Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 95

Fréttablaðið - 29.10.2016, Page 95
Mér hefur alltaf fundist sérstak- lega gaMan að Mála Með vatnslituM www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F isk islóð 39 FURÐUR OG ÓGN Sölvi Björn Sigurðsson er tvímælalaust einn af beittustu pennum sinnar kynslóðar og tekst hér á við samtímann í metnaðarfullu skáldverki sem er í senn breið raunsæissaga og fullt af furðum og ógn. „Frábærlega vel skrifuð bók; meinfyndin, tregafull og undurfalleg.“ BERGSTEINN SIGURÐSSON FRÉTTABLAÐIÐ (um Síðustu daga móður minnar) Listmálarinn Hafsteinn Austmann opnaði sýningu með verkum sínum í Smiðjunni listhúsi að Ármúla 36 í gær, föstudag. Þar eru sýndar vatns- litamyndir eftir Hafstein, en hann er með þekktustu myndlistarmönnum landsins. ,,Þetta eru verk frá ýmsum tímum, allt frá 1957-2012 og spanna því hálfa öld, og því fjölbreytt flóra. Mér hefur alltaf fundist sérstaklega gaman að mála með vatnslitum,“ segir listamaðurinn, sem er rúmlega áttræður að aldri. Til þessa hefur Hafsteinn haldið rúmlega 30 einkasýningar og tekið þátt í miklum fjölda samsýninga víða um heim. Sömuleiðis eru verk Hafsteins að finna í öllum helstu listasöfnum Norðurlanda og í Nor- ræna fjárfestingarbankanum. Verk hans hafa enn fremur hlotið ýmsar viðurkenningar, meðal annars alþjóðlegu Windsor & Newton- verðlaunin fyrir vatnslitamyndir. Hafsteinn hefur einnig hlotið tvenn verðlaun fyrir útilistaverk og gert keramikmynd fyrir Borgar- spítalann. „Hafsteinn Austmann er einn af bestu listmálurum sinnar kyn- slóðar. Verk eftir hann vekja ávallt mikla athygli og þykja mjög eftir- sótt,“ segir Bjarni Sigurðsson, eig- andi Smiðjunnar listhúss. Sýningin er opin til 10. nóvember næstkom- andi. – mg Fjölbreytt verk sem spanna hálfa öld Ein af myndum Hafsteins á sýningunni í Smiðjunni. Mikið verður um dýrðir í Hall- grímskirkju í næstu viku þegar 30 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju verður minnst með margvíslegum hætti. Meðal annarra viðburða verður tímamótanna minnst með stór- glæsilegum tónleikum í dag kl. 19 og á morgun kl. 17. Hátíðlegur lúðraþytur og pákuslög ásamt glæsi- legum söng og hljóðfæraslætti fylla hvelfingar Hallgrímskirkju þegar Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hall- grímskirkju (áður Den Haag) flytja glæsilegu hátíðarverkin Fanfare og Te Deum eftir Charpentier og Messu nr. 1 í F-dúr eftir J.S. Bach á hátíðar- tónleikum í tilefni af 30 ára vígsluaf- mæli Hallgrímskirkju, en kirkjan var vígð 26. október 1986. Hljóðfæraleikararnir koma sér- staklega til landsins til að leika á þessum tónleikum og koma þeir m.a. frá París, Madrid, Lissabon, Sidney, Chicago, New York, Lond- on, München, Basel, Amsterdam og Kaupmannahöfn auk þess sem nokkrir Íslendingar sem hafa sér- hæft sig í flutningi barokktónlistar leika með barokksveitinni. Mótettukór Hallgrímskirkju hefur lengi verið meðal fremstu kóra Íslands. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur. Þar má finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Mót- ettukórinn hefur farið í margar tónleikaferðir og sungið í helstu dómkirkjum Evrópu og tekið þátt í listahátíðum hér á landi sem erlendis. Einsöngvararnir hafa allir tengst listastarfi Hallgrímskirkju um ára- bil og eru þrír þeirra m.a. meðlimir í Schola cantorum. En einsöngvarar á tónleikunum verða þau Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosópran, Auður Guðjohnsen alt, Oddur A. Jónsson bassi, Thelma Sigurdórs- dóttir sópran og Guðmundur Vignir Karlsson tenór og stjórnandi er Hörður Áskelsson. Það verður því sannkölluð hátíðarstemning í Hall- grímskirkju um kosningahelgina. – mg Hátíðartónleikar á vígsluafmæli Mótettukór Hallgrímskirkju hefur lengi verið í fremstu röð kóra á Íslandi. M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 51L A U g A R D A g U R 2 9 . o k T ó B e R 2 0 1 6 2 9 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 9 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 1 C -2 D 5 0 1 B 1 C -2 C 1 4 1 B 1 C -2 A D 8 1 B 1 C -2 9 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.