Fréttablaðið - 10.09.2016, Síða 64

Fréttablaðið - 10.09.2016, Síða 64
Flestir kannast við blómkálssúpu frá uppvaxtarárum sínum. Blóm- kálssúpa var iðulega á borðum Ís- lendinga þegar hausta tók. Hægt er að gera súpuna mismunandi, hér er hún borin fram með stökku beikoni en það mætti líka vera steiktir brauðteningar eftir vali. Blómkálssúpa Uppskriftin miðast við fjóra 750 g blómkál 1 laukur, smátt skorinn 9 dl kjúklingasoð (grænmetis fyrir þá sem ekki borða kjöt) 2,5 dl mjólk 2 msk. sýrður rjómi Blaðlaukur, smátt skorinn 200 g beikon Salt og nýmalaður pipar Steinselja, smátt skorin Hreinsið blómkálið og takið allt í sundur. Skerið stilkana líka í litla bita. Geymið um 100 g til skreyt- ingar. Sjóðið upp kraft, mjólk, lauk og blómkál. Látið malla þar til kálið verður mjúkt, um það bil 15 mínút- ur. Notið töfrasprota til að mauka allt saman í súpunni. Bætið því næst sýrðum rjóma saman við. Látið malla aðeins áfram og bragð- bætið með salti og pipar. Á meðan er hægt að steikja beik- onið á pönnu þar til það verður stökkt. Takið þá af pönnunni og geymið. Setjið restina af blómkál- inu á sömu pönnu og bætið smá- vegis smjöri eða olíu við. Loks er blaðlaukurinn settur á pönnuna og beikonið svo aftur. Bragðbæt- ið með smávegis salti. Í staðinn fyrir beikon má nota snöggsteikta chorizo-pylsu, parmaskinku eða brauðteninga. Setjið súpuna á fjóra diska og setj- ið beikonið, blaðlaukinn og blóm- kál ofan á miðju súpunnar. Strá- ið steinselju yfir. Gott er að hafa brauð með súpunni. hollUr kvöldverðUr að haUsti Er ekki góð hugmynd að útbúa hollan og góðan þriggja rétta kvöldverð í kvöld? Nýupptekið grænmeti fæst í verslunum og því er upplagt að bera fram góða blómkálssúpu, nýveiddan lax og ofureinfaldan eftirrétt með berjum. Einfaldur en góður eftirréttur. Ofnbakaður lax með kókos og límónusósu. Ljúffeng blómkálssúpa. lax með kókos og límónU Fyrir fjóra Lax er ofurfæða, ótrúlega hollur og góður matur, stútfullur af vítamín- um. Þess vegna ætti hann að vera oft á borðum. Hér er mjög góður réttur, léttur í maga og bragðgóður. 600 g laxaflak 1 msk. sesamolía 1 tsk. salt ½ tsk. pipar 50 g ferskur kókos (beint úr kókoshnetunni) Jógúrtdressing 2 dl grísk jógúrt Börkur af einni límónu, rifinn Smávegis safi úr límónu Salt Stillið ofninn á 200°C. Blandið saman jógúrt, rifnum lím- ónuberki, smá safa og salti í skál. Geymið í kæliskáp. Takið börkinn af kókoshnetu og rífið kókosinn með rifjárni. Skerið laxaflakið í fjögur stykki og leggið þau á bökunarpappír á ofn- skúffu eða í eldfast form. Pensl- ið fiskinn með sesamolíu og bragð- bætið með salti og pipar. Dreif- ið kókosnum yfir og setjið í ofninn. Bakið í 8 mínútur. Með laxinum má hafa soðnar kart- öflur eða gott salat. Einnig er gott að hafa ferskan aspas. Berið fram með jógúrtsósunni. BerjaréttUr með ostasósU miðast við fjóra Þessi réttur er bragðgóður og mjög einfaldur. 80 g hafrakex 40 g smjör, brætt 3 msk. sykur 1,5 dl rjómi 75 g rjómaostur Smávegis sítrónusafi 3 msk. sykur 2 msk. flórsykur 1 tsk. vanilludropar 400 g ber Setjið kexið í matvinnsluvél og hakk- ið. Bræðið smjörið og blandið saman við auk sykurs. Því næst er öllu sem á að fara í osta- sósuna blandað saman í skál og þeytt saman þar til blandan er létt og ljós. Gætið að því að þeyta ekki á of miklum hraða. Það má hakka berin í sósu eða skera niður jarðarber og heil bláber og setja í botninn á glasi, því næst osta- krem og loks kexblönduna. Hægt er að nota hvaða ber sem er í þessa uppskrift. Eftirréttinn má gera fyrir- fram að deginum, breiða plastfilmu yfir og geyma í ísskáp. Í stað sykurs má nota sætuefni. 1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r8 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n 1 0 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 7 -E F B 0 1 A 8 7 -E E 7 4 1 A 8 7 -E D 3 8 1 A 8 7 -E B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.