Fréttablaðið - 22.09.2016, Page 66
Leikhús
helgi magri
HHHHH
Byggt á samnefndu verki eftir
Matthías Jochumsson
MAk og Leikfélag Akureyrar
Samkomuhúsið
Leikarar og höfundar: Benedikt Karl
Gröndal, Halldóra Malín Pétursdóttir,
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og
Kjartan Darri Kristjánsson
Listrænir stjórnendur og höfundar:
Jón Páll Eyjólfsson og Þóroddur Ing-
varsson
Leikfélag Akureyrar hefur verið að
fóta sig undanfarin misseri eftir
að hafa sameinast Menningarfé-
lagi Akureyrar. Í leit sinni að eigin
rödd hefur það oftar en ekki fundið
innblástur í nærumhverfi sínu með
nokkuð góðum árangri. Í þetta
skipti er söguarfurinn lagður í hend-
ur trúða sem nefnast Pétur, Tómas,
Brynhildur og Sigfús. Hópurinn
ræðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur og ákveða að klöngrast
saman í gegnum landnámssögu
Helga magra með hjálp Matthíasar
Jochumssonar.
Handritið sjálft er ekki meira en
nokkrar blaðsíður og dregur upp
helstu efnisatriðin úr upphaflegu
handriti Matthíasar, en brotin eru
oft einstaklega vel skrifuð. Sagan af
landsnámsmanninum Helga magra
og fjölskyldu hans er jafnframt saga
Eyjafjarðar, samfélagsins sem dafn-
aði þar og einstaklinganna sem þar
dvelja enn. Trúðarnir brjóta upp
söguna með persónulegum inn-
skotum og hnyttnum ábendingum.
Af þessum sökum eru engar tvær
sýningar eins og því eru þær allar
einstakar, líkt og mannfólkið.
Trúðleikur byggist á mikilli
nákvæmnisvinnu þó á yfirborðinu
virðist uppátækjasemin og hrein-
skilnin vera í fyrirrúmi. Þau Bene-
dikt Karl Gröndal, Halldóra Malín
Pétursdóttir, Jóhanna Friðrika
Sæmundsdóttir og Kjartan Darri
Kristjánsson mynda þetta trúða-
teymi og vinna haglega saman.
Trúðarnir sinna fjölmörgum verk-
efnum í einu, eiginlega öllum, þar
sem leikhópurinn útfærir alla list-
ræna þætti sýningarinnar í samein-
ingu, svo sem leikmynd, búninga
og lýsingu. Samtenging þeirra við
sýninguna er einnig sýnileg áhorf-
endum en trúðarnir deila upplifun
sinni af leiknum á meðan þeir eru í
miðju kafi í sögunni.
Mörg þessara innskota eru ein-
læg og hitta beint í hjartastað en
koma einnig upp um stærstu galla
sýningarinnar. Báðar sögurnar,
handritið og spuninn, verða að
styðja hvor við aðra, söguþráður-
inn verður að fleyta spunanum
áfram og setja honum skorður.
Afleiðing þessarar frásagnargleði
trúðanna er sú að sýningin teygist
og togast í alls konar áttir þar sem
útúrdúrarnir verða mikilvægari
en grunnsagan. Spuninn verður
að skapa spennu og vera snarpur,
of langar frásagnir og útskýringar
geta orðið þreytandi.
Leikmyndin er hugvitsamleg
og áferðarfögur þar sem einfald-
leikinn ræður ríkjum. Lýsingin er
sömuleiðis heillandi og áhrifarík
með litríkum blæbrigðum. Ekki
skemmir fyrir að sýningin fer fram
í Samkomuhúsinu sem bæði skapar
ljúft andrúmsloft og tengir líka lag-
lega við menningarsögu Akureyrar.
Í formála verksins skrifar Matthí-
as Jochumsson að leikurinn hafi
verið saminn í því sérstaka augna-
miði að vera sýndur á Akureyri
og ef hann væri bæði boðlegur og
sagnfræðilega þolanlegur þá væri
takmarkinu náð. Helgi magri í
meðförum trúðanna fjögurra virð-
ist ná þrennunni og er hin ágætasta
byrjun á leikári Leikfélags Akureyr-
ar. Þá er einstaklega ánægjulegt að
ungum leikurum sé gefið tækifæri
til að skapa og vinna að sýningu
innan veggja hússins. Þó að niður-
staðan hafi ekki heppnast nægi-
lega vel í þetta skiptið þá er vert að
hvetja áhorfendur um land allt til
að styðja við Leikfélag Akureyrar á
komandi leikári. Sigríður Jónsdóttir
Niðurstaða: Djörf tilraun sem
skortir festu.
Trúðateymi togar í hjartastrengi
Menntaskólinn við Hamrahlíð
fagnar fimmtíu ára afmæli sínu í
þessari viku með ýmsum hætti.
Skólinn hefur löngum verið
þekktur fyrir að fóstra listamenn
og í kvöld hefja rithöfundar þar
upp raust sína. Hamraskáldin
svokölluðu munu lesa úr verkum
sínum í Norðurkjallara, meðal
þeirra eru Bragi Ólafsson, Bryndís
Björgvinsdóttir Gerður Kristný,
Hallgrímur Helgason, Hermann
Stefánsson, Margrét Lóa Jóns-
dóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir,
Yrsa Þöll Gylfadóttir og Þórunn
Erlu Valdimarsdóttir.
Sumir þessara rithöfunda birtu
sín fyrstu ljóð í skólablaði MH,
Beneventum, en hafa síðan haslað
sér völl í bókmenntalífinu svo um
munar.
Dagskráin hefst klukkan 20.30
og aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Af öðrum viðburðum afmælis-
vikunnar má minnast á fyrir-
lestraröðina Aftur til framtíðar,
þar sem fyrrverandi nemendur
snúa aftur og ausa af viskubrunni
sínum fyrir núverandi nemendur,
gesti og gangandi, og afmælishá-
tíð á laugardag sem hefst klukkan
tvö og lýkur með stórtónleikum á
hátíðasal skólans.
Nánari upplýsingar um afmælis-
hátíð MH má finna á mh.is. – gun
Rithöfundar hefja upp raust í MH
Gerður Kristný er ein þeirra sem ætla að lesa upp í MH í kvöld. Mynd/Auðunn níeLSSon
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Benedikt Karl Gröndal á sviði Samkomuhússins á Akureyri.
2 2 . s e p t e M B e r 2 0 1 6 F i M M t u D a G u r54 M e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
7
-6
5
F
C
1
A
A
7
-6
4
C
0
1
A
A
7
-6
3
8
4
1
A
A
7
-6
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K