Fréttablaðið - 22.09.2016, Blaðsíða 54
Í dag
17.00 Tour Championship Golfst.
Olís-deild karla
19.00 Akureyri - Afturelding
19.30 Fram - Selfoss
19.30 Valur - Haukar
Einn nýliði í landsliðinu
axel stefánsson, þjálfari a-lands-
liðs kvenna í handbolta, valdi í
gær 17 leikmenn sem taka þátt í
æfingum og móti í Póllandi dagana
4.-9. október næstkomandi.
Þetta verða fyrstu leikir íslands
undir stjórn axels en hann tók
við liðinu af Ágústi Jóhannssyni í
sumar.
aðeins einn leikmaður í hópn-
um hefur ekki leikið a-landsleik;
lovísa Thompson,
leikmaður Gróttu.
auk þeirra 17 leik-
manna sem eru í
hópnum valdi axel
sex leikmenn
til vara.
sjá má
hópinn í
heild á
Vísi.
Nýjast
Fótbolti „Það er erfitt að koma því
í orð hvað það er fáránlega gaman
að vera kominn aftur. Meiðslin
voru erfið, leiðinleg og löng og
mér leið eins og þetta ætlaði engan
endi að taka,“ segir aron Jóhanns-
son, íslendingurinn í liði Werder
Bremen í þýsku 1. deildinni, í viðtali
við Fréttablaðið.
aron sneri aftur á völlinn eftir
tæpt ár frá vegna meiðsla á mjöðm.
Hann spilaði fyrsta leik deildar-
innar gegn Bayern München og
skoraði svo fyrsta markið sitt í ell-
efu mánuði fyrir Brimara í íslend-
ingaslag gegn alfreð Finnbogasyni
og félögum í augsburg í annarri
umferðinni.
Aðgerðin „heppnaðist“
aron byrjaði vel með Bremen í
fyrra og skoraði tvö mörk í fyrstu
sex leikjum tímabilið. Þá meiddist
hann og var ekkert meira með fyrr
en ný leiktíð gekk í garð. Þessi tími
hefur verið erfiður fyrir bandaríska
landsliðsmanninn.
„Ég fór í aðgerð í október í fyrra
sem átti að hafa heppnast fullkom-
lega. Eftir þrjár vikur var ég mættur
á æfingu með sjúkraþjálfara að
skokka og gefa stuttar sendingar en
þá fann ég fyrir sársauka sem var
meiri en sá sem var fyrir. Ég hvíldi
þá í mánuð og reyndi svo aftur en
verkurinn var enn þá sá sami. Þetta
gerðist tvisvar sinnum í viðbót á
næstu þremur mánuðum og alltaf
fann ég fyrir sársaukanum. Ég er
ekki svartsýnn maður en mér var
hætt að lítast á blikuna. alltaf þegar
ég byrjaði aftur var þetta verra en
áður,“ segir aron.
Framherjinn segist ekki hafa
verið kominn það langt niður að
hann óttaðist um ferilinn en óviss-
an gerði hann vissulega svolítið
hræddan.
„Ég hélt aldrei að þetta væri búið
og var alls ekki á því að gefast upp.
Þvert á móti var ég frekar byrjaður
að hugsa um að ég þyrfti bara að
læra að spila með sársaukanum.
Verst var að enginn vissi hvað amaði
að, sama hversu marga sérfræðinga
ég hitti. allir vita að hnémeiðsli taka
6-9 mánuði en þarna var óvissan
erfiðust.“
Tár á hvarmi
aron skoraði sitt fyrsta mark á tíma-
bilinu og það fyrsta í tæpt ár þegar
hann setti boltann örugglega í netið
úr vítaspyrnu gegn augsburg fyrir
tveimur vikum. Það mátti augljós-
lega sjá að markið skipti aron miklu
máli en hann hljóp að stúkunni og
öskraði af gleði. Þarna var hann að
losa út ellefu mánuði af sársauka,
óvissu og svartnætti.
„Ég er ekki maður sem sýnir
mikið tilfinningar sínar en ég verð
að viðurkenna að ég var ekki langt
frá því að fella tár þegar ég skokkaði
til baka eftir að hafa skorað og öskr-
að. Ég sagði það meira að segja við
konuna mína þegar ég kom heim. Ég
veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu,
þetta var svo mikill léttir og algjör
tilfinningarússíbani. Fyrsta markið
í ellefu mánuði og það á heimavelli.
Tilfinningin var alveg mergjuð,“
segir aron.
skemmtilegt atvik kom upp í
aðdraganda vítaspyrnunnar þegar
alfreð Finnbogason, framherji
augsburg og íslenska landsliðsins,
þóttist gefa markverði sínum ráð
um hvert aron myndi setja vítið.
aron sendi markvörðinn í rangt
horn og skoraði örugglega.
„Hann var bara að reyna að taka
mig á taugum og það gekk greini-
lega svona vel,“ segir aron og hlær
við. „Þegar ég hljóp til baka spurði
ég alfreð hvort hann ætlaði ekki að
segja markverðinum hvar ég ætlaði
að skjóta. Hann vann samt leikinn
og ég hefði nú frekar viljað þrjá
punkta en að skora þetta mark.“
Galdrakarlinn kom til bjargar
aron dvaldi mikið á íslandi á árinu
eftir að hann gafst endanlega upp
á sjúkraþjálfuninni og sérfræðing-
unum í Þýskalandi. „Ég er mjög
ánægður með félagið því það sýndi
mér mikinn skilning eins og með
þetta þegar mér fannst ég alltaf að
vera að gera það sama og ekkert
virkaði,“ segir aron sem var í með-
höndlun hjá Friðrik Ellert Ragnars-
syni, sjúkraþjálfara íslenska lands-
liðsins, áður en hann hitti mann
sem átti eftir að gera meira fyrir
hann á nokkrum vikum en allir sér-
fræðingar og sjúkraþjálfarar gerðu á
mörgum mánuðum.
