Fréttablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 36
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is,
s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
sólveig
gísladóttir
solveig@365.is
um 150 búningar verða saumaðir fyrir óperuna. margir hverjir eru listasmíð enda mikil áhersla lögð á smáatriði eins og sést á
myndunum. myndir/eyþór
maría th. ólafsdóttir búningahöfundur.
„Anthony Pilavachy, leikstjóri
óperunnar, ákvað að við uppsetn-
ingu Évgeni Onegin yrði miðað við
tímabilið 1914 til 1915 sem er rétt
fyrir rússnesku byltinguna. Þar
sem óperan verður sviðsett í rúss-
neskum sveita-realisma þess tíma
vildi hann ekki að gefinn yrði af-
sláttur á smáatriðum og að búning-
arnir yrðu að vera jafn nákvæmir
og ef um kvikmynd væri að ræða.
Því var dálítið öðruvísi að hanna
búningana fyrir þessa uppfærslu
en margar aðrar,“ segir María sem
hefur hannað búninga bæði fyrir
leikhúsin og Íslensku óperuna. Þar
má nefna Don Giovanni, Rakarann
í Sevilla, Mary Poppins, Vesaling-
ana og Oliver Twist en samhliða
Évgeni Onegin vinnur hún nú að
búningahönnun fyrir Bláa hnött-
inn sem sett verður upp í Borgar-
leikhúsinu.
Er munur á því að hanna bún-
inga fyrir leikhús eða óperur?
„Allt snýst þetta um að segja sögu,
en stærsti munurinn felst í því að
í óperunni er minna rými til að
koma skilaboðum á framfæri. Sen-
urnar eru stuttar og búningurinn
þarf að segja áhorfandanum mikið
á stuttum tíma, til dæmis um þjóð-
félagsstöðu og bakgrunn persón-
unnar,“ lýsir María sem fær í
kringum hálft ár til að undirbúa
hverja sýningu.
Hún segist yfirleitt byrja á
því að leita upplýsinga á netinu, í
bókum og gömlum skjölum. „Síðan
legg ég þetta frá mér og læt hug-
myndirnar gerjast. Síðan er mis-
munandi hvort ég byrja á því að
teikna búningana eða finn efnið. Í
þetta sinn fékk ég megnið af efn-
unum fyrst og teiknaði svo hvern
karakter.“
María fer iðulega til Bretlands
og Bandaríkjanna til að finna efni
enda segir hún úrvalið á Íslandi
takmarkað. Þá komi það oft betur
út fjárhagslega að kaupa efnin að
utan.
Fjölmargar vinnustundir liggja
að baki hverjum búningi en fyrir
utan hönnunarferlið tekur sauma-
skapur á einum kjól um tvær vikur
að sögn Maríu. En hvað eru bún-
ingarnir margir? „Í óperunni er 33
manna kór sem skiptir þrisvar um
búning, þar eru strax komnir um
hundrað búningar. En í allt tel ég
að þetta séu um 150 búningar sem
búnir eru til fyrir sýninguna.“
María segist lítið sauma sjálf
enda vilji hún einbeita sér að
heildar myndinni. Hún hefur þó á
sínum snærum hóp hæfra kvenna
sem sjá um saumaskapinn. „Bún-
ingahöfundur er ekki neitt nema
hafa með sér gott fólk sem lætur
teikningarnar og drauma verða að
veruleika. Við erum heppin hve frá-
bært fagfólk við eigum hjá sauma-
stofum bæði stóru leikhúsanna og
Íslensku óperunnar,“ segir hún.
búningarnir
segja mikla sögu
Íslenska óperan frumsýnir óperuna Évgeni Onegin eftir Pjotr
Tsjajkovskíj 22. október. María Th. Ólafsdóttir hannar búningana sem
eru afar glæsilegir enda heilmikið lagt í fínlegustu smáatriði.
DÚNÚLPA
með ekta loðfeldi
Verð 37.980
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
7
-6
A
E
C
1
A
A
7
-6
9
B
0
1
A
A
7
-6
8
7
4
1
A
A
7
-6
7
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K