Fréttablaðið - 10.09.2016, Blaðsíða 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Jón heitinn Steffensen, pró-fessor við læknadeild HÍ, var ástríðufullur safnari. Lungann úr ævi sinni hélt hann til haga og bjargaði frá glötun bókum
og munum sem tengdust sögu
lækninga á Íslandi. Hann átti
sér þann draum að koma upp veglegu
Lækningaminjasafni að Nesi á Sel-
tjarnarnesi í námunda við hús Bjarna
Pálssonar, fyrsta landlæknisins. Jón
arfleiddi væntanlega byggingu að
öllum eigum sínum til að hrinda hug-
myndinni í framkvæmd. Málið var
þæft um árabil en í septemberbyrjun
2008 var tekin fyrsta skóflustunga að
safninu af menntamálaráðherra og
bæjarstjóra Seltjarnarness o.fl. Fram-
kvæmdir hófust og 1.600 fm bygging
reis hratt á besta stað í bæjarlandinu
með útsýni yfir Seltjörn, Gróttuvita
og víðáttur hafsins. Fljótlega hljóp
þó snurða á þráðinn vegna þess að
fjárhagsáætlanir stóðust ekki eins og
gengur.
Í desembermánuði 2012 sagði
Seltjarnarnesbær sig frá safninu
sakir blankheita (sic) og allar fram-
kvæmdir voru stöðvaðar. Síðan
stendur safnhúsið úti á Nesi eins og
munaðarlaust draugahús, rétt rúm-
lega fokhelt. Enginn virðist vita hver
eiga að verða örlög þessa glæsilega
húss. Hugmyndir hafa komið upp
um að rífa það og endurskipuleggja
reitinn eða búa til safn með aðstöðu
fyrir fyrirlestra og tónleika. Þrátt
fyrir síaukinn ferðamannastraum og
vaxandi þörf fyrir alls konar afþrey-
ingu virðist engan langa til að efla
menningarstarfsemi á Nesinu með
því að fullgera húsið og gera það að
lifandi miðstöð fyrir safnastarfsemi
og listviðburði.
Undangengin ár hefur Golfklúbb-
ur Ness fengið húsið að láni til að æfa
pútt og golfsveiflur. Mun þetta vera
dýrasta æfingahúsnæði golfklúbbs á
byggðu bóli. Ætli Jón Steffensen snúi
sér ekki við í gröfinni þegar hann
áttar sig á því að lækningaminja-
safnið hans er orðið að golfskála?
Lækninga-
minjasafnið
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
7
-A
0
B
0
1
A
8
7
-9
F
7
4
1
A
8
7
-9
E
3
8
1
A
8
7
-9
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K