Fréttablaðið - 10.09.2016, Page 96

Fréttablaðið - 10.09.2016, Page 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Óttars Guðmundssonar Bakþankar Jón heitinn Steffensen, pró-fessor við læknadeild HÍ, var ástríðufullur safnari. Lungann úr ævi sinni hélt hann til haga og bjargaði frá glötun bókum og munum sem tengdust sögu lækninga á Íslandi. Hann átti sér þann draum að koma upp veglegu Lækningaminjasafni að Nesi á Sel- tjarnarnesi í námunda við hús Bjarna Pálssonar, fyrsta landlæknisins. Jón arfleiddi væntanlega byggingu að öllum eigum sínum til að hrinda hug- myndinni í framkvæmd. Málið var þæft um árabil en í septemberbyrjun 2008 var tekin fyrsta skóflustunga að safninu af menntamálaráðherra og bæjarstjóra Seltjarnarness o.fl. Fram- kvæmdir hófust og 1.600 fm bygging reis hratt á besta stað í bæjarlandinu með útsýni yfir Seltjörn, Gróttuvita og víðáttur hafsins. Fljótlega hljóp þó snurða á þráðinn vegna þess að fjárhagsáætlanir stóðust ekki eins og gengur. Í desembermánuði 2012 sagði Seltjarnarnesbær sig frá safninu sakir blankheita (sic) og allar fram- kvæmdir voru stöðvaðar. Síðan stendur safnhúsið úti á Nesi eins og munaðarlaust draugahús, rétt rúm- lega fokhelt. Enginn virðist vita hver eiga að verða örlög þessa glæsilega húss. Hugmyndir hafa komið upp um að rífa það og endurskipuleggja reitinn eða búa til safn með aðstöðu fyrir fyrirlestra og tónleika. Þrátt fyrir síaukinn ferðamannastraum og vaxandi þörf fyrir alls konar afþrey- ingu virðist engan langa til að efla menningarstarfsemi á Nesinu með því að fullgera húsið og gera það að lifandi miðstöð fyrir safnastarfsemi og listviðburði. Undangengin ár hefur Golfklúbb- ur Ness fengið húsið að láni til að æfa pútt og golfsveiflur. Mun þetta vera dýrasta æfingahúsnæði golfklúbbs á byggðu bóli. Ætli Jón Steffensen snúi sér ekki við í gröfinni þegar hann áttar sig á því að lækningaminja- safnið hans er orðið að golfskála? Lækninga- minjasafnið OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 1 0 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 7 -A 0 B 0 1 A 8 7 -9 F 7 4 1 A 8 7 -9 E 3 8 1 A 8 7 -9 C F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 9 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.