Fréttablaðið - 10.09.2016, Side 6

Fréttablaðið - 10.09.2016, Side 6
Bandaríkin Aðeins tveir mánuðir eru í forsetakosningar í Bandaríkj- unum 8. nóvember næstkomandi. Frambjóðendur eru í fimmta gír og flakka milli ræðuhalla til að halda kosningafundi víða um landið. Þó fá ekki öll fylki Bandaríkjanna að hýsa kosningafund annars hvors frambjóðendanna tveggja sem njóta mests fylgis, Repúblikanans Donalds Trump og Demókratans Hillary Clinton. Þess í stað hefur baráttan mest- megnis farið fram í broti þeirra fimmtíu fylkja sem mynda Banda- ríkin. Samkvæmt meðaltali skoð- anakannana sem RealClear Politics tekur saman eru nefnilega einungis ellefu fylki þar sem munurinn á milli frambjóðendanna tveggja er undir sex prósentustigum. Þau eru: Flórída, Virginía, Ohio, Penn- sylvanía, Wisconsin, Iowa, Nevada, Arizona, Georgía, Norður-Karólína og Missouri. Aðrir miðlar á borð við Politico hafa bætt Colorado, Michigan og New Hampshire við þennan lista en þar sýnir meðaltal skoðanakannana ögn meiri mun. Fólkið kýs ekki forseta Ástæða þess að einungis er barist um brot þeirra fylkja sem mynda Bandaríkin er kosningakerfi gjör- ólíkt því sem við þekkjum hér. Atkvæði Bandaríkjamanna eru nefnilega ekki talin sem ein heild heldur eru haldnar kosningar í hverju fylki fyrir sig, þó samdægurs. Það er gert vegna þess að kjósendur kjósa ekki forseta heldur svokallaða kjörmenn sem hittast stuttu eftir kosningar og greiða atkvæði líkt og almenningur kaus þá til að gera. Fylki eru með mismarga kjör- menn, áætlað gróflega eftir fólks- fjölda, og því sum fylki í raun verðmætari en önnur fyrir fram- bjóðendur. Allir kjörmenn sama fylkis kjósa alla jafna sama frambjóðanda og meirihluti almennings í fylkinu gerði. Þannig fær sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði í fylkinu, sama hvort hann vann með einu atkvæði eða milljón, alla kjörmenn fylkisins. Alls eru 538 kjörmenn í Banda- ríkjunum og þarf frambjóðandi því að tryggja sér 270 kjörmenn til að tryggja sér forsetaembættið. Clinton með forskot Líkt og skoðanakannanir hafa sýnt er Clinton með tæplega þriggja pró- sentustiga forskot á landsvísu. Ef rýnt er í kannanir fyrir hvert fylki fyrir sig má einnig sjá að Clinton er með gott forskot þegar kemur að kjörmönnum, hún þarf því að vinna færri baráttufylki en Trump ef hún vill verða forseti. Alls mælist Clinton með öruggt forskot í tuttugu fylkjum sem hafa samtals 229 kjörmenn. Trump mælist hins vegar með gott forskot í nítján fylkjum sem hafa samtals 154 kjörmenn. Allnokkur fylki eru nógu höll undir annan hvorn flokkinn til að hafa kosið frambjóðanda sama flokks allt frá aldamótum. Til að mynda hafa Kaliforníubúar og Ellefu fylkja slagurinn Línur eru farnar að skýrast í baráttunni um forsetaembættið í Bandaríkjunum. Donald Trump og Hillary Clinton verja stærstum hluta fjármagns síns og tíma í aðeins nokkrum lykilfylkjum. Ekkert fylkjanna fær jafnmikla athygli og Ohio. Kosningakerfið sem stuðst er við í forsetakosningum í Bandaríkjunum útilokar ekki að frambjóðandi sigri án þess að hafa fengið fleiri atkvæði en keppi- nauturinn. Það hefur raunar gerst fjórum sinnum og síðast árið 2000 þegar Repúblik- aninn George W. Bush bar sigur úr býtum gegn Demókratanum Al Gore. Mjótt var á munum í þeim kosningum. Bush fékk atkvæði 271 kjörmanns en Gore 266. Hins vegar fékk Gore 48,4 prósent atkvæða en Bush 47,9 prósent. Í kjölfar- ið fylgdu málaferli þar sem farið var fram á endurtalningu í Flórída sökum afar lítils munar. Hæstiréttur úrskurðaði svo að ekki skyldi telja á ný