Fréttablaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 28
Gústaf Jarl Viðarsson, skógarvörður í Heiðmörk, lofar góðri skemmtun í dag en
Skógarleikarnir 2016 hefjast klukkan 14. mynd/Eyþór
Hindberjastykki með
Höfrum
1 msk. kókosolía, bráðin
½ bolli eplamauk, ósætt
1/3 bolli léttmjólk
1 msk. hunang
1 msk. kanill
2 ½ bolli grófir hafrar
1 bolli hindber
Hitið ofninn í 180 gráð-
ur og smyrjið ofn-
skúffu. Hrærið saman
olíu og eplamauki þar
til mjúkt. Bætið mjólk,
hunangi og kanil út í
og blandið vel saman.
Hrærið hafrana út í blönduna og
passið að velta þeim vel um. Bland-
ið berjunum varlega saman við.
Pressið blönduna ofan í ofnskúff-
una og bakið í 16 til 19 mínútur.
Látið kólna áður en kakan er skorin
í stykki í þægilegri stærð.
Vefjið hvert stykki í
plast og geymið í kæli.
amyshealthybak-
ing.com
Seig og sæt
hindberjastykki með
í gönguferðina
„Okkur hafði langað til að halda
skógarhátíð um nokkurn tíma
þegar við létum loks verða af því
á síðasta ári. Leikarnir í fyrra
heppnuðust mjög vel og voru bæði
fjölmennir og skemmtilegir. Ætl-
unin er að Skógarleikarnir verði
árlegur viðburður hér í Heið-
mörk,“ segir Gústaf Jarl Viðars-
son, skógarvörður og stjórnandi
Skógarleikanna 2016, en Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur blæs til
leikanna í dag í Heiðmörk, milli
klukkan 14 og 17.
Grill oG ketilkaffi
Gústaf lofar gestum góðri
skemmtun í Furulundi. Gestir
geti fengið sýnikennslu í tálgun
og þá verður eldsmiður að störf-
um í skóginum og sýnir gamal-
gróin handtök. Borðtennisborð og
ýmis skógarleiktæki verða einn-
ig í lundinum og þá verður öllum
boðið í grillveislu. Skógarbrauð
verður grillað yfir varðeldi og
boðið upp á rjúkandi ketilkaffi.
Gústaf segir leikana haldna að
baltneskri og bandarískri fyrir-
mynd og munu skógarhöggsmenn
af Suður- og Vesturlandi keppa sín
á milli í skógarhöggsgreinum.
axarkast oG stauraklifur
„Það hafa átta skógarhöggsmenn
skráð sig til leiks. Þeir keppa í
nokkrum greinum svo sem að
höggva boli í stundur með öxi og
í að afkvista boli. Keppt verð-
ur í axarkasti og einnig í staura-
klifri og að rúlla bolum með prik-
um. Það er misjafnt milli greina
hversu margir keppa, menn hafa
sínar sérgreinar. Í flestum þeirra
snýst þetta um að vera sem fljót-
astur,“ útskýrir Gústaf.
Dómari fylgist með keppend-
um og dæmir eftir hraða en einn-
ig vinnubrögðum. „Það má ekki
skilja eftir stubba í kvistunum,“
segir Gústaf og ítrekar: „Það þarf
að kunna dálítið fyrir sér í axar-
beitingu svo engin hætta sé á ferð-
um.
Það mega aðeins skógarhöggs-
menn keppa í þessum greinum en
gestir fá svo að spreyta sig í axar-
kastinu. Það er ekkert hættulegt
en í það eru notaðar sérstakar
kastaxir.“
köflótt stemminG
Gústaf segir skógarhögg á Íslandi
enn sem komið er hálfgert karla-
sport og að einungis karlar séu
skráðir til leiks á Skógarleikun-
um í ár. „Þetta eru allt karlar sem
keppa í ár, því miður. Það hafa
komið kvenkyns skógarhöggsmenn
til okkar frá Danmörku en þær
komast ekki í ár,“ segir Gústaf.
Hann reiknar með að draga fram
einkennisbúning skógarhöggs-
mannsins í tilefni dagsins, köfl-
ótta skyrtu, en vill þó ekki eigna
íslenskum skógarhöggsmönnum
hið vinsæla tískutrend, „lumber-
jack“ þó að það hafi ekki farið
fram hjá þeim.
„Jú, maður hefur tekið eftir
þessari tísku, hipsterar og forrit-
arar sem vilja líta út eins og skóg-
arhöggsmenn,“ segir hann hlæj-
andi. „Það er bara skemmtilegt ef
fólk horfir til náttúrunnar varð-
andi tísku og finnst skógarmenn-
ingin flott,“ bætir hann við og
kannast einnig við vinsældir raun-
veruleikaþátta á sjónvarpsstöðv-
unum Discovery og History chann-
el, þar sem skógarhöggsmenn eru
í aðalhlutverki.
„Okkur finnst nú ekki leiðinlegt
að horfa á þessa þætti og bröllum
meira að segja ýmislegt sjálfir.
Það stendur jafnvel til að byggja
bjálkakofa frá grunni hér í Heið-
mörk einhvern daginn en það er
vel hægt að byggja bjálkakofa úr
íslenskum trjám.“
Skógarleikarnir hefjast í Furu-
lundi í Heiðmörk í dag klukkan 14.
heida@365.is
axarkast oG
stauraklifur í
Heiðmörk
Skógarleikarnir 2016 fara fram í Heiðmörk í dag. Þetta er annað árið í
röð sem Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til leikanna. Nokkrir af
færustu skógarhöggsmönnum landsins munu leiða saman hesta sína í
hefðbundnum skógarhöggsgreinum og verður gestum boðið til veislu.
Hollt og orkumikið nesti er gott að græja fyrir helgina. nordicpHotoS/GEtty
Gleraugnaverslunin Eyesland
5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015
Létt og þægileg í veiðina
Veiðigleraugu með og án styrktarglugga
Kíktu við og mátaðu!
Skógarleikarnir hefjast
í Furulundi í Heiðmörk í
dag klukkan 14.
1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G A R b l A ð ∙ h e l G i n
1
6
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
0
5
-0
D
D
0
1
A
0
5
-0
C
9
4
1
A
0
5
-0
B
5
8
1
A
0
5
-0
A
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K