Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 32
Ma m m a f a n n til með fólki sem glímdi við kvíða, áhyggjur og vanlíðan – en kunni ekki að rétta því hjálp nema með þeirri aðferð sem hún sjálf hafði notað. Henni þótti því ekkert sérstak- lega athugavert við það að smygla róandi lyfjum til Sonna á Litla- Hrauni – eða að minnsta kosti lét hún sig hafa það þegar hann grát- bað um þau. En að því kom að hún gat ekki staðið við loforð sitt um að koma til hans lyfjum, hún treysti sér ekki í heimsóknina sem búið var að skipuleggja. „Ég er eitthvað svo slöpp, komin með bullandi mígreni og ég treysti mér ekki til að fara á Litla-Hraun á morgun.“ „En verður Sonny ekki svekktur – ég var búin að lofa að lána honum plötuna sem þið gáfuð mér í jólagjöf og ég var líka búin að kaupa kol til að teikna með.“ „Endilega farðu bara ein, Halla … það er of seint fyrir greyið að skrá einhvern annan í heimsókn og ömurlegt fyrir hann ef enginn kemur á heimsóknardegi.“ Ég samþykkti það enda hafði ég oft farið með mömmu og ég var farin að þekkja ferlið. Vanalega fórum við með Akraborginni til Reykjavíkur, þaðan sem við tókum rútuna frá BSÍ á Litla-Hraun. Alltaf vorum við með einhvern glaðning með okkur, bækur, liti, pappír, sæl- gæti eða annað sem hann hafði beðið um. „Ertu þá ekki til í að gera mér greiða?“ spurði mamma. „Hvað?“ „Ég var búin að lofa Sonna að fara með róandi lyf til hans. Hann er með svo mikinn kvíða þarna inni- lokaður. Það er enginn geðlæknir og sálfræðingurinn sést varla.“ Ég vissi ekki að þetta hefði staðið til og mér þótti fyrirspurnin óþægileg. Þegar ég svaraði engu hélt mamma áfram: „Hvernig á hann að geta komið til baka betri maður þegar það er ekk- ert gert fyrir hann?“ Það kom hik á mig og ég spurði hvers vegna hann fengi ekki lyfin í fangelsinu. „Þeir vilja ekki leyfa honum það því þeir skilja ekki hvað honum líður illa. Hann hefur alla tíð glímt við kvíða og þegar hann er verstur missir hann stjórn á sér og er settur í einangrun sem hann hatar og vítahringurinn verður enn verri. Hann getur eiginlega ekki beðið eftir þessu því hann er líka í skuld við strák sem situr inni með honum og hann er dauðhræddur við. Hann er búinn að hóta að berja Sonna ef hann borgar ekki með róandi.“ Mamma sótti appelsínugula dós í veskið sitt sem innihélt litlar hvítar töflur. Ég áttaði mig á því að þetta væru Dísur, sem ekki einungis mamma hafði brutt heldur hús- mæður hér og þar um bæinn. Ég vissi líka að þær voru misnotaðar af fíklum og þóttu ágætis gjaldmiðill á Litla-Hrauni. „Settu þetta inn á þig því fangaverðirnir taka þetta af þér ef þeir finna þær.“ Áður en ég fór að hátta undirbjó ég hvernig ég gæti falið töflurnar þannig að sem minnst færi fyrir þeim. Ég hafði áhyggjur af því að dósin væri of stór og að það heyrð- ist of mikið í töflunum þegar þær hristust í henni. Ég fór fram í eldhús sótti hvítan kaffipoka sem ég setti töflurnar í og braut upp á þannig að þær dyttu ekki úr honum. Morguninn eftir vaknaði ég snemma til að ná Akraborginni suður, klæddi mig og setti kaffi- pokann með töflunum inn undir nærbuxurnar. Hljómplötuna og kolin geymdi ég í plastpoka og hélt af stað. Þegar ég kom í bæinn gekk ég frá Akraborginni að BSÍ til að fara með rútunni á Litla-Hraun. Farþegarnir voru fáir, sumir að fara í Hvera- gerði, aðrir á Selfoss og einhverjir á Stokkseyri og Eyrarbakka. Eftir því sem nær dró Litla-Hrauni jukust áhyggjur mínar. Frá því að ég mundi eftir mér hafði mamma pre- dikað um mikilvægi þess að ég héldi mig á beinu brautinni. „Það er svo hrikalegur alkóhól- ismi í fjölskyldunni að þú verður að halda þig frá víni. Blóðfaðir þinn var alki og þú sérð hvaða vand- ræði strákarnir hafa komið sér í. Þú verður að muna þrennt,“ sagði hún. Þetta þrennt var að ég mætti aldrei stela, ljúga og nota vímuefni – sígarett- ur og vín voru meðtalin. Reglunum þremur ætti ég að fylgja í blindni. Þar að auki var sú meginregla í heiðri höfð að ég væri ekki í slæmum félags- skap. Ætti aldrei að leika við krakka sem væru í einhverju rugli og reglu- lega kom það upp að ég hætti að sækja í vinkonur ef mér fannst þær fara út af beinu brautinni. Í Svíþjóð lokaði ég á fyrstu vinkonurnar sem ég eignaðist þegar þær báðu mig um að reykja með þeim. Á Akra- nesi hætti ég að vera með nokkrum góðum vinkonum þegar ég áttaði mig á því að þær höfðu staðið í búðarhnupli á meðan ég var inni í búðinni með þeim en gerði mér ekki grein fyrir því hvað hafði