Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 18
kóngurinn kominn heim
rúnar kristinsson var á föstu-
daginn ráðinn þjálfari belgíska
úrvalsdeildarliðsins Lokeren.
rúnar spilaði í sjö ár með liðinu
á sínum leikmannaferli og var
síðustu tvö tímabilin kjörinn
leikmaður ársins. Þegar Lokeren
tilkynnti um ráðninguna var sagt:
„kóngurinn er kominn heim,“
en rúnar er í gríðarlega miklum
metum hjá félaginu. Lokeren er
þriðja félagið sem rúnar stýrir en
áður þjálfaði hann kr til tveggja
Íslandsmeistaratitla og þriggja
bikarmeistaratitla. hann tók svo
við Lilleström en var rekinn þaðan
í síðasta mánuði.
Um helgina
Það helsta á Sportinu
L11.20 Sunderl. - Arsenal Sport
L13.25 Augsburg - Bayern Sport4
L13.50 Man. Utd - Burnley Sport
L14.10 Alavés - Real M. Sport3
L15.30 WGC: HSBC-mótið Golfst.
L16.20 Palace - Liverpool Sport
L16.25 Blackburn - Wolves Sport3
L16.25 Dortmund - Schalke Sport4
L17.50 F1: Tímataka í Mex Sport2
L18.40 Barcelona - Granada Sport
S13.20 Everton - West Ham Sport
S13.30 Bengals - Redskins Sport2
S15.50 So’ton - Chelsea Sport
S14.50 So’ton - Burnley Sport
S18.30 F1: Mexíkó Sport
S20.20 Falcons - Packers Sport2
Frumsýningar leikja í enska
L16.10 WBA - Man. City Sport2
L18.30 Watford - Hull Sport4
L18.30 Tottenh. - Leicester Sport3
L19.40 Boro - Bournemouth Sport2
Olís-deild karla:
L16.00 Haukar - Grótta Schenkerh.
Olís-deild kvenna:
L13.30 Grótta - Valur Framhús
L13.30 Stjarnan - Fylkir Selfoss
L14.00 Haukar - Selfoss TM-höllin
L15.00 Fram - ÍBV Schenkerh.
Domino’s-deild karla
Haukar - KR 61-94
Haukar: Hjálmar Stefánsson 14/6 fráköst/6
stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon
12/13 fráköst, Haukur Óskarsson 9, Emil
Barja 7, Kristján Leifur Sverrisson 7, Breki
Gylfason 5.
KR: Sigurður Þorvaldsson 18/7 fráköst,
Darri Hilmarsson 17, Þórir Guðmundur
Þorbjarnarson 15, Brynjar Þór Björnsson 10,
Cedick Taylor Brown 10, Pavel Ermolinskij 6,
Arnór Hermannsson 5.
Þór Þ. - Snæfell 110-85
Þór Þ.: Tobin Carberry 21/8 fráköst/5 stoð-
sendingar, Ragnar Örn Bragason 17, Emil
Karel Einarsson 14, Ólafur Helgi Jónsson
10, Halldór Garðar Hermannsson 9, Magic
Baginski 7.
Snæfell: Sefton Barrett 35/15 fráköst/5
stoðsendingar, Andrée Fares Michaelson
16, Maciej Klimaszewski 11, Viktor Marinó
Alexandersson 10.
Stjarnan - Keflavík 99-82
Stjarnan.: Tómas Heiðar Tómasson 25,
Justin Shouse 20, Devon Andre Austin
20/8 fráköst/9 stoðsendingar, Hlynur
Bæringsson 19/8 fráköst, Arnþór Freyr Guð-
mundsson 5.
Keflavík: Amin Khalil Stevens 24/14 fráköst,
Guðmundur Jónsson 13, Daði Lár Jónsson
12, Reggie Dupree 11, Davíð Páll Hermanns-
son 6, Magnús Már Traustason 4, Andrés
Kristleifsson 3.
Efri
KR 8
Stjarnan 6
Tindastóll 6
Þór Þ. 6
Keflavík 4
ÍR 4
Neðri
Grindavík 4
Haukar 2
Skallagrímur 2
Þór Ak. 2
Njarðvík 2
Snæfell 0
Fótbolti keppnistímabilið í ensku
úrvalsdeildinni hefur farið vel af
stað, en án þess þó að eitt lið hafi
stungið af. Aðeins eitt stig skilur að
fimm efstu lið deildarinnar en það
hefur aldrei áður gerst að loknum
fyrstu níu umferðum nokkurs tíma-
bils í ensku úrvalsdeildinni.
Að meðaltali hafa verið 5,75 stig
á milli liðanna í fyrsta og fimmta
sæti deildarinnar eftir níu umferðir
þegar litið er yfir 24 ára sögu ensku
úrvalsdeildarinnar. gefur það sterka
vísbendingu um hversu óvenjuleg
staða er komin upp í deildinni nú.
Bjarni guðjónsson, sérfræðingur
Stöðvar 2 Sports um enska boltann,
segir að upphaf tímabilsins í eng-
landi hafi komið sér á óvart.
„miðað við byrjun manchester
City á tímabilinu átti ég von á því
að þeir myndu hreinlega stinga af,“
segir Bjarni en eftir að City vann
fyrstu sjö leiki tímabilsins hefur
liðið nú leikið þrjá í röð án sigurs
og sex í öllum keppnum. City hefur
raunar ekki unnið leik í október-
mánuði en getur bjargað því með
sigri á West Brom á morgun.