„Ég hitti mann sem heitir Jóhann-
es [Tryggvi sveinbjörnsson] hjá
Postura,“ segir aron en umræddur
Jóhannes sérhæfir sig í að leiðrétta
líkamsstöðu íþróttamanna og hefur
unnið með bæði Gunnari nelson og
„Fjallinu“, Hafþóri Björnssyni.
„Eftir tvær vikur hjá honum var
hann búinn að hjálpa mér meira
en allir aðrir í fimm mánuði. Ég
kalla hann alltaf galdrakarlinn, en
ég á honum mikið að þakka,“ segir
aron Jóhannsson.
Ekki langt frá því að tárast
Aron Jóhannsson sneri aftur á fótboltavöllinn í byrjun leiktíðar eftir að hafa verið frá í ellefu mánuði vegna
meiðsla. Hann skoraði í öðrum leik tímabilsins fyrir Werder Bremen og fagnað á tilfinningaríkan hátt.
Aron Jóhannsson skokkar til baka gráti næst eftir markið sem hann skoraði gegn Augsburg sem var hans fyrsta í ellefu mánuði. FréTTAblAðið/GeTTy
Fyrsta markið í
ellefu mánuði og
það á heimavelli. Tilfinn-
ingin var alveg mergjuð.
Aron Jóhannsson
Vonandi verð ég með Íslandi í riðli á HM
Aron Jóhannsson hefur fengið
sinn skerf af gagnrýni fyrir að velja
bandaríska landsliðið fram yfir það
íslenska fyrir fjórum árum. Þó að
hann spili fyrir Bandaríkin er hann
auðvitað Íslendingur og naut þess,
að eigin sögn, að fylgjast með
strákunum okkar á EM.
„Ég var niðri í bæ að
horfa á leikina og var
fagnandi og hopp-
andi og skoppandi
af gleði. Það var
alveg geðveikt að
sjá þetta,“ segir
Aron, sem vegna
meiðslanna, fékk
tækifæri til að
upplifa stemninguna á Íslandi í
kringum Evrópumótið.
„Ég var bara eins og allir
Íslendingar að horfa á þetta
með vinum mínum og
meira að segja að horfa
á nokkra vini mína
spila. Þetta var alveg
magnað hjá þeim,“
segir Aron sem
vonast til að Ísland
komist á HM í Rúss-
landi.
„Vonandi
verðum við bara
saman í riðli í
Rússlandi. Það
væri geðveikt!“
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
Enski deildabikarinn
Fulham - bristol City 1-2
1-0 Lucas Piazon (14.), 1-1 Aaron Wilbraham
(45.), 1-2 Tammy Abraham (90.+3).
Northampt. - Man. Utd 1-3
0-1 Michael Carrick (18.), 1-1 Alexander Re-
vell (42.), 1-2 Ander Herrera (68.), 1-3 Marcus
Rashford (75.),
QPr - Sunderland 1-2
1-0 Sandro (60.), 1-1 Paddy McNair (70.), 1-2
Paddy McNair (80.)
Southampton - Palace 2-0
1-0 Charlie Austin (33.), 2-0 Jake Hesketh
(63)
Swansea - Man. City 1-2
0-1 Gael Clichy (49.), 0-2 Aleix Garcia (68.),
1-2 Gylfi Þór Sigurðsson (90.+4).
West Ham - Accrington 1-0
1-0 Dimitri Payet (90.+6).
Stoke - Hull 1-2
1-0 Marko Arnautovic (24.), 1-1 Ryan Mason
(45.), 1-2 Markus Henriksen (90.+3).
Tottenham - Gillingham 5-0
1-0 Christian Eriksen (31.), 2-0 Christian
Eriksen (48.), 3-0 Vincent Janssen (50.), 4-0
Joshua Onomah (65.), 5-0 Erik Lamela (68.)
Spænska úrvalsdeildin
real Madrid - Villarreal 1-1
0-1 Bruno Soriano (45.), 1-1 Sergio Ramos
(48.).
barcelona - A. Madrid 1-1
1-0 Ivan Rakitic (41.), 1-1 Angel Correa (61.).
Celta - Sporting Gijon 2-1
Granada - A. bilbao 1-2
r. Sociedad - las Palmas 4-1
Þýska úrvalsdeildin
leverkusen - Augsburg 0-0
Alfreð Finnbogason lék allan leikinn fyrir
Augsburg.
Werder bremen - Mainz 1-2
bayern - Hertha 3-0
Franck Ribery, Thiago Alcantara, Arjen
Robben.
leipzig - Mönchenglad. 1-1
Schalke - Köln 1-3
2 2 . S E p t E m b E r 2 0 1 6 F i m m t U D A G U r42 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sporT
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-7
E
A
C
1
A
A
7
-7
D
7
0
1
A
A
7
-7
C
3
4
1
A
A
7
-7
A
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K