verið í gangi fyrr en þær sýndu mér þýfið fyrir utan búðina. Smygl á læknadópi inn á Litla- Hraun var því alls ekki í samræmi við það hlutverk sem ég sinnti innan fjölskyldunnar og þann vilja sem ég hafði til að vera heiðarleg og heilbrigð. Ég vissi að það væri rangt og í raun mjög alvarlegt. Ef upp um mig kæmist gæti ég lent í hrikalegum vandræðum. Eyðilagt svo margt sem ég var búin að hafa mikið fyrir. En hversu alvarlegt væri það ef fangavörðurinn fyndi töfl- urnar á mér? Myndi hann láta nægja að taka þær af mér? Yrði ég ákærð? Og gæti þetta haft alvarlegar afleiðingar til lengri tíma? Rútan stoppaði fyrir fram- an Litla-Hraun og ég gekk út ásamt ungri konu. Við urðum samferða að hliðinu þar sem við gerðum vart við okkur í dyrasíma. Eftir að við sögðum til nafns og hverja við værum að heimsækja opnaðist hliðið og við fórum inn fyrir. Þegar hliðið skall aftur með látum hvolfdist óttinn yfir mig. Skjálfandi á beinunum gekk ég yfir opna svæðið að sjálfri byggingunni, þar sem fangarnir dvöldu. Ég fann fyrir hörðum kaffipokanum sem nuddaðist við húðina undir nærbuxunum og skyndilega fannst mér skrjáfa svo hátt í honum að það hlytu allir að heyra. Hjartað hamaðist, ég þornaði upp í munninum, hendurnar urðu ískaldar og ég gerði mér grein fyrir að það færi ekki á milli mála í augum fangavarðanna að þarna færi dauðskelkuð 16 ára stelpa. Ég mjakaðist nær gestainngang- inum þar sem ég vissi að gerð var leit á gestum áður en þeir hittu fangana. Dyrnar opnuðust, ég gekk inn á Litla-Hraun og þung, kulda- leg útidyrahurðin skall aftur með látum. Fangavörðurinn horfði alvarlegur á mig og ég vissi að óöryggi mitt myndi kalla fram grunsemdir en nú var of seint að losa mig við töflurnar og það eina sem ég gat gert var að vona hið besta.“ Smyglaði læknadópi Halldór Valur Pálsson forstöðu- maður á Litla Hrauni segir börn sem koma í heimsókn á Litla-Hraun ávallt á ábyrgð forráðamanna. Barn komi aldrei eitt í heimsókn í dag og því geti það ekki borið ábyrgð á því sem það kemur með inn í fangelsið. Tilvik þar sem aðstandandi barns ber slíka ábyrgð hafa komið upp. „Ef það kemur í ljós að aðstandandi barns er staðinn að því að bera inn í fangelsið eitthvað sem er ólöglegt þegar barn er með í för er það að sjálfsögðu tilkynnt til lögreglu og barnaverndaryfirvalda. Slík tilvik hafa komið upp. Þá eru börn fanga oft yfir 18 ára og þá er tekið á því í samvinnu við lögreglu,“ segir Halldór Valur. Hann segir að sér beri að skipu- leggja aðstæður þannig að börn geti komið með í heimsóknir og að þeim sé sýnd nærgætni.  Fangi sem afpláni í opnu fangelsi geti fengið heimsóknir frá fjölskyldu eða vinum eigi sjaldnar en vikulega ef aðstæður leyfa. Það teljist gagn- legt í betrun hans. „Forstöðumaður getur ákveðið að heimsóknir tiltekinna manna fari fram undir eftirliti starfsmanns,“ bendir hann á og tiltekur nánar að það megi setja heimsóknum enn þrengri skorður með góðum rök- stuðningi. Þá er heimilt að leita á þeim sem heimsækja fanga og skoða það sem farið er með til fanga. „Í lögunum er reynt að gæta sem allra mest að hagsmunum barnsins og er í raun talsverð vinna fólgin í því að koma með barn í heimsókn í fangelsi, sýna fram á að viðkomandi sé forsjár aðili eða hafa skriflegt samþykki for- sjáraðila,“ segir Halldór Valur. – kbg Smygl á dópi í fjölskylduheimsóknum á Litla-Hrauni  Bróðir Ásdísar Höllu sem nú er fallinn frá, Sonny, var vistaður á Litla-Hrauni. Hún heimsótti hann að beiðni móður sinnar. Ef það kEmur í ljós að aðstandandi barns Er staðinn að því að bEra inn í fangElsið Eitthvað sEm Er ólöglEgt þEgar barn Er mEð í för Er það að sjálfsögðu tilkynnt til lögrEglu og barnarvErndaryfir- valda. slík tilvik hafa komið upp. Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður á Litla-Hrauni smygl á læknadópi inn á litla-hraun var því alls Ekki í samræmi við það hlutvErk sEm ég sinnti innan fjöl- skyldunnar. Ásdís Halla Bragadóttir skrifar sögu sína og móður sinnar. Bókin er gefin út af Veröld. inn á Litla-Hraun Ásdís Halla Bragadóttir rekur sögu móður sinnar, Sigríðar S. Hjelm ásamt sinni eigin í nýrri bók, Tvísaga. Hér er birtur kafli úr bók Ásdísar sem fjallar um heimsókn hennar til bróður hennar heitins á Litla-Hraun. 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r32 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -2 8 6 0 1 B 1 C -2 7 2 4 1 B 1 C -2 5 E 8 1 B 1 C -2 4 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.