Ekki eins og á Spáni
„Það hefur komið hikst á leik manc-
hester City. Pep guardiola hefur
gert mjög miklar áherslubreytingar
á liðinu síðan hann tók við í sumar
og það er viðbúið að það gerist ekki
vandræðalaust. Breytingin er svo
mikil hjá City að ég teldi líklegt
að það væri líklegra til árangurs
á næsta tímabili en þessu,“ segir
Bjarni enn fremur.
guardiola náði frábærum árangri
með Barcelona og Bayern münchen
á sínum tíma en Bjarni bendir á að
veruleiki toppliðanna í englandi sé
annar en í Þýskalandi og Spáni.
„City þurfti sjálfsmark á loka-
mínútunum í fyrsta leiknum gegn
Sunderland til að vinna þann leik.
og Sunderland [sem er í botnsæti
deildarinnar] getur ekki neitt,“ segir
Bjarni. „Lið eins og Barcelona og
Bayern fara auðveldlega í gegnum
svona leiki sínum deildum, sérstak-
lega á heimavelli.“
Áhrifin að ná í gegn
guardiola er þó ekki eini nýi stjór-
inn sem er að láta til sín taka í ensku
úrvalsdeildinni. Tottenham og
Liverpool eru bæði með stjóra sem
hafa ekki verið lengi í starfi en nú er
áhrifa þeirra mauricio Pochettino
og Jürgens klopp fyrst farið að gæta
að nokkru ráði.
„Þeirra breytingar eru byrjaðar
að skila árangri. Bæði lið hafa verið
að gera miklu betur en í mörg ár og
geta gert góða hluti,“ segir Bjarni.
Antonio Conte tók við Chelsea í
sumar og segir Bjarni að staða þeirra
bláklæddu sé að því leyti svipuð og
hjá hinum ljósbláu í manchester.
„Þar er nýr stjóri á ferð með mikið
breyttar áherslur. munurinn hins
Hverjir ætla að taka af skarið?
Eitt stig skilur að fimm efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar. Þessi lið hafa byrjað áberandi best og eru í dag
líklegust til að berjast um titilinn. En hvaða lið úr þessum hópi er líklegast til að fara alla leið?
Stjarnan og KR með fullt hús á toppnum
Rekinn út úr húsi! Reggie Dupree, leikmaður Keflavíkur, fékk reisupassann í leik liðsins gegn Stjörnunni í gærkvöldi og var rekinn út úr húsi. Eftir
atvikið sem sést hér á myndinni þar sem Justin Shouse, leikmaður Stjörnunnar, braut á Reggie tók sá síðarnefndi svitabandið af Justin og grýtti því
upp í stúku. Dómararnir voru ekki lengi að senda hann í sturtu en Stjarnan vann leikinn örugglega og er með KR á toppnum. FRéTTABLAðið/ANTON BRiNK
Gott dæmi er
sigurinn á Burnley,
þar sem Arsenal spilaði ekki
vel en vann samt. Það er ekki
góðs viti fyrir hin liðin.
Bjarni Guðjónsson
1. sæti
Manchester City
20
stig
16/17
21
stig
15/16
17
stig
14/15
2. sæti
Arsenal
20
stig
16/17
19
stig
15/16
14
stig
14/15
3. sæti
Liverpool
20
stig
16/17
13
stig
15/16
14
stig
14/15
4. sæti
Chelsea
19
stig
16/17
11
stig
15/16
23
stig
14/15
5. sæti
Tottenham
19
stig
16/17
14
stig
15/16
11
stig
14/15
vegar er að manchester City er með
sterkari hóp og ræður betur við
áföll. Ég geri ekki ráð fyrir að þetta
verði árið sem Chelsea verði meist-
ari, en liðið verður engu að síður í
baráttu um fjögur efstu sætin.“
Arsenal tapaði fyrir Liverpool í
sjö marka leik í fyrstu umferð, 4-3,
en hefur síðan þá ekki tapað leik.
„Samt hefur Arsenal ekki verið
að spila sérstaklega vel. Ég reikna
með því að Arsenal eigi eftir að spila
betur eftir því sem liður á tímabilið.
gott dæmi er sigurinn á Burnley [í
byrjun október], þar sem Arsenal
spilaði ekki vel en vann samt. Það er
ekki góðs viti fyrir hin liðin í topp-
baráttunni.“
Held með Mourinho
manchester united byrjaði vel á
tímabilinu undir stjórn José mour-
inho en hefur unnið aðeins einn af
síðustu sex deildarleikjum. Bjarni
reiknar ekki með united í titilbar-
áttu vetrarins. „Það er of langt frá
efstu liðunum til þess. en ég reikna
með liðinu í baráttu um meistara-
deildarsæti,“ segir Bjarni þrátt fyrir
mótlætið sem mourinho hefur lent
í undanfarna daga og vikur.
„Ég er litaður af því að ég held
með honum. Ég vona svo innilega
að þetta gangi eftir hjá honum. en
ég geri mér grein fyrir því að ég er
líka í þversögn við sjálfan mig með
því að segja að toppbaráttan verði
svipuð og nú en að united blandi
sér í baráttu um meistaradeildar-
sæti. en þannig er bara deildin
þetta árið, hún virðist vera nokkuð
óútreiknanleg,“ segir Bjarni í léttum
dúr. eirikur@365.is
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 l A U G A r D A G U r18 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sporT
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-2
D
5
0
1
B
1
C
-2
C
1
4
1
B
1
C
-2
A
D
8
1
B
1
C
-2
9
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K