Fréttablaðið - 29.10.2016, Síða 24
Fjögur nýleg dæmi eru um það að
frambjóðendur hafi verið færð-
ir neðar á lista vegna útstrikana
kjósenda. Þetta gerðist síðast
árið 2009 þegar Guðlaugur Þór
Þórðarson færðist neðar á lista
Sjálfstæðis flokksins í Reykja-
vík suður. Sama ár færðist Árni
Johnsen neðar á lista flokksins í
Suðurkjördæmi.
Reglan um breytingu á röðun
frambjóðenda er nokkuð flókin.
Í umfjöllun Fréttablaðsins er
stuðst við lýsingu Þorkels Helga-
sonar á vef landskjörstjórnar í
greinargerð hans um kosning-
arnar 2003.
Í kosningalögum er gert ráð
fyrir að röð frambjóðenda ráðist
af samanlagðri stigagjöf hvers
frambjóðanda. Stigin fær hver
þeirra af stöðu sinni á listanum
að teknu tilliti til breytinga kjós-
enda. Í kosningalögum er talað
um atkvæði og atkvæðabrot. Til
einföldunar verður talað um stig
í þessari umfjöllun. Þeir fram-
bjóðendur sem hafa flestu stigin
fá þingsætin.
Til þess að gæta hlutleysis í
umræðunni velur Fréttablaðið
að taka ekki dæmi af neinu fram-
boðanna í kosningunum núna.
Þess í stað ímyndum við okkur
að listi Njálunga bjóði fram.
Stigin sem frambjóðendur fá
ráðast af því hversu marga menn
listinn fær kjörna. Ef listi Njál-
unga fengi þrjá menn kjörna eru
sex efstu mönnum á listanum
reiknuð stig. Njáll Þorgeirsson,
efsti maður á listanum, fær sex
stig og Helga Njálsdóttir, sem er
í sjötta sæti listans, fær eitt stig.
Undantekningin er ef listi fær
einungis eitt þingsæti í kosn-
ingunum. Þá eru þremur efstu
mönnum listans reiknuð stig, en
ekki aðeins tveimur efstu.
Samkvæmt kosningalögum er
kjósanda heimilt að strika yfir
nöfn eða rita sætisnúmer að
eigin vali framan við nöfn fram-
bjóðenda. Einungis má gera
breytingar á þeim lista sem kjós-
andinn hefur krossað við, annars
verður atkvæðaseðillinn ógildur.
Látum sem svo að kjósandi
sé eindreginn stuðningsmaður
Hallgerðar langbrókar, sem er
í fjórða sæti á lista Njálunga,
og sonar hennar, Grana Gunn-
arssonar, sem er í níunda sæti.
Þessi kjósandi strikar þá yfir
Bergþóru og setur Hallgerði
í efsta sæti en Grana í fjórða
sæti. Svo strikar kjósandinn yfir
nafn Gunnars, eins og gert hefur
verið í þriðju myndinni hér til
hliðar.
Það þarf mikla samstöðu á
meðal kjósenda til þess að ná
fram breytingum á listum og
breytingarnar geta aldrei orðið
miklar. Í hæsta lagi er raunhæft
að ná að færa frambjóðanda upp
um eitt sæti og þá þann næsta
fyrir ofan niður um sæti.
Til þess að ná fram þeirri
breytingu að víxla röð á tveim-
ur frambjóðendum sama lista
er öruggast að strika þann út
sem á að færast niður og merkja
1 við þann sem kjósandi ætlar
að lyfta upp. Hlutfall kjósenda
þarf að vera hið minnsta jafnt
1/(r+1) þar sem r er svokölluð
röðunartala. Sú tala er jöfn tvö-
faldri tölu þingsæta listans, en
3 ef listinn fær aðeins eitt sæti.
Þessir útreikningar miðast þó
við að aðrir kjósendur, einkum
þeir sem vilja koma í veg fyrir
víxlunina, bregðist ekki við.
Kjósendur hafa fimm
sinnum breytt listum
Mikla samstöðu þarf á meðal kjósenda til þess að þeir geti breytt röð
frambjóðenda á lista. Leita þarf allt til ársins 1946 til þess að finna
dæmi um að þingmaður hafi dottið út af Alþingi vegna vilja kjósenda.
