Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 82

Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 82
Á ofanverðri nítjándu öld varð sú tíska útbreidd meðal bún-ingahönnuða þýskra óperuhúsa að láta sögupersónur í hetju- óperum víkingaaldar bera hyrnda hjálma. Engar sögulegar heimildir benda til að slíkur höfuðbúnaður hafi tíðkast í raun og veru, en fljót- lega varð hornahjálmurinn hluti af staðalmynd norræna víkingsins. Fyrir vikið eru allar minjagripabúðir á Norðurlöndunum fullar af glingri og fatnaði sem sýnir víkinga með vígaleg horn skagandi út úr hjálm- inum. Sagan hefur að geyma ótal dæmi af þessum toga um það hvernig mynd- skreytingar listamanna, skáldskapur og sviðsetningar móta hugmyndir okkar um fortíðina og festa oft í sessi ranghugmyndir sem vart er nokkur leið að uppræta. Myndasögurnar um Ástrík gallvaska eru þar augljós sökudólgur. Sögurnar um Ástrík eða Asterix hófu göngu sína í Frakklandi árið 1959 og náðu ótrúlega skjótum vin- sældum. Nánast frá upphafi hafa sögurnar um Ástrík átt í baráttu við Tinnabækurnar um titilinn vinsælustu sögur fransk/belgísku myndasagnahefðarinnar. Sá er þó munurinn að á meðan fullorðnir hafa keypt Tinna fyrir börnin sín og gægst í sögurnar á eftir þeim, hafa foreldrarnir rennt sjálfir í gegnum Ástríkssögurnar áður en röðin kom að krökkunum. Það voru listamennirnir René Goscinny og Albert Uderzo sem skópu Ástrík og sagnaheim hans. Uderzo var teiknarinn en Goscinny handritshöfundur og saman höfðu þeir gert nokkuð vinsælar sögur um Oumpah-pah, hugdjarfan indíána, sem átti ásamt öðrum íbúum litla þorpsins síns í höggi við evrópska landnema í villta vestrinu. Brenn- andi áhugi á kúrekum og indíán- um hefur raunar alla tíð einkennt fransk/belgísku myndasöguhefðina. Goscinny og Uderzo ákváðu að skapa nýjan heim í anda Oumpah- pah og finna honum stað í Frakk- landi fortíðarinnar. Fyrir valinu varð tímabilið í kjölfar Gallastríðanna, þegar hershöfðinginn Júlíus Sesar bældi0 niður allsherjaruppreisn í Gallíu af gríðarlegri hörku og mis- kunnarleysi. Stríðinu lauk árið 46 fyrir Krist þegar Gallahöfðinginn Vercingetorix gafst upp, var fluttur í hlekkjum til Rómar og síðar líflátinn. Skeggprúð hetja Vercingetorix komst í hetjutölu í Frakklandi á ofanverðri nítjándu öld þegar rómantískir listamenn og sagnritarar tóku að draga upp mynd af honum sem upphafsmanni gall- verskrar samstöðu, sem aftur hafi lagt grunninn að tilvist frönsku þjóðarinnar. Fljótlega komst á sú hefð að sýna Vercingetorix sem hár- prúðan mann með gríðarmikið yfir- varaskegg. Stundum skartaði hann líka vængjuðum hjálmi. Ástríkur gallvaski hafði Vercing- etorix að fyrirmynd með myndar- legt skeggið og hjálminn á sínum stað. Uderzo ætlaði í fyrstu að teikna hann sem stóran og stæðilegan kappa, en Goscinny vildi fremur snaggaralega og nánast dvergvaxna aðalsöguhetju. Málamiðlunin varð sú að hafa Ástrík lítinn en gefa honum tröllaukinn og treggáfaðan vin og fylgdarmann, Steinrík. Með vísun til Vercingetorix ákváðu höfundarnir að nöfn á ölum gallverskum persónum bókarinnar skyldu enda á -ix. Ekkert bendir raunar til að sú ending hafi verið algeng í nöfnum Galla til forna, en vegna Ástríksbókanna telja Frakkar almennt í dag að svo hafi verið. Þetta er ekki eina sögulega villan sem sagnaflokkurinn hefur fest í sessi. Þeir Goscinny og Uderzo láta gaulverska þorpið, sem er nafnlaust á frummálinu en fékk heitið Gaul- verjabær í snjallri íslenskri þýðingu, standa í skógarjaðri á Bretagne- skaga. Íbúarnir leggja einkum stund á veiðar í skóginum og borða heil- steikta villigelti í hvert mál. Í raun voru Gallar á þessum tíma hvorki skógarbúar né veiðimenn, heldur stunduðu þeir þróaða akuryrkju og ruddu skóga af kappi til að búa til nýtt ræktarland. Í sögunum er Gaulverjabær eina þorpið í gjörvallri Gallíu sem Róm- arveldi hefur ekki tekist að brjóta undir sig og er það það rækilega umkringt af heilum fernum róm- verskum herbúðum. Í sögunum er mikið gert úr menningarlegu sjálf- stæði Gallanna í þorpinu sem halda í sínar hefðir og siði, öfugt við önnur héruð í landinu þar sem rómverska h e r r a þ j ó ð i n Þessir Rómverjar eru klikk … Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um ástsælar mynda- sögur hefur þvingað menningu sinni upp á heimamenn. Í dag hafa sagnfræð- ingar hafnað þessari gömlu túlkun á rómverska hernáminu og benda á að Rómverjar hafi hvorki haft mannafla né bolmagn til að standa í slíkri menningarlegri undirokun. Þess í stað hafi landstjórar Rómarveldis leyft heimamönnum að halda sínum