Fréttablaðið - 29.10.2016, Blaðsíða 40
Foreldrar geta gert ýmislegt
skemmtilegt með börnum sínum ef
hugmyndaflugið og viljinn er fyrir
hendi. Ingibjörg Eyfjörð Hólm-
geirsdóttir fór að skoða ýmsar
leiðir til að efla sjálfstraust, ein-
beitingu, samhæfingu og fínhreyf-
ingar hjá fjögurra ára syni sínum í
gegnum föndur eftir að hún ákvað
að hafa hann heima hálfan daginn
á meðan hún væri í fæðingar orlofi
og í leikskóla hinn helming dags-
ins. „Ég komst að því að það er
til heill hafsjór af skemmtilegum
föndurverkefnum sem henta börn-
um. Þau þurfa ekki alltaf að vera
flókin eða dýr, við erum rosalega
mikið fyrir það að nota bara það
sem er til heima. Þá er líka gaman
að efla ímyndunaraflið með því að
þurfa að hugsa hvað hægt sé að
nota mjólkurfernu í eða eldhús-
rúlluna sem var að klárast,“ segir
Ingibjörg.
Fyrir stuttu föndruðu þau
mæðgin sniðug dagaspjöld saman
en þau eru að einbeita sér að litun-
um og dögunum um þessar mund-
ir. „Hólmgeir kann alveg dagana
en hann á erfitt með að raða þeim
í rétta röð og svo er skemmtilegt
að hafa þetta litríkt. Hann á kork-
töflu inni hjá sér svo nú get ég
hengt spjald með viðeigandi degi
á hverjum morgni hjá honum.“
Það sem þau notuðu voru þykk
A4-blöð, en venjuleg duga, túss-
litir og Artliner-penni, skæri og
breitt límband. „Ég byrjaði á því
að klippa niður sjö búta, einn fyrir
hvern dag. Svo fékk Hólmgeir að
velja lit á hvern dag, það eina sem
ég stjórnaðist með var að hann
veldi ekki of dökka liti svo ég gæti
skrifað dagaheitið framan á.“
Hólmgeir fékk svo að lita öll
spjöldin og þegar það var búið
tók við að plasta pappírinn. „Ég
notaði bara breitt límband, límdi
yfir báðum megin og klippti svo
í kringum. Við erum ofboðslega
ánægð með útkomuna og hann
hafði gaman af þessu sem er
það sem skiptir mestu máli – og
jú, vonandi líka að hann læri að
fimmtudagur er ekki á eftir mánu-
degi,“ segir Ingibjörg og brosir.
Hún segir föndur geta verið
áskorun fyrir litlu krílin á svo
margan hátt, það reyni mikið á litla
hugann þeirra að einbeita sér að
einhverju einu og að þau vilji gera
hlutina vel. „Með því að leyfa þeim
að prófa sig áfram og reyna á hug-
ann ýtum við undir sjálfstæði hjá
þeim. Það er líka ákveðin áskorun
fyrir okkur, að hoppa ekki beint í að
hjálpa þeim um leið og þau rekast á
hindrun heldur hvetja þau áfram í
að gera sitt besta. Ekki reka á eftir
þeim eða gera þetta að einhverju
sem þau þurfa að gera eða verða
að klára, þá verður þetta kvöð og
þau hætta að hafa gaman af þessu.“
Hægt er að fylgjast með Ingi-
björgu á mömmu- og lífsstílsblogg-
inu www.oskubuska.is þar sem hún
skrifar pistla.
Gaman fyrir alla
Hægt er að gera einfalt föndur úr efniviði sem til er á heimilinu.
Ingibjörgu Eyfjörð Hólmgeirsdóttur finnst gaman að verja tíma með
börnunum sínum og gera eitthvað skemmtilegt.
Ég komst að því að
það er til heill
hafsjór af skemmtilegum
föndurverkefnum sem
henta börnum. Þau þurfa
ekki alltaf að vera flókin
eða dýr, við erum rosa-
lega mikið fyrir það að
nota bara það sem er til
heima.
Ingibjörg Eyfjörð Hólmgeirsdóttir
fólk er kynninGarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir,
liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
ingibjörgu og Hólmgeiri finnst gaman að leika sér saman.
dagaspjöldin tilbúin. Þau eru einföld að gera en skemmtileg og fræðandi fyrir unga krakka.
Hólmgeiri fannst gaman að fá að lita spjöldin og þurfa ekki að vanda sig við að
halda sig innan lína eins og í litabók.
Kjósum rétt
NÝTT!
FREYJU
KARAMEL
LU
BRAGÐ
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-9
5
0
0
1
B
1
C
-9
3
C
4
1
B
1
C
-9
2
8
8
1
B
1
C
-9
1
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K