Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 75
Þó við höfum stækk-
að leggjum við enn
áherslu á að halda ein-
kennum og andrúmslofti
minni fyrirtækja.
F.v. eru þeir Kristinn Eiríksson, sviðsstjóri mannvirkjasviðs, Jakob Kristjánsson,
sviðsstjóri öryggissviðs, Magnús Kristbergsson, framkvæmdastjóri Lotu, og
Eymundur Sigurðsson, sviðsstjóri orkusviðs. Á myndina vantar Steinþór Óla
Hilmarsson, sviðsstjóra stýrisviðs. Mynd/GVA
Lota er til húsa í nýju og glæsilegu húsnæði við Guðríðarstíg 2-4. Mynd /GVA Hjá Lotu starfar samhentur hópur starfsmanna. Lögð er áhersla á að fólki Lotu líði
vel og starfsandi sé góður.
Fimm hressilegir menn taka á móti
blaðamanni í nýjum húsakynnum
Lotu við Guðríðarstíg 2-4 í Grafar-
holti. „Við erum mjög ánægð með
húsnæðið og staðsetninguna, hún
liggur vel við umferð,“ segir Magn-
ús Kristbergsson framkvæmda-
stjóri og kynnir um leið hina við-
mælendurna, þá Eymund Sigurðs-
son, sviðsstjóra orkusviðs, Kristin
Eiríksson, sviðsstjóra mannvirkja-
sviðs, Steinþór Óla Hilmarsson,
sviðsstjóra stýri sviðs, og Jakob
Kristjánsson, sviðsstjóra öryggis-
sviðs.
Mikill styrkur í sameiningu
„Jakob var áður framkvæmda-
stjóri VSI,“ bendir Magnús á og
Jakob upplýsir að VSI hafi verið
þekkt fyrir faglega og óháða ráð-
gjöf í öryggismálum í víðasta
skilningi þess orðs. „VJI sérhæfði
sig á hinn bóginn í verkfræði- og
rekstrarráðgjöf, þá aðallega í raf-
magns- og orkumálum,“ segir
Kristinn.
Þessi tvö fyrirtæki samein-
uðust í eitt á síðasta ári. „Mark-
miðið með sameiningu fyrirtækj-
anna var að veita viðskiptavin-
um aðgang að breiðari þekkingu
og allri almennri verkfræðiþjón-
ustu á einum stað,“ segir Eymund-
ur. Steinþór áréttir að þrátt fyrir
að fyrirtækið sé nú mun stærra en
fyrir sameiningu verði áfram hald-
ið í ákveðin einkenni minni fyrir-
tækja. „Við viljum byggja á einföld-
um boðskiptum, stuttum svartíma
og persónulegri þjónustu,“ segir
hann.
Fjölmörg stór verkefni
Með allan þann bakgrunn og
reynslu sem kemur saman í Lotu,
hafa viðfangsefnin verið fjölbreytt
og krefjandi og þar kemur styrkur
fyrirtækisins berlega í ljós.
Þeir nefna nokkur af stórum
spennandi verkefnum sem Lota
hefur komið að undanfarið.
„Þar má nefna nýja Landspít-
alann en starfsmenn frá okkur
eru í CORPUS hópnum sem hann-
ar meðferðarkjarnann við Hring-
braut. Þetta er mjög metnaðarfullt
verkefni og við sjáum um tvö verk-
svið. Annars vegar hönnun á öllu
rafkerfi spítalans og hins vegar
sjáum við um brunahönnun,“ segir
Magnús.
Áskoranir í þessu verkefni eru
margar, meðal annars að tvinna
saman fjölmörg tæknikerfi sem
þurfa að vera nútímaleg árið 2023
þegar áætlað er að spítalinn fari
í rekstur og þau standist tímans
tönn næstu 10-15 árin. „Þarna þarf
líka að virkja starfsfólk spítalans
til að horfa með okkur fram á við,“
segir Steinþór.
Lota hefur einnig starfað við
hönnun og byggingu gagnavera.
„Við sjáum þá um allt ferlið, allt frá
undirbúningi og þróunarvinnu, þar
til sett er í gang,“ segir Eymundur
og tekur fram að verkefnin í kring-
um gagnaverin taki á öllum þáttum
verkfræðinnar. Kristinn bendir á
að afar áríðandi sé að hafa boðleið-
ir stuttar og verkferla innanhúss
skýra í slíkum verkefnum.
