Fréttablaðið - 29.10.2016, Qupperneq 34
Fyrrverandi keppendur í Miss Grand Internat ional, fegurðarsamkeppninni sem Arna Ýr Jónsdóttir sagði sig frá á dögunum, hafa sett sig í sam
band við hana og deilt með henni
reynslu sinni af harðræði forseta
keppninnar.
Ein þeirra er Anea Garcia frá Dóm
iníska lýðveldinu. Hún var krýnd
sigurvegari í fyrra og var svipt titlin
um í vor. Forráðamenn keppninnar
greindu þá frá því að hún hefði ekki
uppfyllt þær skyldur sem eru lagðar
á herðar sigurvegara keppninnar.
„Í fyrsta lagi var námið í veginum,
það reyndist okkur mjög erfitt að
skipuleggja viðburði með henni.
Í þó nokkur skipti þurftum við að
breyta tímasetningum viðburða,
aflýsa þeim eða breyta,“ sagði Teresa
Chaivisut, aðstoðarforseti keppninn
ar, um ástæður þess að hún var svipt
titlinum í viðtali við Fairfax Media
síðasta vor.
Missti heilsuna
„Okkur var sagt að hún hefði verið
dónaleg, frek og löt. Hún hefði gert
of strangar kröfur og ekki lagt sig
nægilega vel fram. Hún hefði brugð
ist skyldum sínum sem sigurvegari í
keppninni. Allir trúðu þessu, þar á
meðal ég. Þangað til hún hafði sam
band við mig,“ segir Arna Ýr.
Frásögn Aneu Garcia af því hvern
ig hún var svipt titlinum var allt
önnur en forráðamenn keppninnar
höfðu gefið út.
„Hún sagði mér hvað hefði gerst í
raun og veru. Hún hafði lagt mikið á
sig við að grenna sig. Í marga mánuði
hélt hún sér grannri vegna keppn
innar. Þangað til hún gafst upp. Hún
varð veik á líkama og sál og gat þetta
bara ekki lengur. Varð óvinnufær
og þunglynd. Hún fékk bara nóg og
titillinn var tekinn af henni,“ segir
Arna Ýr frá.
„Fleiri keppendur höfðu samband
við mig og vildu segja mér í trúnaði
frá því að þær langaði til þess að segja
sig frá keppninni. Þeir óskuðu sér þess
að búa yfir sama kjarki og ég,“ segir
hún.
Ósvífin niðurlæging
Anea Garcia sagði hug sinn á Insta
gramsíðu sinni við mynd af Örnu Ýr.
„Hún er glæsileg ekki satt? Frá konu
til konu, takk fyrir að standa uppi í
hárinu á aðstandendum keppninnar
sem samþykkja ekki, virða ekki og
skilja ekki fjölbreytni. Ég er viss um
að þú ert ekki sú eina sem átt þessa
reynslu þetta árið í Las Vegas. Á síð
asta ári var ég ekki sú eina sem var
kölluð fram fyrir framan fleiri en sjö
tíu keppendur vegna galla. Og reyna
svo að segja að keppendur biðji um
ráð. Þetta eru ekki ráð, þetta er ósvíf
in niðurlæging á konum sem hafa
lagt hart að sér við að komast þangað
sem þær eru. Mér finnst mikilvægt
að elska sjálfa sig eins og maður er.
Arna, þú gerir það og meira til. Þú ert
fyrirmynd,“ sagði Anea.
Arna Ýr hefur farið í ótalmörg við
töl vegna þeirrar ákvörðunar að segja
sig frá keppninni og lýst aðdraganda
og eftirmálum af hreinskiptni. „Það
sem stendur upp úr er hversu mik
inn stuðning ég fékk. Ég bjóst aldrei
við því. Ef einhver eftirmál verða þá
veit ég að ég mun standa vel að vígi.
Ég er tilbúin í fleiri slagi,“ segir hún.
„Þá tek ég hann niður,“ segir hún og
á þar við forseta keppninnar, Nawat
Itsaragrisis.
Gefur skít í fegurðina
Hefur þessi reynsla breytt sýn henn
ar á heim fegurðarsamkeppna þar
sem áherslan er nú fyrst og fremst
á útlit stelpna?
„Já, svo sannarlega. Ég gef skít í
fegurðina og útlitið. Það virkar ekki
í þessum heimi að vera sætur og
mjór. Það sem skiptir máli er að vera
sterkur. Hæfileiki minn í þessum
keppnum er framkoma. Að halda
ræður og kunna að höndla erfiðar
aðstæður og vilja helga mig góðum
málstað. Þess vegna hef ég tekið þátt,
til að mynda í Miss World. Ég er ekki
með dæmigert andlit eða líkama í
staðlaða fegurðarsamkeppni og vil
ekki láta einhverja karla setja viðmið
um fegurð. Skilgreina mig og aðrar
konur, segja mér hvað er fallegt og
gott, dæma mig. Það er stærsta upp
götvun mín eftir þessa reynslu,“ segir
hún.
Vigtaðar og dæmdar
En eru þetta ekki úrelt fyrirbæri?
„Jú. Margar þessara keppna eru
börn síns tíma. Hafa ekki fylgt eftir
nýjum tímum. Bara orðið fegurðar
samkeppni segir okkur það. Eftir
reynslu mína þá myndi ég ekki
ráðleggja stelpum að fara í þessar
gamal dags keppnir, bikiníkeppnir.
