Fréttablaðið - 22.09.2016, Qupperneq 56
Ármúla 31 - við hliðina á innréttingar og tæki
Verksmiðju
útsala
afsláttur
40-70%
Verksmiðjuútsala verður hjá
Varma Dagana 22-24 september
Opið:
Fimmtud. og Föstud. kl. 17-19
Laugard. kl. 12-15
lítið útlitsgallaðar vörur ásamt vörum sem
hættar eru í framleiðsu..
Fótbolti Á mánudaginn verða þrjú
ár liðin frá því að Freyr Alexanders-
son stýrði íslenska kvennalands-
liðinu í fyrsta sinn. Leikurinn var
gegn Sviss á Laugardalsvelli og var
sá fyrsti í undankeppni HM 2015.
Hann var ekki góður, tapaðist 0-2 og
verður helst minnst fyrir að vera
sá síðasti á löngum og glæsilegum
landsliðsferli Katrínar Jónsdóttur.
Á þessum þremur árum síðan
Freyr tók við hefur íslenska lands-
liðið tekið talsverðum breytingum.
Reynslumiklir leikmenn og stórir
persónuleikar hafa horfið af lands-
liðssviðinu og aðrir komið í stað-
inn eins og gerist, en fyrst og síðast
hefur leikstíllinn breyst. Og lykil-
orðið í því samhengi er pressa.
Freyr virðist hafa áttað sig
snemma á því að það hentar þeim
leikmönnum sem eru í burðar-
hlutverki í landsliðinu í dag betur
að spila varnarleikinn framar og
ráðast á andstæðinginn í stað þess
að bíða eftir honum. Miðjumenn
íslenska liðsins, Sara Björk Gunn-
arsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir,
búa yfir gríðar lega mikilli hlaupa-
getu og með Glódísi Perlu Viggós-
dóttur, arftaka Katrínar í vörninni, á
íslenska liðið auðvelt með að verjast
framarlega. Glódís er einnig mikil-
væg í uppspili íslenska liðsins en
hún hefur flestar sóknir þess.
Undankeppni HM 2015 var
eins konar undirbúningsmót fyrir
undan keppni EM 2017, sérstaklega
eftir að draumurinn um að spila á
HM í Kanada fauk út um gluggann
eftir 0-1 tap fyrir Dönum. Leikirnir
tveir sem eftir voru í undankeppn-
inni voru nýttir til að gefa yngri
leikmönnum tækifæri á meðan stór
nöfn eins og Ólína G. Viðarsdóttir,
Katrín Ómarsdóttir og Hólmfríður
Magnúsdóttir voru ekki valdar í
landsliðshópinn. Þetta var stór
ákvörðun en sýndi að þjálfarinn var
óhræddur við að gera breytingar.
Þessir tveir leikir, gegn Ísrael
og Serbíu, unnust örugglega en
Algarve-mótið 2015 gaf ekki mikla
ástæðu til bjartsýni. Ísland lék fjóra
leiki og mistókst að skora í þeim
öllum.
Þrátt fyrir þetta bakslag var
greinilegt að íslenska liðið var á
réttri leið. Staðfestingin á því fékkst
í fyrsta leik undankeppni EM 2017,
gegn Hvít-Rússum á Laugardalsvell-
inum. Leikurinn vannst bara 2-0 en
spilamennskan var góð og mörkin
áttu að verða miklu fleiri.
Það var þó engin vöntun á mörk-
um í undankeppni EM 2017. Þau
urðu alls 34 en aðeins Spánn (39) og
Þýskaland (35) skoruðu fleiri. And-
stæðingarnir voru vissulega ekki
alltaf þeir sterkustu en íslenska liðið
sýndi í þessari undankeppni fram-
farir þegar kemur að því að stjórna
leikjum.
Það small svo allt saman í úti-
leiknum gegn Skotum þar sem
Ísland samtvinnaði ákafa pressu-
vörn og góðan fótbolta. Skotaleik-
urinn í fyrradag var öllu daprari og
sá slakasti í undankeppninni. Það
verður þó að taka með í reikninginn
að vægi hans var ekki mikið þar sem
Ísland hefði þurft að tapa með fimm
mörkum til að missa toppsætið í
riðlinum.
Frammistaðan í undankeppn-
inni var jákvæð en hún telur lítið ef
Ísland fellur á prófinu í lokakeppn-
inni í Hollandi. Hún er stóra prófið.
Íslenska liðið virðist vel undirbú-
ið en það þarf að nýta næstu
mánuði vel eins og Freyr
benti á eftir leikinn
gegn Skotum í
fyrradag.
ingvithor@365.is
Freyr hefur breytt leikstíl liðsins
Freyr Alexandersson hefur stýrt íslenska kvennalandsliðinu í þrjú ár. Á þeim tíma hefur hann gert talsverðar breytingar á leikstíl liðsins
og þær hafa gefið góða raun eins og sást í undankeppni EM 2017. Stelpurnar stóðu sig stórkostlega og flugu inn á lokamótið í Hollandi.
33 leikir
l 20 sigrar
l 4 jafntefli
l 9 töp
haldið hreinu
Árangur liðsins með Frey
sem þjálfara
82 mörk skoruð
29 mörk fengin á sig
13x
mistekist
að skora í
leik
9x
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F i m m t U D A G U r44 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-6
A
E
C
1
A
A
7
-6
9
B
0
1
A
A
7
-6
8
7
4
1
A
A
7
-6
7
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K