Magnús nefnir fleiri verkefni
sem Lota hefur komið að. „Við
höfum unnið með fiskvinnslufyrir-
tækjum, orkufyrirtækjum, fjár-
málafyrirtækjum, arkitektum,
byggingafyrirtækjum, opinberum
stofnunum og í raun aðilum á flest-
öllum sviðum samfélagsins.
Öryggissviðið hefur komið að
fjölmörgum verkefnum á sviði ör-
yggismála í gegnum árin, allt frá
ráðgjöf varðandi einstök öryggis-
mál upp í heildarúttektir á öryggis-
málum fyrirtækja og stofnana og
brunahönnun bygginga, segir
Jakob.
Fagþekking og framþróun
Hugbúnaði á sviði verkfræðinnar
hefur fleygt fram undanfarin ár
og hjá Lotu er lögð rík áhersla á að
fylgja þeirri framþróun. „Innan
okkar raða stöndum við mjög vel
þegar kemur að fagþekkingu og
hagnýtingu þeirra forrita sem
notuð eru í greininni. Þessi kunn-
átta sparar oft flókna vinnu sem
áður tók langan tíma eða var jafn-
vel ekki möguleg. Við erum að
tala um marglaga teikningar, gerð
hermi- og þrívíddarlíkana, reikni-
líkön og margt fleira,“ segir Magn-
ús.
Jakob tekur sem dæmi að
öryggis sviðið noti brunahermi við
störf sín. „Með honum getum við
skoðað hvernig eldur hagar sér í
tilteknum rýmum og hvernig reyk-
ur dreifist. Þannig getum við gert
ráðstafanir um hvernig best sé að
koma reyk úr húsi. Þá er annar
hugbúnaður sem snýr að rýmingu.
Þar getum við séð hvernig best sé
að standa að rýmingu miðað við
húsnæði og starfsemi sem í því er,“
segir hann.
Eymundur tekur svo dæmi um
hugbúnað sem getur hermt eftir
dreifikerfum raforku. Slíkt komi
sér vel í starfi þeirra fyrir orku-
fyrirtæki.
Kristinn bætir við að kröf-
ur viðskiptavina um framsetn-
ingu séu einnig að aukast. „Menn
vilja fá teikningar í þrívídd og sjá
nákvæmlega hvernig hlutirnir
muni líta út.“
Góður starfsandi í samhentum
hópi
Við sitjum í einu fundarherbergj-
anna á skrifstofum Lotu sem eru
bæði bjartar og rúmgóðar. „Við
leggjum áherslu á að fólki líði vel,
starfsandi sé góður og gaman sé
í vinnunni,“ segir Eymundur og
bætir við að hjá Lotu starfi sam-
hentur hópur fólks með víðtæka
menntun og þekkingu.
„Við erum að nálgast sextíu
manns, en þó við höfum stækk-
að umtalsvert leggjum við enn
áherslu á það innanhúss að halda
einkennum og andrúmslofti minni
fyrirtækja. Það þýðir að viðskipta-
vinir okkar fá áfram jákvætt og
persónulegt viðmót með greiðari
aðgangi að lausnunum. Við vilj-
um alls ekki verða þunglamalegt
fyrir tæki. Við viljum geta brugð-
ist skjótt við og unnið verkin hratt
og vel,“ segir Magnús.
Eftir gott kaffi og fróðlegt spjall
kvaddi blaðamaður þá félaga,
margs fróðari um tilgang og ásetn-
ing Lotu, þessa spennandi fyrir-
tækis sem á bjarta framtíð.
Öflugt þekkingarfyrirtæki með
jákvæðar áherslur
Lota varð til á síðasta ári við sameiningu tveggja rótgróinna fyrirtækja, Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar (VJI) sem starfað hefur frá
1960, og VSI, öryggishönnunar og ráðgjafar, sem á sér farsæla sögu. Við sameiningu varð til öflugt þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í
verkfræði-, öryggis- og rekstrarráðgjöf ásamt verkefnastjórnun, áfram er lögð áhersla á persónulega og snarpa þjónustu og stuttar boðleiðir.
Kynningarblað VErKFræði oG ArKitEKtúr
29. október 2016 5
2
9
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
1
C
-9
9
F
0
1
B
1
C
-9
8
B
4
1
B
1
C
-9
7
7
8
1
B
1
C
-9
6
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K