Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 28
Í veðravíti á Vatnajökli
Hvar hefur þú komist í hann krapp-
astan? „Ég hef alltaf reynt að forðast
að komast í hann mjög krappan og
vil gera það framvegis. En eitt sinn
kom beiðni frá Ítala um leiðsögn yfir
þveran Vatnajökul í febrúar. Ég taldi
það ekki nokkurt vit, þekkjandi
veðravítið sem þar getur verið á
þeim árstíma. Eftir dálítið þóf lét ég
þó tilleiðast að fara með honum og
tveimur vinum hans og við lögðum
upp frá Kverkfjöllum í vikuferð.
Þrátt fyrir að ég hafi aldrei fegrað
hlutina fyrir þeim þá höfðu þeir
ekki reiknað með að vera lengst af
ferðinni eins og inni í jólakúlu með
snjó og að veðurhæðin yrði þannig
að tjaldgrindur brotnuðu og sleð-
arnir héldust ekki á réttum kili,
hvað þá að við yrðum að leita skjóls
í sprungum og grafa okkur í fönn.
En allur þessi pakki fylgdi með.
Stakkurinn minn var svo ísaður eitt
kvöldið að í stað þess að taka hann
inn í tjald og láta hann þiðna ákvað
ég að fara í hann eins og klakabrynju
um morguninn.
Ég hafði farið að kenna fjalla-
mennsku á Höfn nokkrum dögum
áður og horft úr flugvél á Breiða-
merkurjökul og Skeiðarárjökul
alveg fagurdjúpbláa og snjólausa,
ég hugsaði: þar fór flóttaleiðin. Svo
ég fór Öræfajökulsleiðina með Ítal-
ina og komst með þá í skjól undir
Hvannadalshnúk í vestanátt. Við
höfðum upplifað mikinn veður-
ham á köflum og allt sem við vorum
með var ísað og eins og snjóboltar,
þar á meðal áttavitinn. Ég segi við
þá að þó veðrið sé gott þarna undir
Hnúknum ætli ég ekki með þá upp á
topp, heldur taka upp nesti og halda
svo áfram. „Ef þú bara kemur okkur
lifandi niður af þessu fjalli þá erum
við þakklátir,“ sagði sá sem mest
hafði nauðað um að fara. Þeir hafa
verið í sambandi við mig síðan og
senda mér alltaf myndir úr ferðinni,
allar í móðu!“
Kannski verður þessum myndum
brugðið upp í afmælisstundinni
sem Leifur Örn ætlar að halda
3. desember, þegar hann verður
fimmtugur. Hann er búinn að leigja
Austurbæ undir myndasýningu
og ætlar að bjóða þeim sem hafa
gengið með honum gegnum tíð-
ina. „Þetta er algerlega óundirbúið
ennþá, myndirnar í pappakössum
og enginn farinn að fá boðskort,“
segir hann afsakandi. Strax eftir ára-
mótin er hann að fara á hæsta fjall
Suður-Ameríku, Aconcagua, með
hóp Íslendinga og í febrúar ætlar
hann á Kilimanjaro, hæsta fjall Afr-
íku. „Það er opið í þá ferð ennþá hjá
Íslenskum fjallaleiðsögumönnum!“
auglýsir hann. „Síðan ætla ég í smá
frí með konunni minni. Hana langar
að ganga Vasagönguna í Svíþjóð, 90
kílómetra skíðagöngu, og þó ég sé
ekki vanur að ganga á þvengmjóum
skíðum í einhverju skíðaspori hlýt ég
að lifa það af!“
Grænland er eitt af eftirlætislönd-
um Leifs Arnar. „Við höfum verið
með eina ferð yfir Grænlandsjökul
í mörg ár, ég hef verið svo lánsamur
að hafa farið nokkrum sinnum,
meira að segja í 29 daga ferð með
indverska sjóherinn sem var að æfa
sig fyrir ferð á Suðurpólinn, það
ferðalag væri efni í heilt viðtal,“ segir
hann. „Við förum frá austri til vesturs
yfir jökulinn, frá Angmagssalik-
héraði, eins og Nansen gerði þegar
hann fór fyrstur yfir jökulinn 1888.
En veðurbreytingarnar í heiminum
hafa áhrif á allt. Við erum orðnir svo
hræddir við leysinguna sem er á jökl-
inum þegar fer að vora og förum um
20. apríl, ef veður leyfir, sem þýðir
að hæðin yfir jöklinum er ekki orðin
eins sterk og hún verður yfir sumarið.
Ég var einn og hálfan mánuð á Græn-
landi í sumar og allan júní og fram í
ágúst var stilla og bjartviðri. Áður
fóru fyrstu haustlægðirnar að snerta
Grænland í byrjun september en nú
eru þær farnar að koma um miðjan
ágúst. Mér finnst Grænland ákaflega
heillandi, hef verið mikið þar og náð
að heimsækja nánast öll byggð ból.
Austurströndin er í mestu uppáhaldi.
