Fréttablaðið - 10.09.2016, Qupperneq 18
sport
Fótbolti Íslandsmótin í Pepsi-deild
karla- og kvenna geta hreinlega
ráðist um helgina. FH í karlaflokki
og Stjarnan í kvennaflokki verða
komin með níu fingur á titilinn ef
Breiðabliksliðin gera ekkert í mál-
unum. Vonin er veik fyrir strákana
en þeir gera lokasprettinn spenn-
andi takist þeim að leggja FH að
velli í Krikanum á sunnudaginn.
Blikastelpurnar, aftur á móti,
geta gert gott betur en að hleypa
bara spennu í mótið með sigri. Eins
og strákarnir fara þær í heimsókn
til toppliðsins á útivelli en í boði
fyrir Blikastúlkur er toppsætið og
góður möguleiki á að verja Íslands-
meistaratitilinn sinn.
Halda mótinu á lífi
FH er með sjö stiga forskot á toppn-
um í Pepsi-deild karla þegar fimm
umferðir og fimmtán stig eru eftir í
pottinum. Mestan möguleika á að
ná meisturunum eiga Blikar sem eru
í öðru sæti, en þeir geta minnkað
forskotið niður í fjögur stig með
sigri í Krikanum á sunnudaginn.
Þegar liðin mættust síðast í Kópa-
vogi vann FH 1-0 iðnaðarsigur með
marki Emils Pálssonar. Sá sigur var
svolítið lýsandi fyrir FH-liðið sem
hefur varla komist úr þriðja gírnum
í sumar en er samt að rusla upp mót-
inu. Frábær varnarleikur FH hefur
unnið fyrir það sæg af leikjum og
það sama má segja um Blikana.
Líkt og í fyrri leiknum er ekki
að búast við mörgum mörkum því
þarna mætast tvö langbestu varnar-
Blikarnir
sækja að
titlunum
FH landar því sem þarf
„Ég býst við að FH klári þetta með sigri en
sé alveg jafntefli fyrir mér. FH þekkir þessa
leiki og landar vanalega því sem þarf að
landa hvort sem um ræðir jafntefli eða
sigur. Ég tel að Heimir byrji á að pressa Blik-
ana en svo fáum við að sjá þennan varnar-
leik og þetta hugarfar sem hefur einkennt
FH á tímabilinu. Blikarnir fá líklega að vera
með boltann en það er spennandi fyrir
Arnar að fara með sína stráka út í svona
leik. Það getur vel verið að Blikarnir sleppi
bara fram af sér beislinu undir lok leiks.“
Reynir Leósson
sérfræðingur Stöð 2 Sport.
Leikur tveggja varna
11 14
mörk fengin á sig
30,5
FH - breiðablik
Sunnudagur kl. 17.00
lið deildarinnar. FH er aðeins búið
að fá á sig ellefu mörk í 17 leikjum
og Blikarnir ekki nema fjórtán mörk
í jafnmörgum leikjum. Það er svo
varla á neinn hallað þegar fullyrt
er að markverðir liðanna, Gunnar
Nielsen og Gunnleifur Gunnleifs-
son, séu þeir bestu í deildinni.
Breiðablik verður að vinna leik-
inn til að eygja áfram veika von
um titilinn og líka bara til að halda
mótinu á lífi. Þó að Valur vinni sinn
leik verður FH með níu stiga forskot
með sigri að minnsta kosti þegar tólf
stig verða eftir í pottinum. Blikar
þurfa nokkuð augljóslega að skora
en það hefur verið akkilesarhæll
liðsins. Það er aðeins búið að skora
22 mörk, jafnmörg og Víkingur sem
er í sjöunda sæti.
Markalið en engin markasúpa
Áður en kemur að stórleiknum hjá
körlunum eiga stelpurnar sviðið á
laugardaginn en klukkan 14.00 á
Samsung-vellinum í Garðabæ hefst
leikurinn sem getur hreinlega ráðið
úrslitum í Pepsi-deild kvenna þegar
Stjarnan tekur á móti Breiðabliki.
Þetta eru tvö efstu liðin en Garðbæ-
ingar eru með tveggja stiga forskot á
Blika þegar þrír leikir eru eftir.
Breiðabliki dugar ekkert minna
en sigur. Jafntefli yrðu frábær úrslit
fyrir Stjörnuna því hún á eftir leiki
gegn KR og FH, mótherja sem liðið
vann samtals 7-2 í fyrri umferðinni.
Ef Stjarnan tapar bara ekki fyrir
Breiðabliki verður leiðin að titl-
inum greið fyrir Garðbæinga.
Blikar verða ekki alveg komnir
með titilinn þó að þeir vinni og
verði með eins stigs forskot því
Kópavogsstúlkur eiga eftir snúinn
útileik gegn Val í lokaumferðinni.
Valskonur mættu í Kópavoginn
og hirtu stig af Blikunum í níundu
umferðinni.
Stjarnan (38) og Breiðablik (32)
eru liðin sem hafa skorað mest í
deildinni (Valur einnig skorað 32).
Þrátt fyrir það má ekki búast við
neinum markaleik heldur frekar að
þetta ráðist á einu marki eins og síð-
ast. Því þó liðin skori duglega gegn
flestum mótherjum sínum eru þetta
liðin sem hafa fengið á sig langfæst
mörkin til þessa.