Hvernig má umraða á listum
Listi Njálupersóna
Sýndir eru tíu efstu menn
Hverjir þessara
frambjóðenda munu skipa
þau sæti sem listinn fær?
Það byggist á samanlagðri
stigagjöf hvers frambjóðanda.
Stigin fær hver þeirra af stöðu
sinni á listanum að teknu tilliti til
breytinga kjósenda.
Í kosningalögum er talað um
atkvæði og atkvæðabrot en
ekki stig. Stigin sem hér um
ræðir eru jafngild en einfaldari í
framsetningu.
Þeir fá þingsætin sem flest fá
stigin.
Stigagjöf
Ef kjósandi gerir engar
breytingar
Stigagjöfin fer eftir því
hve marga menn listinn
fær kjörna
(hvort sem er kjördæmis-
eða jöfnunarsæti).
Segjum að listi Njálunga fái
3 menn kjörna.
Þá eru þeim sex efstu á
listanum reiknuð stig, þeim
efsta 6 og þeim síðasta 1.
Þessir frambjóðendur eru
auðkenndir með gulu.
Stigagjöfin hér miðast við
að kjósandi hafi engar
breytingar gert.
almennt:
Þeim efstu, sem manna tvöfalda tölu þingsæta listans (röðunartala), eru
reiknuð stig sem lækka um eitt að ofan talið þar til sá síðasti þeirra fær 1 stig.
fái listi aðeins eitt sæti eru þó þremur efstu mönnum listans reiknuð stig,
ekki aðeins tveimur.
LeyfiLegar breytiNgar á LiSta
Kjósandi má strika yfir nöfn eða rita sætisnúmer að eigin vali framan við
nöfn frambjóðenda.
einungis má gera
breytingar á þeim lista
sem kjósandinn hefur
krossað við (ella verður
seðillinn ógildur).
Kjósandinn er eindreginn
stuðningsmaður
Hallgerðar langbrókar og
sonar hennar Grana.
Þess vegna strikar
kjósandinn yfir Bergþóru
og setur Hallgerði í efsta
sæti en lyftir Grana í
fjórða sæti.
ennfremur hefur
kjósandinn ákveðið að
strika yfir nafn Gunnars.
Breytt röð og afleiðingin í
breyttri stigagjöf er sýnd á kjörseðlinum.
allar breytingar neðan við gullituðu nöfnin hafa engin áhrif, en þær skaða
heldur ekki.
Hverju er rauNHæft að Ná fram?
Það þarf mikla samstöðu til að ná fram breytingum á listum.
Það er í hæsta lagi
raunhæft að ná að færa
frambjóðanda upp um
eitt sæti og þá þann
næst fyrir ofan niður
um sæti.
Kjósandinn hér leggur
kapp á að koma Hallgerði
upp fyrir Skarphéðin.
árangursríkasta leiðin
til þess er að strika
Skarphéðin út (þannig að
hann fái 0 stig) og setja
Hallgerði í efsta sæti (svo
að hún fái hámark stiga, 6
stig).
mun þessi víxlun á
Hallgerði og Skarphéðni
ná fram að ganga?
já, ef minnst 14,3% kjósenda listans gera þessa sömu breytingu á
kjörseðlum sínum (sjá töflu hér til hliðar).
Og því aðeins að aðrir kjósendur, einkum stuðningsmenn Skarphéðins,
leiki enga mótleiki.
N
Listi Njálunga
Njáll Þorgeirsson
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Skarphéðinn Njálsson
Hallgerður langbrók
Kári Sölmundarson
Helga Njálsdóttir
Hróðný Höskuldsdóttir
Gunnar á Hlíðarenda
Grani Gunnarsson
Þorkatla Gissurardóttir
...
Röð á
lista
N
Stiga-
gjöfListi Njálunga
1 Njáll Þorgeirsson 6
2 Bergþóra Skarphéðinsdóttir 5
3 Skarphéðinn Njálsson 4
4 Hallgerður langbrók 3
5 Kári Sölmundarson 2
6 Helga Njálsdóttir 1
7 Hróðný Höskuldsdóttir 0
8 Gunnar á Hlíðarenda 0
9 Grani Gunnarsson 0
10 Þorkatla Gissurardóttir 0
... ... ...
