Fréttablaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Fimmtudaginn 12. júní 1913 reri Einar Pétursson verslunar-maður á litlum kappróðrarbát
í Reykjavíkurhöfn. Í skut bátsins
blakti bláhvítur fáni. Danskir sjó-
liðar sáu til ferða bátsins og reiddust
mjög. Fáninn var gerður upptækur og
Einar reri til lands. Fregnin barst um
Reykjavík og viðbrögðin létu ekki
á sér standa. Á svipstundu blöktu
bláhvítir fánar við hún útum allan
bæ og Dannebrog var dreginn niður.
Reykjavík varð alblá. Fólk safnaðist
saman og söng ættjarðarlög. Dægur-
þrasið gleymdist í stóra fánamálinu.
Íslandi allt.
Íslenski fáninn hefur að mestu
legið sofandi síðan. Hann er dreginn
að hún á hefðbundnum fánadögum
en landið skrýðist sjaldnast bláu eins
og þennan dag fyrir 103 árum.
Evrópumótið í fótbolta breytti
öllu. Skyndilega blöktu fánar um
allt land, inni á veitingahúsum og á
bílum landsmanna. Þjóðin klæddist
treyjum í fánalitunum. Þjóðarstolt
og þjóðerniskennd vöknuðu til lífs.
Íslandi allt, breyttist í áfram Ísland.
Lágkúrulegar feisbúkk-deilur hurfu
um stund. Þetta voru skemmtilegir
dagar sem einkenndust af samhug og
vináttu.
Sameiningartákn þjóðarinnar
eiga undir högg að sækja. Íslenskan
er á skipulagslausum flótta undan
enskunni. Íslensk nafnahefð er að
hverfa. Bráðum hættir fólk að kenna
sig við föður sinn eða móður og tekur
upp ættarnöfn sem falla vel að enskri
tungu. Stöðugur fólksflótti er til
annarra landa. Sumir brottfluttir fara
jafnvel að dæmi Jóns Hreggviðssonar
í Íslandsklukkunni, formæla landinu
og biðja andskotann að sökkva því.
Á þessum þrengingartímum
íslensks þjóðernis kom fótboltinn
eins og himnasending. Hann sann-
færði mig um að Ísland ætti sér
enn þá von í viðsjárverðum heimi.
Meðan víkingaklappið ómar enn úr
stúkunni og laglausir menn og konur
kyrja þjóðsönginn fullum hálsi, mun
þetta allt saman reddast að íslensk-
um sið. Áfram Ísland, Íslandi allt!
Fáninn vaknar
til lífs
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
NET
1.000 KR.*
1817 365.is
ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
* Fylgir með völdum tilboðspökkum. Undanskilið er
aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is
1
6
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
0
4
-B
0
0
0
1
A
0
4
-A
E
C
4
1
A
0
4
-A
D
8
8
1
A
0
4
-A
C
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K