Þar eru tindarnir hvassastir, jöklarnir
fram í sjó og menning íbúanna ein-
stök.“
Á heilögu svæði í háfjöllunum
Er eitthvað sem hefur snortið þig
meira en annað á þínum ferðum?
Mér finnst hrífandi hvernig mann-
líf og menning þrífst í köldum og
hrjóstrugum löndum. Ég man eftir
gönguskíðaferð um páska á austur-
strönd Grænlands, við löbbuðum
upp á heiði til að horfa á ísjakana í
Chalmerlick-firðinum og eftir bara
smástund var maður gegnfrosinn
í fínu dúnúlpunni og einangruðu
vettlingunum, „Ah, nú förum við
inn aftur í hlýjuna,“ gátum við sagt.
En tilfinningin um að fólk hafi búið
þarna í gegnum tíðina og stundi
veiðimennsku þar enn í dag var
mögnuð. Eða að ganga um heilaga
svæðið í háfjöllunum í Nepal þar
sem fólkið umgengst náttúruna af
svo mikilli virðingu að það tekur
ekki eitt einasta líf. Heggur ekki einu
sinni lifandi hríslur til að brenna í
ísköldum húsunum sínum, heldur fá
þær að vaxa í friði. Það kyndir með
dauðum kvistum og jakuxataði og
slátrar engu heldur ræktar kartöflur
og annað grænmeti sér til matar.
Lífsbaráttan í þessu hrjóstruga og
fallega umhverfi orkar sterkt á mig.
Ég hlakka til núna um páskana,
þá ætlum við að fara fyrstu ferðina
á Inkaslóðir í Perú. Sambýli náttúru
og manns á slíkum svæðum er alltaf
heillandi.“
Í huganum sér maður fyrir sér
heimskautafara og háfjallagarpa,
veðurbarða og rúnum rista eftir
fangbrögð við óblíða náttúru, en
Leifur Örn er eins og sumardrengur
á leið í sveit, að frátöldu skegginu.
Hverju sætir það? Hann hlær. „Ég
leit nú út eins og talibani bara í gær
því bæði hár og skegg var orðið svo
mikið en svo var ég klipptur stutt.
Kem ekki heim aftur fyrr en í lok
nóvember og þessi snyrting á að
duga þangað til. En ég tel að stress-
leysið á fjöllum fari vel með mig.
Þó að gönguferðir geti verið líkam-
lega krefjandi þá eru þær í rauninni
slökun í leiðinni. Það er gott að vera
í aðstæðum þar sem maður er bara
að takast á við daginn í dag og þarf
ekki að hugsa um átján hluti í einu
og vera með ótal margt á döfinni
eins og í byggð.“
Leifur Örn er meðal reyndustu
leiðsögumanna Íslands. Hann
hefur farið á hæstu tinda allra
heimsálfanna og flesta oft. Suður-
póllinn kom við sögu fyrr í við-
talinu, Norðurpólinn hefur hann
sigrað líka. Þó leist honum ekki á
blikuna. „Þegar ég flaug yfir ísinn á
Norðurheimskautinu og sá hvernig
þessa fljótandi íshellu rekur saman í
hryggi og gliðnar sundur í sprungur
þá hugsaði ég að þetta væri engum
fært nema fuglinum fljúgandi – en
svo gekk allt vel."
Þú hefur greinilega dómgreindina
og heppnina með þér.
„Já, en maður má aldrei sýna and-
varaleysi og hugsa að maður komist
eitthvað á heppni eða fyrri afrekum,
þá er hætta á mistökum. Ég er nátt-
úrlega með gott GPS-tæki en glími
við nýtt vandamál því skjárinn á
því hefur minnkað og stafirnir líka!
Það eru heilmikil viðbrigði að þurfa
að byrja á að setja á sig gleraugu til
að sjá á tækið, ég tala nú ekki um í
vitlausu veðri, þegar maður hefur
áður komist upp með að vinna úr
aðstæðum jafnóðum. Það þýðir
líka að maður verður að undirbúa
sig betur áður en lagt er af stað.“
Með hóp á leið á Aconcagua, hæsta fjall Suður-Ameríku. Sérkennilegar snjóstrýtur, „Penitendes“, einkenna svæðið.
Lítil sjoppa við göngustíg í Atlasfjöllum sem Leifur Örn gengur um í Marokkóferðunum.
Fólk í þorpinu Sugapa í Papúa Nýju-Gíneu sem gengið er um á leið á Carstensz Pyramid, hæsta fjall Eyjaálfu. Litli drengurinn
ber typpahlíf, að sið karlmanna svæðisins, þó hún sé reyndar ekki í réttum skorðum.
Á leið á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku.
Það er gott að vera í
aðstæðum Þar sem
maður er bara að
takast á við daginn
í dag og Þarf ekki að
hugsa um átján hluti
í einu.
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-4
F
E
0
1
B
1
C
-4
E
A
4
1
B
1
C
-4
D
6
8
1
B
1
C
-4
C
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K