Fréttablaðið - 29.10.2016, Side 26

Fréttablaðið - 29.10.2016, Side 26
Leifur Örn fjallaleiðsögu-maður er nýkominn heim frá Norður-Afríku og er að leggja af stað til Nepal þegar hann er króaður af í viðtal. Nú stendur hann brátt á fimmtugu og það gefur tilefni til að líta um öxl og líka fram á veg. „Ég er meira og minna í leiðsögn, síðustu árin mikið í háum fjöllum og erfiðum leiðum, á Grænlandsjökli, á pólunum, í janúar síðastliðnum fór ég til dæmis bæði á Suðurpólinn og hæsta fjall Suðurskautslandsins. Það stóð til að ég færi aftur þangað núna í desember en það verður ekki og ég er feginn því. Það er kærkomið bæði fyrir mig sjálfan og fjölskylduna að ég sé aðeins heima.“ Þú ert fjölskyldumaður. „Já, ég á konu, Sigrúnu Hrönn Hauksdóttur, og börn sem eru orðin stálpuð, það yngsta er ellefu ára. Ég hef gegnum tíðina unnið mikið frá fjölskyld- unni. Leiðsögnin er eins og togara- sjómennska. En það hafa komið tímabil sem ég hef verið alveg heima hluta úr árinu, og unnið á Veður- stofunni eða í Björgunarskólanum.“ Hvaðan kemur þér áhuginn á fjallamennsku? Ætli Tinni í Tíbet eigi ekki sinn þátt í honum. Þegar ég fór á Everest tók ég þá bók með! Mér hefur alltaf þótt ævintýraljómi yfir fjallgöngum og ferðalögum sem þarf að hafa fyrir. Á æskuheimilinu í Kópavogi voru keyptar bækur um það sem gerðist fréttnæmt á hverju ári fyrir sig, ég staldraði alltaf við myndir af fjallaklifrurum, pólför- um og fólki að sigla skútu kringum hnöttinn. Ég var líka ungur þegar ég fór að gista í snjóhúsi í garðinum og fara í gönguskíðaferðir. Svo hafa ferðirnar lengst og fjöllin hækkað.“ Leifur Örn var meðal þeirra sem stofnuðu Íslenska fjallaleið- sögumenn árið 1993. Þá hafði hann verið að leiðsegja erlendum ferðamönnum á sumrin og hélt því áfram. „Síðustu ár hef ég svo töluvert verið með Íslendinga í ævintýraferðum erlendis og þeim ferðum fjölgar á næstu árum. Nú er ég til dæmis nýkominn frá Marokkó með hóp. Við fórum fyrstu vikuna í október, þá er hitastigið orðið bæri- legt í Marokkó og ágætur sumarauki fyrir Íslendinga. Verðlagið er lágt þarna og það er ævintýri að ganga um Atlasfjöllin. Þar búa Berbar og þótt þeir séu helmingur þjóðarinnar þá búa þeir afskekkt og tala annað tungumál en Arabarnir. Í efstu þorp- Ferðirnar hafa lengst og fjöllin hækkað Leifur Örn Svavarsson fjallaleiðsögumaður lifir ævintýralegu lífi. Hann hefur gengið á heimskautin bæði, hæsta tind jarðar og á efstu fjöll í öllum álfum. Nú er hann á leið í grunnbúðir Everest, eftir áramót ætlar hann á Aconcagua,  hæsta fjall Suður-Ameríku og síðan á Kilimanjaro. Leifur Örn á fullu að pakka niður heima í stofu daginn fyrir brottför til Nepal. FréttabLaðið/ViLheLm Leifur Örn hefur klifið hæstu fjöll hverrar heimsálfu Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ↣ þegar ÍSLendingar koma Spyrja þeir: Hva, eigum við að borða Í Skugga? 8.848m mouNt eVerest North Cole Route fyrstur Íslendinga 6.961 m acoNcagua 6.194 m DeNaLi um býr fólk enn í leirkofum og það er án samgangna í tvo mánuði á ári vegna snjóa. Okkur er því kippt í allt aðra menningu og veðurfar en við þekkjum að heiman en mataræðið er örugglega nær markmiðum Manneldisráðs en margt sem við borðum dags daglega, mikið af grænmeti og ávöxtum. Í hádeginu er breitt úr dýnum til að setjast á og matast, þær eru yfirleitt í skugga en þegar Íslendingar koma spyrja þeir: Hva, eigum við að borða í skugga? þá eru dýnurnar færðar í sólina!“ Sigrún, eiginkona Leifs Arnar, er ferðagarpur líka og vinnur hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. „Sigrún var kennari til margra ára. Lærði svo mannfræði og þekkir til ýmissa þjóðflokka svo það er kær- komin viðbót þegar hún kemur með í ferðir,“ lýsir hann og segir þau hjón ætla saman í spennandi ferð í haust, í tilefni af fimmtugsafmæli hans. „Ég er að fara til Nepal í gönguferð upp í grunnbúðir Everest með tólf manna hóp, það er ein af fallegustu gönguleiðum heims. En þegar henni lýkur ætlar  Sigrún að koma út og við ætlum að hjóla saman aðra fal- lega leið um Nepal. Fara með reið- hjólin upp í 5.400 metra hæð með eins lítinn farangur og við getum, einar hreinar nærbuxur hvort svo við getum skolað hinar og búið! Og kaupum okkur  bara mat á te- og kaffihúsum.“ Er ekki hætta á háfjallaveiki þegar þið eruð komin í svona mikla hæð? „Jú, það verður að fara varlega í svona hæð og þó ég hafi verið í fjallabröltinu þá er það konan mín sem þolir hæðina betur en ég. Hún kom með mér í efri grunnbúðir Ever est þegar ég var á leið á fjallið, þær eru í 6.500 metra hæð. Þar komst ég ekki úr sporunum en hún spurði bara hvað væri að mér! Hinir fjallamennirnir gerðu grín að þessu og spurðu hvort það væri ekki ráð- legra að hún héldi áfram en ég skriði niður aftur og færi heim. En það þarf ekki bara að aðlagast vel, heldur líka að hafa þessa sterku þrá sem drífur mann áfram í gegnum allt.“ Aðrir spennandi tindar sem hann hefur staðið á 5.895 m KiLimaNjaro 5.642 m eLbrus 4.892 m mt. ViNsoN 4.884 m carsteNsz PyramiD 7.134 m PeaK LeNiN 8.202 m cho oyu 4.809 m mt. bLaNc 4.167 mt. touPcaL 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -6 3 A 0 1 B 1 C -6 2 6 4 1 B 1 C -6 1 2 8 1 B 1 C -5 F E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.