30 skammtapokar í hverjum pakka. Duftið er leyst upp í vatni og er því auðvelt til inntöku og einungis þarf að taka einn skammt á dag. Liðverkir hrjá fjölda fólks og mikið mæðir á hnjáliðum sem eru stærstu liðirnir. Brjósk og liðvökvi eiga stóran þátt í hreyfanleika liða. Þegar skemmdir verða minnkar hreyfanleiki og verkir geta komið fram. ný lausn við liðverkjum: glucosamin lyFis LYFIS kynnir Glucosamin LYFIS sem ætlað er við vægri til meðalsvæsinni slitgigt í hné. Lyfið fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Glucosamin LYFIS er á duftformi í skammtapokum og er leyst upp í vatni. Auðvelt er að taka lyfið inn og einungis þarf að taka það einu sinni á dag. Notkunarsvið: Glucosamin LYFIS er notað til að draga úr einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné. Ekki má nota lyfið ef um er að ræða ofnæmi fyrir glucosamini, einhverju öðru innihaldsefni lyfsins eða fyrir skelfiski, þar sem glucosamin er unnið úr skelfiski og ef um er að ræða meðfæddan efnaskiptasjúkdóm (fenýlketonmigu). Gæta skal sérstakrar varúðar: Einstaklingar með sykursýki, astma, alvarlegt lifrar- eða nýrnavandamál, óþol fyrir einhverjum tegundum sykurs eða eru á natríumskertu fæði skulu leita ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Einnig þarf að útiloka að um sé að ræða annan liðsjúkdóm. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar um notkun og því skal ekki nota Glucosamin LYFIS á meðgöngu eða samhliða brjóstagjöf. Skömmtun: Fullorðnir, einnig aldraðir: Innihald eins skammtapoka á dag, helst með mat. Algengustu aukaverkanir: Ógleði, kviðverkur, meltingartruflanir, vindgangur, hægðatregða og niðurgangur. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2014. glucosamin lyFis Glucosamin LYFIS hentar fyrir þá sem finna fyrir liðverkjum vegna slitgigtar. l Glucosamin er náttúrulegur efnisþáttur í liðbrjóski og lið- vökva l Fjöldi rannsókna á glucosamin súlfati staðfestir virkni þess l Einn skammtur á dag l Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn l Nær bragðlaust Skoðið laxdal.is /yfirhafnir Facebook. Laxdal.is Vertu vinur á Facebook CREENSTONE KÁPURNAR KOMNAR , EINSTÖK GÆÐI OG GLÆSILEIKI Laugavegi 63 • S: 551 4422 2 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A 7 -6 F D C 1 A A 7 -6 E A 0 1 A A 7 -6 D 6 4 1 A A 7 -6 C 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 0 s _ 2 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.