Röð á
lista
N
Stiga-
gjöfListi Njálunga
2 Njáll Þorgeirsson 5
Bergþóra Skarphéðinsdóttir 0
3 Skarphéðinn Njálsson 4
1 1 Hallgerður langbrók 6
5 Kári Sölmundarson 3
6 Helga Njálsdóttir 2
7 Hróðný Höskuldsdóttir 0
8 Gunnar á Hlíðarenda 0
9 4 Grani Gunnarsson 0
10 Þorkatla Gissurardóttir 0
... ... ...
Röð á
lista
N
Stiga-
gjöfListi Njálunga
2 Njáll Þorgeirsson 5
3 Bergþóra Skarphéðinsdóttir 4
Skarphéðinn Njálsson 0
1 1 Hallgerður langbrók 6
4 Kári Sölmundarson 3
5 Helga Njálsdóttir 2
6 Hróðný Höskuldsdóttir 0
7 Gunnar á Hlíðarenda 0
8 Grani Gunnarsson 0
9 Þorkatla Gissurardóttir 0
... ... ...
Hafa breytingar á listum haft áhrif?
Í þingkosningum 1946 færðist
Björn Ólafsson niður um
sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík,
en reglur voru þá
aðrar en nú. Við
þetta féll Björn út
af þingi en sá næsti
fyrir neðan, Bjarni
Benediktsson (eldri),
fór inn í staðinn.
Þetta er eina dæmið úr
listakosningum til Alþingis um að
frambjóðandi hafi misst þingsæti
vegna breytinga kjósenda.
Á síðustu árum hafa frambjóð-
endur fjórum sinnum verið færðir
neðar á lista með útstrikun. Það
hefur þó ekki leitt til breytinga á
skipan þingsins.
Í kosningum 2007 var árni
johnsen færður niður um
sæti á lista Sjálfstæðis-
manna í Suðurkjördæmi
vegna 21,3% útstrikana.
Hann færðist líka niður
um sæti árið
2009 en þá var
útstrikunar-
ígildið 18,9%.
Í kosningunum
2007 færðist
björn bjarnason
niður um sæti á
lista Sjálfstæðis-
manna í Reykjavíkur-
kjördæmi
suður með
18,3% út-
strikunum,
eða ígildi
þeirra.
guðlaugur
Þór Þórðarson var
líka færður niður um eitt sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
suður í kosningum 2009, fyrstu
alþingiskosningunum eftir
bankahrunið. Þá strikuðu
23,6% yfir nafn hans.
Breytingar á listum hafa
líka veitt þingmönnum að-
hald þótt það hafi ekki raskað
röðun.
✿ Lágmarkshlutfall sem þarf til víxlunar sæta á lista
virkasta leiðin er að strika þann út
sem á að færast niður og merkja
1 við þann sem lyfta skal upp. Sbr.
dæmið um Hallgerði og Skarphéðin
hér til hliðar.
gera má ráð fyrir að þetta hlutfall
kjósenda þurfi að vera hið minnsta
jafnt 1/(r+1), þar sem r er svokölluð
„röðunartala“ eins og hún heitir
í kosningalögum. Hún er jöfn
tvöfaldri tölu þingsæta listans, en 3
ef listinn fær aðeins eitt sæti.
Lágmarkshlutfall kjósenda til
að ná fram víxlun með útstrikun
frambjóðanda og merkingu næsta
fyrir neðan í 1. sæti. Dæmið um
Hallgerði og Skarphéðin er sýnt gult:
Númer sætis Lágmarkshlutfall
á lista kjósenda
1 25,0%
2 20,0%
3 14,3%
4 11,1%
5 9,1%
6 7,7%
Þessir útreikningar miðast við að
aðrir kjósendur, einkum þeir sem
vilja koma í veg fyrir víxlunina,
bregðist ekki við.
1
r+1x≥
5
14,3%
sinnum hafa frambjóð
endur verið færðir neðar á
lista með útstrikun.
er lágmarkshlutfall
útstrikana til að framkalla
víxlun sæta á lista þar sem
röðunartalan r er tvöfaldur
fjöldi þingmanna listans.
kjósenda lista þurfa að gera sömu útstrikunina til að víxla fram
bjóðendum í þriðja og fjórða sæti ef listinn fær þrjá menn kjörna.
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@365.is
Kosningar
2016
2 9 . o K t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r24 h e L G i N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-6
8
9
0
1
B
1
C
-6
7
5
4
1
B
1
C
-6
6
1
8
1
B
1
C
-6
4
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K