Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 72
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Óttars Guðmundssonar Bakþankar Fimmtudaginn 12. júní 1913 reri Einar Pétursson verslunar-maður á litlum kappróðrarbát í Reykjavíkurhöfn. Í skut bátsins blakti bláhvítur fáni. Danskir sjó- liðar sáu til ferða bátsins og reiddust mjög. Fáninn var gerður upptækur og Einar reri til lands. Fregnin barst um Reykjavík og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Á svipstundu blöktu bláhvítir fánar við hún útum allan bæ og Dannebrog var dreginn niður. Reykjavík varð alblá. Fólk safnaðist saman og söng ættjarðarlög. Dægur- þrasið gleymdist í stóra fánamálinu. Íslandi allt. Íslenski fáninn hefur að mestu legið sofandi síðan. Hann er dreginn að hún á hefðbundnum fánadögum en landið skrýðist sjaldnast bláu eins og þennan dag fyrir 103 árum. Evrópumótið í fótbolta breytti öllu. Skyndilega blöktu fánar um allt land, inni á veitingahúsum og á bílum landsmanna. Þjóðin klæddist treyjum í fánalitunum. Þjóðarstolt og þjóðerniskennd vöknuðu til lífs. Íslandi allt, breyttist í áfram Ísland. Lágkúrulegar feisbúkk-deilur hurfu um stund. Þetta voru skemmtilegir dagar sem einkenndust af samhug og vináttu. Sameiningartákn þjóðarinnar eiga undir högg að sækja. Íslenskan er á skipulagslausum flótta undan enskunni. Íslensk nafnahefð er að hverfa. Bráðum hættir fólk að kenna sig við föður sinn eða móður og tekur upp ættarnöfn sem falla vel að enskri tungu. Stöðugur fólksflótti er til annarra landa. Sumir brottfluttir fara jafnvel að dæmi Jóns Hreggviðssonar í Íslandsklukkunni, formæla landinu og biðja andskotann að sökkva því. Á þessum þrengingartímum íslensks þjóðernis kom fótboltinn eins og himnasending. Hann sann- færði mig um að Ísland ætti sér enn þá von í viðsjárverðum heimi. Meðan víkingaklappið ómar enn úr stúkunni og laglausir menn og konur kyrja þjóðsönginn fullum hálsi, mun þetta allt saman reddast að íslensk- um sið. Áfram Ísland, Íslandi allt! Fáninn vaknar til lífs Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka NET 1.000 KR.* 1817 365.is ÓTAKMARKAÐ GAGNAMAGN Endalaust * Fylgir með völdum tilboðspökkum. Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 0 4 -B 0 0 0 1 A 0 4 -A E C 4 1 A 0 4 -A D 8 8 1 A 0 4 -A C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.