Fréttablaðið - 10.09.2016, Síða 90
Ég er með þá reglu
að segja já við
öllum tækifærum. Ég hef
nefnilega komist að því í
gegnum árin að Ég get allt
og það er ekkert sem heftir
mig.
Fyrirgefðu hvað ég er sein! Ég er ein að snúast í þessu öllu,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir er
hún hittir blaðamann í fundarher-
bergi á Hótel Þingholti. Tilefnið er
Miss Universe fegurðarsamkeppnin
sem fram fer í Gamla bíói á mánu-
dagskvöld, en uppselt er á keppnina
sem verður mikið sjónarspil.
Miss Universe er alþjóðleg feg-
urðarsamkeppni sem var lengi í
eigu forsetaframbjóðandans og við-
skiptajöfursins Donalds Trump en
er nú í eigu umboðsskrifstofunnar
IMG Models. Að sögn Manuelu er
töluverður munur á framkvæmd
Miss Universe og Ungfrú Ísland
og ber þá helst að nefna að engar
kröfur eru gerðar til keppenda um
hæð eða þyngd.
„Þegar ég tók þátt í Ungfrú Ísland
árið 2002 var meiri fókus á útlit en
er í dag. Við erum komin á annan
stað núna, eða það vona ég í það
minnsta. Við erum ekki að pota og
klípa í stelpurnar og heimta að þær
missi svo og svo mörg kíló, eins og
var gert við mig,“ útskýrir hún.
Upphafið að ævintýrinu hófst í
desember á síðasta ári þegar Manu-
elu var boðið út á Miss Universe
keppnina í Las Vegas. „Þar, ótrú-
legt en satt, mundi fólk eftir mér frá
því að ég keppti. Ég fékk nefnilega
hræðilega matareitrun fyrir keppn-
ina og margir stóðu í þeirri trú að
mér hefði verið byrlað eitur því við
stúlkurnar borðuðum allar sama
matinn og alltaf bara á hótelinu en
ég var sú eina sem veiktist. Ég held
að saga mín hafi verið notuð sem
dæmi um hvernig megi bregðast
við ófyrirséðum vandamálum. En
þar sem sagt bera þeir hugmyndina
undir mig því þeir vildu endilega
fá Ísland aftur inn í Miss Universe
keppnina,“ útskýrir hún.
Manuela tók góðan tíma í að
íhuga tilboðið og í mars ákvað hún
loks að slá til. Líkt og áður hefur
komið fram eru engar útlitskröfur
gerðar til keppenda, einu kröfurnar,
segir Manuela, eru þær að kepp-
endur skulu vera á milli 18 og 27
ára, barnlausar og ógiftar. Þó mega
stúlkurnar eiga kærasta. „Ástæðan
fyrir því er sú að það er gríðarlega
mikil vinna sem tekur við hjá Miss
Universe. Það er mikið um ferðalög
og annað slíkt og þá þykir best að
þær sé frekar óbundnar.“
Mikill fjöldi kvenna sótti um þátt-
töku í keppninni en 21 stúlka mun
keppa um titilinn á mánudag. Það
mikilvægasta, segir Manuela, var
að velja fjölbreyttan en góðan hóp
stúlkna sem „myndi smella saman
því það mikilvægasta sem ég fékk úr
þátttöku minni í Ungfrú Ísland var
vináttan. Ég eignaðist mínar bestu
og traustustu vinkonur þar.“
Valið á íslenskri Miss Universe
fer þannig fram að tíu stúlkur fara
áfram í forval, þá er þeim fækkað
ekki verið að
pota og klípa
í stelpurnar
Miss Universe Ísland keppnin fer fram í
Gamla bíói á mánudagskvöld. Manuela Ósk
Harðardóttir fer með umboðið fyrir keppn-
ina en 21 stúlka keppir um stóra titilinn.
Manuela Ósk Harðardóttir hefur staðið í ströngu við að skipuleggja Miss Universe fegurðarsamkeppnina sem fram fer á mánu-
dag. Sjálf mun hún svo flytja til Los Angeles strax í október. FréttAbLAðið/SteFán
Dómnefndin er skipuð sex aðilum
sem allir koma að utan. Ástæðan
fyrir því, útskýrir Manuela, er sú að
hún vildi tryggja hlutlaust og fag-
legt álit. „Ísland er svo lítið og það
tengjast allir á einhvern hátt, með
þessu vildi ég tryggja að tengsl
væru ekki að þvælast fyrir og að
stúlkan sem sigrar í keppninni viti
fyrir víst að hún hafi unnið vegna
þess að hún þótti best, ekki vegna
tengsla.“
Dómnefndina skipa leikararnir
Shawn Pyfrom og Cody Kasch,
en þeir eru hvað þekktastir fyrir
hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum
vinsælu um aðþrengdu eiginkon-
urnar (Desperate Housewives),
förðunarfræðingurinn Victoria
Duke, sundfatahönnuðurinn Franz
Orban, og fyrrum Miss Universe Nia
Sanchez og Marissa Powell.
Desperate housewives-
leikarar Dæma
niður í fimm og sigurvegarinn val-
inn úr þeim hópi. Nýkrýndur sigur-
vegari flýgur svo til Bandaríkjanna
strax á fimmtudag þar sem við tekur
þriggja vikna langt ferðalag um
landið. Aðalkeppni Miss Universe
fer svo fram á Filippseyjum þann
30. janúar. Og tækifærin sem koma
í kjölfarið eru mörg, að sögn Manu-
elu. Þar á meðal er skólastyrkur til
náms í Bandaríkjunum og öflugt
tengslanet. „Ef maður skoðar sög-
una, þá fara fyrrum Miss Universe
fæstar í fyrirsætustörf heldur þeim
mun oftar í framhaldsnám. Flestar
nýta skólastyrkinn vel og starfa sem
læknar eða viðskiptafræðingar í
dag.“
Sjálf flytur Manuela til Los Ange-
les í byrjun október þar sem hún
mun hefja framhaldsnám. Námið
tvinnar saman markaðsfræði og
notkun samfélagsmiðla, en lokarit-
gerð Manuelu frá LHÍ fjallaði ein-
mitt um samfélagsmiðla og tísku.
Hvað tekur við að náminu loknu
segir Manuela algjörlega óráðið,
það fari svolítið eftir tilboðunum
sem bjóðast. „Ég er með þá reglu að
segja já við öllum tækifærum. Ég hef
nefnilega komist að því í gegnum
árin að ég get allt og það er ekkert
sem heftir mig,“ segir hún að lokum.
sara@frettabladid.is
HENSON
LAGERSALA
Aðeins 4 dag
ar eftir
lau. 10. sept. k
l.11-18, sun. 1
1. sept. kl.11-
18, mán. 12. s
ept. kl.11-18,
þri. 13. sept. k
l.11-18
Staðsetning
: Brautarho
lt 24
1 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r50 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
1
0
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
7
-D
B
F
0
1
A
8
7
-D
A
B
4
1
A
8
7
-D
9
7
8
1
A
8
7
-D
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K