og vann því Bush alla 25 kjör- menn fylkisins og þar með forseta- embættið. Alls kusu 2.912.790 Bush en 2.912.253 kusu Gore og verður það að teljast afar lítill munur. Áður höfðu þeir John Quincy Adams, árið 1824, Rutherford B. Hayes, árið 1876, og Benjamin Harrison, árið 1888, orðið for- setar án þess að fá fleiri atkvæði en keppinauturinn. Einnig eru allnokkur fylki í Banda- ríkjunum þar sem löglegt er fyrir kjörmann að kjósa gegn vilja fólksins. Frá aldamótum hefur það gerst tvisvar. Annars vegar árið 2000 þegar kjörmað- ur frá Washingtonborg neitaði að kjósa Gore og hins vegar árið 2004 þegar kjörmaður frá Minnesota kaus óvart John Ed- wards, varaforsetaefni Johns Kerry frambjóðanda Demókrata. Brestir hafa myndast í kerfinu Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is íbúar New York einungis kosið Demókrata á þeim tíma og Texas- búar ávallt Repúblikana. Þau fylki sem hafa kosið Demókrata alla tíð frá 2000 búa yfir 242 kjörmönnum en fylki Repúblikana 179. Ohio fær mesta athygli Þau þrjú baráttufylki þar sem kjör- menn eru flestir eru Ohio með sína átján, Pennsylvanía með tuttugu og Flórída með 29. Undanfarna mánuði hafa íbúar þeirra fylkja því fengið að sitja undir milljóna bandaríkjadala virði af sjónvarps- og útvarpsaug- lýsingum sem og tíðum kosninga- fundum frambjóðenda. Ohio hefur fengið mesta athygli allra baráttufylkja. Samkvæmt greiningu Politico höfðu hvorki Clinton né Trump heimsótt nokk- urt annað fylki oftar á þessu ári, um átta sinnum hvort. Í kjölfarið fylgja Pennsylvanía, Virginía, Norður- Karólína og Flórída með um fimm heimsóknir frá hvoru þeirra. 24.934 kr. á mánuði* 55.498 kr. á mánuði* 41.124 kr. á mánuði*41.290 kr. á mánuði* 6.750.000 kr. Kia Sorento EX Luxury Árgerð 1/2015, ekinn 47 þús. km, dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur, eyðsla 6,7 l/100 km. 2.990.000 kr. Kia Soul EX Árgerð 12/2014, ekinn 33 þús. km, dísil, 1582 cc, 128 hö, beinskiptur, eyðsla 5,2 l/100 km. 4.990.000 kr. 4.990.000 kr. Kia Sportage Kia Sorento Árgerð 7/2015, ekinn 37 þús km, dísil, 1995 cc, 136 hö, sjálfskiptur, eyðsla 5,9 l/100 km. Árgerð 2/2013, ekinn 72 þús. km, dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur eyðsla 6,7 l/100 km. Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 84 mánuði. Vextir 8,75% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,5%. Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar. * Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ Notaðir ÁR EFTIR AF ÁBYRGÐ ÁRA ÁBYRGÐ Notaðir Ábyrgð fylgir! NOTAÐIR BÍLAR www.notadir.is Kletthálsi 2 110 Reykjavík 590 2160 Opnunartímar: Virka daga 10–18 Laugardaga 12–16 Nær örugglega Demókratar. Líklega Demókratar Baráttufylki. Líklega Repúblikanar. Nær örugglega Repúblikanar. ✿ Fylgi forsetaframbjóðendanna í fylkjunum ak 3 Hi 4 Wa 12 MT 3 nd 3 Mn 10 Wi 10 iL 20 in 11 Mi 16 OH 18 kY 8 Tn 11 aL 9 MS 6 Ga 16 SC 9 nC 15 Va 13 Pa 20 nY 29 WV 5 ME 3 FL 29 ia 6 MO 10 ar 6 La 8 Sd 3 nE 4 kS 6 Ok 7 TX 38 id 4 WY 3 UT 3 aZ 11 CO 9 nM 5 Or 7 nV 6 Ca 55 ri 4 Ma 11 dE 3 CT 7 Md 10 dC 3 nJ 14 VT 3 nH 4Fjöldi kjörfulltrúa er breyti- legur eftir fylkjum. Kalifornía hefur flesta fulltrúa, 55, enda fjölmennasta fylkið. 270 kjörfulltrúa þarf til að ná forsetembættinu. 168 61 155 65 89 1 0 . S E P T E M B E r 2 0 1 6 L a U G a r d a G U r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 1 0 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 7 -C D 2 0 1 A 8 7 -C B E 4 1 A 8 7 -C A A 8 1 A 8 7 -C 9 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.