Þar sem stelpur eru mældar, vigt
aðar og dæmdar. Í Miss World
vorum við aldrei spurðar út í stærð
eða þyngd en áherslan er á verð
leika hverrar og einnar,“ segir hún
og segist enn bera virðingu fyrir
þeirri keppni. Hún geti hins vegar
ekki ráðlagt stelpum að hætta sér
inn í þennan heim nema að kunna
að setja sér mörk og vera með sjálfs
virðinguna í lagi.
„Stelpur þurfa að standast
þennan þrýsting. Hann er ekki
bara vegna útlitsins heldur beinist
gegn sjálfstæði okkar,“ segir hún og
nefnir dæmi um það hvernig forseti
keppninnar talaði við keppendur.
„Ég sagði til dæmis frá því að fram
tíðardraumur minn væri að eignast
börn, halda heimili og verða farsæl.
Hann hélt hins vegar ræðu um að ef
við yrðum óléttar og giftum okkur,
yrðum við leiðinlegar húsmæður.
Það væri uppskrift að ömurlegu lífi.
Lykillinn að góðu lífi væri falinn í
því að við héldum okkur grönnum
og fallegum,“ segir hún frá.
Blekkingar
„Starfsfólkið kom því svo til skila
hvernig ég ætti að grenna mig. Ég
ætti jafnvel að borða bara möndlur
í staðinn fyrir heila máltíð. Mér
fannst erfitt að horfa upp á suma
keppendur samþykkja þessar
aðferðir og sumar hvöttu mig til að
taka ráðum hans. Það að hann væri
að skipta sér af væri hrós. Það er
auðvitað fáránlegt,“ bendir hún á.
Hún segir stelpur þurfa að vara
sig á öllum þeim sem hafa einhvern
ávinning af því að halda keppnir sem
þessar. „Hann kom fyrir sem algjör
ljúflingur. Hann blekkti margar
stelpur,“ segir hún og gefur dæmi
um dæmigert samtal við keppanda.
„Hann segir kannski: Þú ert rosalega
falleg, ég er svakalega skotinn í þér.
En það yrði enn betra og æðislegt ef
þú gætir grennt þig.“
Nýr sigurvegari keppninnar var
krýndur á sunnudag og Arna Ýr
fylgdist með úr fjarlægð. Hún er
hins vegar sjálf í engum vafa um það
hver raunverulegur sigurvegari var.
„Ég vann þessa keppni. Ég er sigur
vegari.“
Niðurbrotnir
keppendur
Fyrrverandi Miss Grand International var svipt titlinum og niður-
lægð af forráðamönnum keppninnar. Hún gafst upp að sögn Örnu
Ýrar sem sagði sig frá sömu keppni á dögunum og segir fleiri niður-
brotna keppendur hafa deilt reynslu sinni með sér.
FréttaBlaðið/Hanna
l Föstudaginn í síðustu viku fékk
Arna Ýr þau skilaboð frá eiganda
keppninnar, Nawat Itsaragrisis,
að hún þyrfti að grenna sig vegna
keppninnar. Starfsfólk keppninnar
kom skilaboðunum til hennar.
Arna Ýr átti að sleppa máltíðum,
borða salat og drekka vatn á
hverju kvöldi fram að keppni.
l Arna Ýr sagði frá skilaboðunum
á Snapchat og tilkynnti að hún
ætlaði ekki að taka þátt ef hann
ætlaði að standa við þau.
l Á laugardag sagði Arna Ýr frá því á
Snapchat að um misskilning hefði
verið að ræða og að hún ætlaði að
taka þátt.
l Á sunnudag greindi hún frá því
að henni hefði verið skipað af
eiganda keppninnar og fram-
kvæmdastjóra að segja að um
misskilning hefði verið að ræða.
l María Lilja Þrastardóttir setti sig í
samband við Örnu Ýri og bauðst
til að aðstoða hana við að komast
til Íslands. María bauð henni gist-
ingu í Los Angeles og þaðan bauð
WOW air henni flug til Íslands.
l Eigandinn og framkvæmdastjór-
inn reyndu að fá hana til að skipta
um skoðun. Meðal annars með
því að segja hana sigurstranglega
og minna hana á verðlaunaféð,
4,5 milljónir íslenskra króna.
l Á þriðjudag freistaði Arna Ýr
þess að ná í vegabréf sitt til þess
að komast til Íslands. Eigandi
keppninnar fór fram á 350 þúsund
íslenskar krónur í staðinn fyrir
passann. Arna Ýr naut aðstoðar
öryggisvarða við að ná í vega-
bréfið og var tilbúin til þess að
kalla til lögreglu.
l Á miðvikudagsmorgun flaug Arna
Ýr til Íslands.
Atburðarásin
Þetta eru ekki ráð,
Þetta er ósvífin niður-
læging á konum sem
hafa lagt hart að sér
Anea Garcia
hún varð veik á líkama
og sál og gat Þetta
bara ekki lengur. varð
óvinnufær og
Þunglynd.
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r34 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
0
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-7
2
7
0
1
B
1
C
-7
1
3
4
1
B
1
C
-6
F
F
8
1
B
1
C
-6
E
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K