Stjarnan er búin að fá á sig aðeins
tíu mörk í 15 leikjum en Blikar ekki
nema sex mörk. Breiðablik fékk
aðeins á sig fjögur mörk í fyrra og
hefur því aðeins þurft að sækja
boltann tíu sinnum í netið í síðustu
33 deildarleikjum.
Þessi öfluga varnarlína þarf að
hafa hemil á hinni óléttu Hörpu
Þorsteinsdóttur sem mun örugg-
lega spila síðasta leik sinn fyrir
Stjörnuna í bili.
Báðir leikir verða í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 Sport HD.
Breiðablik getur haft mikil áhrif á topp
baráttu Pepsideildanna í stórleikjum helgar
innar bæði í karla og kvennaflokki. Strák
arnir geta gert toppbaráttuna aftur spennandi
og stelpurnar geta komist á toppinn.
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
Heimavöllurinn hentugur
„Það skiptir máli fyrir Stjörnuna að
leikurinn er á þeirra heimavelli. Það er
búin að vera mikil umræða fyrir leikinn um
Hörpu en ég reikna með að hún spili. Bæði
lið skora í þessum leik, hann endar aldrei
markalaus. Ég held samt að þetta verði
varnarsinnaður leikur. Jafntefli er sigur fyrir
Stjörnuna og því held ég að Garðbæingar
leggi upp með að verja markið og nýta
þá sénsa sem þeir fá og þar nýtist Harpa.
Þetta endar 1-1 sem er gott fyrir Stjörnuna
og því endar titillinn í Garðabænum.“
Helena Ólafsdóttir
sérfræðingur Stöð 2 Sport.
Leikur tveggja sókna
32 38
mörk skoruð
30,5
Stjarnan - breiðablik
Laugardag kl. 14.00
aNÍta KoM FyRSt Í MaRK
aníta Hinriksdóttir varð hlut-
skörpust í 800 metra hlaupi í U23-
flokki á móti í Brüssel sem er hluti
af Demantamótaröðinni. aníta
kom fyrst í mark á 2:03,65 mínút-
um sem er þó talsvert frá Íslands-
metinu sem hún setti á Ólympíu-
leikunum í síðasta mánuði. aníta
hljóp þá á 2:00,14 mínútum.
HELGi KoMSt Í úRSLit
Spjótkastarinn Helgi Sveinsson
keppti fyrstur Íslendinganna á
Ólympíumóti fatlaðra í Ríó í gær-
kvöldi. Helgi kastaði 53,96 metra
strax í fyrsta kasti og var lengi
vel þriðji. Hann datt svo
niður í 4. sæti en komst
samt örugglega í átta
manna úrslit. Hann
kastaði 53,45 metra
í sínu fyrsta kasti í
úrslitunum og var í 4.
sæti þegar blaðið fór í
prentun.
18
1 0 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 l A U G A r D A G U r
inkasso-deild karla
Selfoss - Fram 0-0
Hvorugu liðinu tókst að skora í
bragðdaufum leik á Selfossi. Bæði
lið sigla lygnan sjó í deildinni.
Efri
KA 42
Grindavík 41
Keflavík 30
Þór 29
Leiknir R. 27
Haukar 26
Neðri
Fram 26
Selfoss 24
Huginn 20
HK 18
Fjarðabyggð 17
Leiknir F. 15
Nýjast
Um helgina
Það helsta á Sportrásum Stöðvar 2
L11.10 Man. Utd - Man. City Sport
L13.30 Arsenal - S’ton Sport
L13.55 Real M. - Osasuna Sport2
L16.00 BMW-mótið Golfstöðin
L16.15 Stoke - Tottenham Sport4
L18.25 Barcelona - Alavés Sport3
S01.00 Cuadras vs Gonzales Sport2
S02.00 UFC: Miocic v. Overem Sport
S13.25 Bremen - Augsburg Sport
S14.50 Swansea - Chelsea Sport2
S20.25 Cowboys - Giants Sport2
S22.00 Pepsi-mörkin Sport
Pepsi-deild karla
L16.00 KR - ÍBV Alvongenvöllur
L17.00 Víkingur - Fjölnir Víkin
S17.00 Fylkir - Vík Ó. Floridanavöllur
S17.00 FH - Breiðablik Kaplakriki
S19.15 Þróttur - ÍA Þróttarvöllur
S20.00 Stjarnan - Valur Samsungv.
Pepsi-deild kvenna,
L14.00 Fylkir - FH Floridanavöllur
L14.00 Stjarnan - Breiðab. Samsung
L14.00 Valur - ÍA Valsvöllur
L15.00 ÍBV - KR Hásteinsv.
S16.00 Selfoss - Þór/KA JÁVERKv.
Inkasso-deildin
L13.00 Leiknir R. - Huginn Leiknisv.
L14.00 Þór - Grindavík Þórsvöllur
L15.00 Fjarðab. - KA Eskjuvöllur
L16.00 Keflavík - Leiknir F. Nettóv.
Olís-deild karla
L16.00 Stjarnan - Akureyri TM-höll
L16.00 ÍBV - Haukar Eyjar
S17.00 FH - Valur Kaplakriki
Olís-deild kvenna
L13.30 Stjarnan - Haukar TM-höll
L13.30 ÍBV - Grótta Eyjar
L14.00 Selfoss - Fram Selfoss
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
7
-A
F
8
0
1
A
8
7
-A
E
4
4
1
A
8
7
-A
D
0
8
1
A
8
7
-A
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K