háttum og samfélagið því ekki tekið neinar kollsteypur í fyrstu. Orðagrín og jaðartungur Ævintýri Ástríks birtust fyrst í myndasögublaði fyrir börn sem framhaldssögur. Árið 1961 var fyrstu sögunum safnað saman á bók og seldust 6 þúsund eintök fyrsta árið. Næsta bók, árið eftir, seldist þrefalt meira. Árið 1965 var salan orðin 300 þúsund eintök og þegar níunda sagan kom út árið 1969 seldust 1,2 milljónir bóka á fyrstu tveimur sólarhringunum! Í þeirri bók lenti Ástríkur í útistöðum við norræna víkinga (með hornahjálma, hvað annað) þótt blómatími víkinganna hafi raunar verið 800 árum síðar en sögusvið Gallastríðanna. Þessar gríðarlegu vinsældir skýrð- ust ekki hvað síst af snilli Goscinnys við að leika sér með kunnuglegar franskar staðalmyndir. Drjúgur hluti Ástríksbókanna gerist á ferða- lagi, þar sem gantast er með klisju- kenndar ímyndir íbúanna á hverjum stað. Orðaleikir og brandarar sprottnir af mállýskum eru fyrirferðarmiklir í sögunum. Það kann að skýra áhuga málvísindafólks á ævintýrum Ást- ríks, en þau hafa komið út á ótrú- lega mörgum tungumálum – þar á meðal á mállýskum sem ekki eru talaðar nema af fáeinum þúsundum manna og sem lítil hefð er fyrir að nota á prenti. Latínugránar og esperantistar eiga svo vitaskuld sínar útgáfur. Hefur Ástríkur raunar verið nýttur til latínukennslu í skólum víða um lönd. Allar eru sögurnar fullar af vísunum í fornaldarsöguna, en samtímapóli tíkin fær einnig sinn skammt. Þannig gerðu höfundarnir stólpagrín að kosningum og skrumi stjórnmálamanna í bókinni Ástríkur og gjafir Sesars frá árinu 1974, sem kom út um svipað leyti og Frakkar kusu sér Valéry Giscard d’Estaing sem forseta. Í Ástríki á Goðabakka, sem birtist í íslenskri þýðingu Þor- steins Thorarensen í Lesbók Morg- unblaðsins, var skotið föstum skot- um á arkitektúr og skipulag nýrra franskra borga á sjötta og sjöunda áratugnum og í Obelix et Compag- nie eða Steinríkur ehf. frá árinu 1976 reyna Rómverjar að gera þorpsbúa að kapítalistum þar sem gantast er með stefnumál forsætisráðherrans Chiracs sem bregður fyrir í líki ungs hagfræðings. Steinríkur ehf. var næstsíðasta Ást- ríkssagan úr penna Goscinny. Hann lést árið 1977 aðeins 51 árs að aldri og var myndasöguunnendum harm- dauði. Auk þess að semja handrit Ástríksbókanna var hann höfundur sagnanna um Lukku-Láka og Fláráð stórvesír. Geimverur og vatnaskrímsli Uderzo, sem hafði einbeitt sér að hlutverki teiknarans og aldrei lagt mikið til handritsgerðarinnar, ákvað að halda bókaflokknum áfram einn síns liðs. Sú ákvörðun var skiljanleg þar sem sögurnar möluðu gull, fyrir- tæki slógust um að fá að nota Ástrík í auglýsingum sínum, gerðar voru kvikmyndir og jafnvel skemmti- garður í anda Gaulverjabæjar í grennd við París. Illu heilli reyndist Uderzo þó algjör eftirbátur félaga síns í hlut- verki sögumannsins. Frá dauða Goscinny til ársins 2009 samdi hann tíu bækur, sem Ástríksunnendum ber almennt saman um að standi að baki fyrri sögunum að gæðum. Sumar eru þokkalega samdar, en oftar en ekki er söguþráðurinn óþarflega flókinn, klisjukenndur og ristir grunnt. Botninum var þó náð í bókinni þar sem geimverur frá öðrum hnöttum börðust í Gaul- verjabæ í sögu sem átti augljóslega að vera ádeila á utanríkispólitík George W. Bush Bandaríkjaforseta! Uderzo lagði pennaveskið á hill- una fyrir fimm árum, þá 84 ára að aldri. Nokkru áður hafði hann til- kynnt þá ákvörðun sína að veita Ástríki framhaldslíf með nýjum höfundum. Nú þegar hafa tvær sögur litið dagsins ljós frá höfund- inum Jean-Yves Ferri og teiknaranum Didier Conrad. Sú seinni viðheldur þeirri hefð að skírskota til pólitískra samtímaatburða, þar sem Wikileaks og Julian Assange eru í stórum hlut- verkum. Fyrri bókin er hefðbundnari og segir frá heimsókn þeirra Ástríks og Steinríks á Piktaslóðir í Skot- landi. Sem nærri má geta úir þar allt og grúir af staðalmyndabrönd- urum um níska Skota, hálandaleika, sekkjapípugaul, Loch Ness-skrímsli og görótt viskí. Fyrir nokkrum misserum hófst útgáfa Ástríksbóka á íslensku að nýju eftir allnokkurt hlé. Fyrir þessi jól gefst svo íslenskum myndasögun- jörðum kostur á að lesa um ævintýri Ástríks í Piktalandi. Sögurnar eru skemmtilegar sem fyrr, en deila má um ágæti þeirra sem kennslurits í sagnfræði. … vildi fremur Snagg- aralega og nánaSt dvergvaxna aðal- Söguhetju. 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r38 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 1 C -2 D 5 0 1 B 1 C -2 C 1 4 1 B 1 C -2 A D 8 1 B 1 C -2 9 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.