Fréttablaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 4
Tölur vikunnar 10.07.2016-16.07.2016
8.340
íslensk
vegabréf
voru gefin
út í maí.
Útgefnum
vega-
bréfum
fjölgaði
um 10,4
prósent
milli ára.
74%
hækkun
hefur orðið á
meðalkaupverði
sumarhúsa á
Vesturlandi frá
2008 til 2015.
22. sæti
skipar íslenska karlalandsliðið á
nýjasta styrkleikalista Alþjóða-
knattspyrnusambandsins.
42.000
tonn var fiskafli íslenskra skipa í
júní. Er það 43% minni afli en í júní
í fyrra. Á 12 mánaða tímabili hefur
heildarafli dregist saman um 262
þúsund tonn á milli ára.
króna fær Kristín Völundardóttir,
forstjóri Útlendingastofnunar, í
mánaðarlaun eftir að kjararáð hækk-
aði laun hennar um 29 prósent.
1,3
milljónir
560.000
nýja flugmenn þarf í heiminum
á næstu 16 árum, þar af
95.000
í Evrópu.
Sema Erla Serdar
formaður Sam-
fylkingarinnar í
Kópavogi
kveðst ekki vita
hvernig stúlka
fædd og uppalin á
Íslandi varð hold-
gervingur íslamstrúar á landinu.
Sema hefur í langan tíma setið undir
grófu persónuníði vegna uppruna
síns en hún er hálfur Tyrki. Hún
segist vera fædd inn í þjóðkirkjuna,
skírð og fermd. Hún fylgi hins vegar
engri trú, ekki frekar en nokkur í
hennar fjölskyldu hér heima eða úti.
Nú hefur Sema látið lögregluna vita
af níðinu.
Gunnar Bragi Sveinsson
landbúnaðarráðherra
efast um að Mjólkur-
samsalan hafi
brotið gegn sam-
keppnislögum,
eins og úrskurður
Samkeppnis-
eftirlitsins kveður
á um. Mikilvægt sé að
halda í það kerfi sem er við lýði fyrir
umsýslu mjólkur vegna smæðar
landsins og þess hve bændur eru
dreifðir. MS ber að greiða 480 millj-
óna króna stjórnvaldssekt vegna
alvarlegra brota á samkeppnis-
lögum.
Elín Björg Jónsdóttir
formaður BSRB
segir tuga prósenta
launahækkanir
kjararáðs til for-
stöðumanna
ríkisstofnana
í ósamræmi við
SALEK-samkomu-
lagið sem tryggja eigi að einstaka
hópar hækki ekki umfram aðra en
það kalli alltaf á kröfu um leiðrétt-
ingar. Elín Björg segir hækkunina
auka á ójöfnuð í samfélaginu og ekki
hægt að sætta sig við hana.
Þrjú í fréttum
Rasismi,
mjólk og
launahækkanir
fasTeignir Grunnur að 159 fermetra
sumarhúsi á besta stað við vatnið í
Þingvallaþjóðgarði er nú til sölu hjá
Fasteignamarkaðnum.
Það eru hjónin Sólveig Lára Magn-
úsdóttir og Bogi Pálsson, oft kenndur
við Toyota, sem eru að selja. Eignin er
við Valhallarstíg nyrðri á bakka Þing-
vallavatns og stendur á þrjú þúsund
fermetra leigulóð í eigu ríkisins.
„Gert er ráð fyrir um 80 fermetra
verönd vatnsmegin við húsið og frá
henni og stofum má njóta einstaks
útsýnis yfir Þingvallavatn og fjalla-
hringinn,“ er myndin sem dregin er
upp af aðstæðum í sölulýsingu Fast-
eignamarkaðarins.
Óskað er tilboða en Guðmundur
Th. Jónsson fasteignasali segir verð-
hugmynd fyrir grunninn vera í
kringum 85 milljónir.
