Fréttablaðið - 29.10.2016, Side 80

Fréttablaðið - 29.10.2016, Side 80
2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r36 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð Góður bara ekki Daniel Sturridge, framherji Liverpool, skoraði tvö mörk gegn Tottenham í deilda-bikarnum í vikunni. Hann setti þar með mikla pressu á Jürgen Klopp, knattspyrnu- stjóra félagsins, að velja hann í byrjunarliðið enda búinn að skora fjögur mörk í tveimur deildabikarleikjum. Ef leikurinn er hins vegar skoðaður nánar sést eiginlega af hverju Klopp velur hann ekki í byrjunarliðið en Sturridge hefur aðeins byrjað fjóra leiki í deildinni. Þó að Sturridge hafi vissulega skorað tvö mörk þá klúðraði hann á ævintýralegan máta og átti eitt versta skot í sögu deildabikarsins. Þó að Klopp hafi hrósað honum eftir leikinn þá er alveg ljóst að hann er ekki hrifinn af vinnuframlagi hans. Og ef Liverpool-ferill Sturridge fer í vaskinn hvert fer hann þá? Ef hann er ekki nógu góður fyrir Liverpool þá er hann ekki nógu góður fyrir hin topp- liðin. „Það er hægt að sjá af hverju hann er varamaður í liði Klopps,“ sagði Graeme Sou- ness, goðsögn í sögu Liverpool. „Þegar ég horfi á Sturridge tekur maður eftir tækninni hjá honum en maður mun seint kalla hann mara- þonhlaupara. Hann hefur e i n s t a k a h æ f i l e i k a en á meðan hann er ekki að hugsa um liðið þá verð- ur hann ekki í byrjunarliðinu á Anfield,“ sagði Souness sem vann fimm deildartitla og þrjá Evrópubikara með Liverpool. Fiskaði Jón Guðna út af Daniel Sturridge fæddist 1989 í Birmingham. Hann var í unglingaakademíu Aston Villa og Coventry áður en Manchester City fékk hann til sín 2003. Það varð snemma ljóst að þarna var frábær framherji á ferð. Hann var valinn efni- legasti leikmaður liðsins árið 2009 en skömmu síðar var hann kominn til Chelsea sem borgaði 3,5 milljónir fyrir hann en félagaskiptin fóru fyrir dómstóla. Eins og með marga unga menn þá átti Sturridge eftir að komast að því að það er ekkert grín að komast í byrjunarlið Chelsea og var hann töluvert á bekknum og spilaði vara- liðsleiki. Í einum slíkum fiskaði hann Jón Guðna Fjóluson af velli sem þá var að leika með varaliði Bayern München. Stakk sér til sunds er Jón Guðni var að ná honum. Emre Can, núverandi samherji Sturr- idge hjá Liverpool, stappaði stálinu í Jón Guðna eftir að dómarinn rak hann í bað. Sturridge fór á lán til Bolton árið 2011 þar sem hann sýndi mögnuð tilþrif og skoraði átta mörk í 12 leikjum. André Villas-Boas gaf honum tæki- færi og Sturridge nýtti það vel á undirbúnings- tímabilinu. En þá kom smá babb í bátinn. Sturridge hafði fengið rautt spjald gegn Man. City í lokaumferðinni tímabilið áður með Bol- ton og byrjaði í þriggja leikja banni. Þrátt fyrir að Sturridge missti af leikjunum missti Villas- Boas ekki trúna á hann og hann var kominn með 9 mörk áður en árið var úti. En Chelsea gekk ekki vel og Villas-Boas var látinn fara og Roberto Di Matteo tók við. Sá hafði ekki sömu trú á Sturr- idge og hann var ónotaður varamaður þegar Chelsea vann sinn stærsta sigur, sjálfa Meistara- deildina árið 2012. Sturridge missti af undirbúningstímabilinu með Chelsea það ár vegna þátttöku á Ólympíu- leikunum í London. Meiðsli voru farin að hrjá hann og hann missti af mörgum leikjum. Aftur gekk Chelsea illa og þegar Rafa Benitez tók við Chelsea var Sturridge aftarlega í goggunar- röðinni. Hann samdi við Liverpool í janúar árið 2013. Talið var að Liverpool hefði borgað 12 milljónir punda fyrir piltinn. Markaskórnir með rembihnút Liverpool-ferill hans byrjaði með látum. Hann skoraði eftir aðeins sjö mínútur í fyrsta leik sínum í FA-bikarnum og einnig í fyrsta leik sínum í deildinni þegar hann kom inn á gegn Manchester United. Hann byrjaði næsta leik og viti menn. Hann var búinn að reima á sig markaskóna og skoraði. Fyrsta þrennan hans kom í maí gegn Fulham. Fyrsta heila tímabilið hans byrjaði einnig með ofboðslegum látum og hann var valinn leik- maður ágústmánaðar 2013. Aftur var hann valinn leikmaður mánaðarins í febrúar og var einn af sex leikmönnum sem voru tilnefndir sem leikmenn ársins. Hann endaði með 21 mark, var valinn í lið ársins og hreppti silfurskóinn. Aðeins Luis Suarez skoraði fleiri mörk. En meiðslalukkan var nú tæmd og tíma- bilið 2014-2015 var Sturridge töluvert frá vegna meiðsla. Hann meiddist í landsleik og var frá í þrjár vikur. En á æfingu meiddist hann aftur og aftur var hann frá í þrjár vikur. Þegar það var að lagast meiddist hann enn á ný og var frá í sex vikur. Heilt yfir var hann frá í fimm mánuði og þegar hann var að komast í form meiddist hann enn á ný og þurfti að fara í aðgerð. Hann spilaði aðeins 19 leiki þetta tímabili. Síðan þá hefur hann varla borið sitt barr. Tímabilið eftir skoraði hann vissulega mörk en fréttir um meiðslavandræði hans voru meira fréttaefni en markaskorun. Það sem af er þessu tímabili hefur hann verið varaskeifa og spurning hvort hann yfirgefi Liverpool í janúar, þremur árum eftir að hann kom og lofaði að vera lengi á Anfield. En hlutirnir eru fljótir að breytast í fótbolta. Á leikvanginum nógu Tölur Sturridge Lið Leikir Mörk Manchester City 21 5 Chelsea 63 13 Bolton 12 8 Liverpool 76 43 NafN: Daniel Andre Sturridge félag: Liverpool TreyjuNúmer: 15 aldur: 27 ára 01-09-1989 Hæð: 188 cm fæddiST í: Birmingham Ég var ekki að skrifa undir hÉrna tiL að vera í tvö ár og fara svo annað. Daniel Sturridge góður Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is daniel sturridge sýndi bæði góða og slæma takta gegn Tottenham. Hann er orðinn varaskeifa í Liverpool og spurning hvort hann færi sig um set í janúar. danieL sturridge er frábær Leik- Maður seM hjáLpar Liðinu. Luis Suarez Þetta voru kannski ekki góð viðskipti fyrir CheLsea. Þetta Lítur iLLa út Þegar Maður horfir tiL baka. Frank Lampard Sturridge ge fur mikið a f sér til aðdáenda L iverpool-lið sins. Íslenska lan dsliðið átti ekki í erfiðleikum með Sturrid ge. Klopp hefur reynt mikið að koma si nni að- ferðarfræði í kollinn á S turridge. Sturridge he fur aðeins b yrjað fjóra deildarleiki það sem af er tímabili. 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 C -6 D 8 0 1 B 1 C -6 C 4 4 1 B 1 C -6 B 0 8 1 B 1 C -6 9 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.