Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 2

Fréttablaðið - 16.07.2016, Page 2
Veður Hæg austlæg eða breytileg átt í dag og skúrir á víð og dreif, en þokuloft eða súld fyrir austan. Fremur hlýtt veður, einkum vestan til. Sjá Síðu 34 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Árni Bragason landgræðslustjóri mokuðu fyrstu skóflufyllirnar ofan í skurð við Bessastaði. Athöfnin fór fram við undirritun samstarfssamnings um endurheimt votlendis á Bessastaðanesi. Verk- efnið er fyrsta skrefið í endurheimt votlendis hér á landi í samræmi við sóknaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Fréttablaðið/eyþór Kjaramál  Í drögum að frumvarpi til nýrra laga um kjararáð er lagt til að fækkað verði verulega þeim sem kjara ráð ákvarðar laun og önnur starfskjör fyrir enda hafi þróun síð- ustu ára verið í átt til óhóflegs fjölda þeirra sem falla undir ákvörðun ráðs- ins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Lagt er til að kjör skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands og sendiherra taki mið af kjarasamningum, að kjör aðstoðarmanna ráðherra taki mið af kjörum skrifstofustjóra og að kjör starfsmanna þjóðkirkjunnar ráðist af samningum innan þjóðkirkjunnar. Kjararáð ákvarði aftur á móti laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, dómara, saksóknara, allra ráðherra, ráðuneytisstjóra og nokkurra skrif- stofustjóra, seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra og ríkis- sáttasemjara. Í drögunum er lagt til að þeir sem ekki geta samið um laun á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna hafi meiri aðkomu að málum þegar ákvarð- anir eru teknar um laun og starfskjör þeirra en nú. – sg Kjararáð ákvarði laun fyrir mun færri Ákvörðun kjara biskups, vígslubiskupa, prófasta og presta þjóðkirkjunnar mun ráðast af samningum innan þjóðkirkjunnar. bjarni benediktsson fjármálaráðherra leggur frumvarpið fram. Fréttablaðið/anton brink Stjórnmál Matsfyrirtækið Standard & Poor’s býst ekki við meiriháttar stefnubreytingu hér á landi komist Píratar til valda eftir alþingiskosn- ingar í haust. Þetta kemur fram í rök- stuðningi fyrirtækisins fyrir óbreyttu lánshæfismati ríkissjóðs, BBB+/A-2 með stöðugum horfum. Raunar gerir fyrirtækið ráð fyrir því að stefnan verði í meginatriðum áþekk óháð því hvaða flokkar sitji í ríkisstjórn. Þó segir fyrirtækið að það gæti reynst erfitt fyrir Pírata að mynda ríkisstjórn og stjórna landinu þar sem flokkurinn sé fámennur og eigi enn eftir að fullmóta stefnu í mörgum málum. Fyrirtækið segir efnahagsaðstæður á Íslandi almennt góðar, búist sé við kröftugum hagvexti og betri hag ríkissjóðs. Engu að síður séu blikur á lofti vegna afnáms gjaldeyrishafta og hætta sé á að hagkerfið ofhitni. –ih Telja Pírata ekki munu kollvarpa stjórnkerfinu Bjarga votlendi Bessastaða Samfélag „Þetta bjargaðist nú ein- hvern veginn eins og það gerir allt- af,“ segir Birna Gerður Jónsdóttir, yfirljósmóðir á Landspítala,  en þann 14. júlí fæddust nítján börn og þar af fernir tvíburar á spítal- anum. „Við erum orðnar svo gamlar að við munum bara ekki alveg hvað metið var en þetta er allavega mjög nálægt því,“ segir Birna og hlær. Á fimmtudaginn var sem sagt mikið annríki á fæðingardeildinni. Af tvíburapörunum fjórum fæddist þó einn tvíburi rétt eftir miðnætti á fimmtudeginum og er því fæddur þann 15. júlí. „Það gerist ekki á hverjum degi að það fæðist fernir tvíburar,“ segir Birna Gerður og bætir við að meiri áhætta fylgi tvíburafæðingum. „Það auðveldaði okkur ekki fyrir að það var svona mikið af tvíburum enda koma fleiri fagaðilar að þannig fæð- ingum. Það er í raun meiri vinna að sinna svoleiðis fæðingum.“ Birna Gerður segir að allt hafi gengið vel en að það hafi þurft að kalla út mannskap. „Þetta er kannski ekki beint besti tíminn til að ná í fólk en einn þriðji af starfsfólkinu okkar er í sumar- fríi,“ segir hún og útskýrir að það sé auðveldara að fá fólk til vinnu á öðrum tímum en í miðjum júlí. Meirihluti barnanna sem fædd- ust er stúlkur eða tólf talsins. Þá fæddust sjö drengir. „Það má segja að þetta hafi verið stelpudagur en stelpurnar voru í miklum meiri- hluta,“ segir hún. Birna Gerður  vill meina að ástæða þess að allt hafi gengið vel sé hversu gott starfsfólk deildar- innar er. „Það er svo frábært starfs- Fernir tvíburar komu í heiminn á fimmtudag Nítján börn fæddust 14. júlí síðastliðinn á Landspítalanum. Það er næstum met. Fernir tvíburar fæddust. Ljósmóðir segir aukinn mannskap hafa verið kallaðan út enda þriðjungur starfsfólks í sumarfríi þessa dagana en allt hafi gengið vel. það má segja að þetta hafi verið stelpudagur en tólf stúlkur fæddust. Hér má aftur á móti sjá nýfædda tvíburabræður. Fréttablaðið/ernir Það auðveldaði okkur ekki fyrir að það var svona mikið af tvíburum enda koma fleiri fagaðilar að þannig fæðing- um. Það er í raun meiri vinna að sinna svoleiðis fæðingum. Birna Gerður Jóns- dóttir, yfirljósmóðir á Landspítala fæddust á einum sólarhring á Landspítalanum. 12 stúlkur 7 drengir fólk hérna og frábærar ljósmæður í þessu húsi. Það hjálpast allir að þegar það er mikið að gera og fólk er tilbúið að koma og hjálpa,“ segir Birna Gerður Jónsdóttir. nadine@frettabladid.is 1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 4 -B 4 F 0 1 A 0 4 -B 3 B 4 1 A 0 4 -B 2 7 8 1 A 0 4 -B 1 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.