Fram kemur í auglýsingunni að
efri hæð hússins verði 134 fermetrar
og byggð úr timbri.
„Er gert ráð fyrir forstofu, holi,
svefngangi, barnaherbergi, hjóna-
herbergi og öðru baðherbergi auk
stórra stofa og eldhúss. Fyrirliggjandi
teikningar gera ráð fyrir að húsið
verði klætt að utan með varanlegri
og vandaðri klæðningu, svo sem
með kopar. Gert er ráð fyrir allt að 5,0
metra lofthæð í hluta efri hæðar húss-
ins,“ er fyrirhugðu húsi nánar lýst.
Sérinngangur er í kjallara þar sem
vera á tæknirými og geymsla auk
þess sem Fasteignamarkaðurinn
segir að mögulegt væri að innrétta
hluta kjallarans.
Grunnur sumarhússins stendur
á lóðinni þar sem áður stóð sumar-
hús í eigu athafnakonunnar Sonju
Zorilla sem síðar seldi eignina Vig-
dísi Finnbogadóttur, fyrrverandi
forseta Íslands. Ástríður, dóttir Vig-
dísar, eignaðist húsið í nóvember
Grunnur að bústað í þjóðgarði
Þingvalla er falur á 85 milljónir
Óskað er tilboða í grunn að 159 fm sumarhúsi við Þingvallavatn skammt frá Valhallarreitnum. Seljendur
hófu byggingu hússins á leigulóð ríkisins en lítið hefur verið um framkvæmdir síðan fyrir bankahrunið.
Bústaðurinn verður engin smásmíði eins og dæma má af grunninum og kjallaranum sem bíður steyptur nýs eiganda.
Mynd/FasteignaMarkaðurinn
Þessi hlið mun snúa að Þingvallavatni. Mynd/tekton
2006 og seldi það eftir þrjá daga til
hjónanna Aðalsteins Egils Jónas-
sonar og Ásdísar Höllu Bragadóttur,
fyrrverandi bæjarstjóra í Garðabæ.
Bogi og Sólveig keyptu síðan eignina
í mars 2006.
Strangar reglur gilda um stærð
húsa innan þjóðgarðsins. Þó er heim-
ilt að reisa hús á eldri lóðum jafnstór
þeim sem fyrir voru. Bogi og Sól-
veig létu rífa húsakostinn og fengu
samþykktar teikningar að nýrri 159
fermetra byggingu. Á meðan á upp-
steypu grunnsins og kjallarans stóð
í aðdraganda bankahrunsins 2008
vakti athygli að notast var við þyrlur
til að koma steypunni á staðinn líkt
og átti við um framkvæmdir við nýtt
hús Bakka vararbróðurins Ágústs
Guðmundssonar þar rétt hjá. Enginn
akvegur er að þessum lóðum.
Ólíkt því sem á við um hús Ágústs
Guðmundssonar, sem lokið var við
nokkrum árum eftir hrunið, hefur
lítið verið aðhafst í húsi Boga og Sól-
veigar.
Meðal annarra eigenda nærliggj-
andi húsa á Valhallarstíg nyrðri má
nefnda hjónin Birgi Þór Bieltvedt og
Eygló Björk Kjartansdóttur, hjónin
Eyþór Arnalds og Dagmar Unu Ólafs-
dóttur, hjónin Þorbjörgu Helgu Vig-
fúsdóttur og Friðrik Hallbjörn Karls-
son og hjónin Vilhjálm Egilsson og
Ragnhildi Pálu Ófeigsdóttur.
fanney@frettabladid.is
Vigdís
Finnbogadóttir
Ásdís Halla
Bragadóttir
Bogi Pálssonsonja Zorilla
Fyrrverandi og núverandi eigendur á Valhallarstíg nyrðri 7
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Dalbraut 1
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
1
6
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
0
4
-C
8
B
0
1
A
0
4
-C
7
7
4
1
A
0
4
-C
6
3
8
1
A
0
4
-C
4
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K