Fréttablaðið - 16.07.2016, Blaðsíða 58
Lestrarhestur vikunnar Ólafur Kári Bjarnason
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs á meðal barna.
Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og setja í pott
sem dregið er úr vikulega. Lestrarhestur vikunnar hlýtur bók að launum.
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Mér finnst svo skemmti-
legt að lesa!
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Síðast las ég bók
í seríunni Óvættaför. Hún er um
strák sem heitir Tom og er að
reyna að sigra óvættina sex og
er vinkona hans Elena að hjálpa
honum.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Hún
heitir Dregið að landi eftir Árna
Árnason og er um tvær stelpur
sem voru svo matvandar og
þurfti pabbi þeirra að draga þær
að landi og borða matinn þeirra
og varð rosalega feitur.
Hvers lags bækur þykir þér
skemmtilegastar? Mér finnst
svona spennusögur og fantasíur
skemmtilegastar eins og Óvætta-
för.
Í hvaða skóla gengur þú? Ég er í
Hlíðaskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Ég fer í
Sólheimasafn og í Hlíðaskóla er
bókasafn og ég fer mikið þangað
og svo fer ég líka í Bókabílinn.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Helstu áhugamál mín eru fótbolti
og lestur.
Ef þú skrifaðir bók, um hvað
væri hún og hvað ætti hún að
heita? Bókin væri annaðhvort
um fótbolta eða eitthvað í stíl við
Óvættaför. Þegar ég væri búinn
að skrifa bókina myndi ég finna
titil á hana.
Ólafi Kára finnst spennusögur og fantasíur skemmtilegastar.
Bragi Halldórsson
208
svar: A
Getur þú hjálpað
Konráði? Veist þú
hvað þetta blóm
heitir? Er þetta:
A. Hvítsmári
B. Smjörblóm
D. Vallhumall
Á grasflöt sem þau félagarnir gengu fram á voru víða hvítar
breiður af einhverjum litlum blómum. „Forvitnilegt væri að
vita hvaða blóm þetta er,“ sagði Konráð. „Til hvers?“ spurði
bara vera þarna?“ Kata var bersýnilega ekki í sínu besta skapi
í dag. „Ég er kannski bara svona fróðleiksfús,“ sagði Konráð.
Í hvaða skóla ertu? Ég er í Kárs-
nesskóla í Kópavogi.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Mér finnst skemmtileg-
ast að leika mér með stóra Star
Wars karla og setja þá saman.
Hvað ætlar þú að gera í sumar
fríinu? Ég er búinn að fara á
skáknámskeið, hjólabrettanám-
skeið og á tennis- og leikjanám-
skeið. Núna er ég í heimsókn hjá
ömmu minni í húsinu hennar á
Hofsósi. Svo fer ég til Svíþjóðar
og Noregs.
Hver eru áhugamál þín? Áhuga-
mál mitt eru tölvuleikir.
Hvað er uppáhaldsdýrið þitt?
Uppáhaldsdýrið mitt eru kettir,
sérstaklega Kári, kötturinn minn
og Stella, kisan hennar Kötlu
systur minnar.
Ertu að æfa eitthvað? Já, ég er að
æfa karate eins og pabbi minn og
er kominn með gult og hvítt belti.
Með gula og hvíta beltið
Ívar Kolbeinsson er sjö ára gamall og býr í Kópavogi. Hann æfir karate
eins og pabbi hans. Uppáhaldsdýrin hans eru kettirnir Kári og Stella.
Ívar dýrkar kettina Kára og Stellu. Fréttablaðið/Úr EinKaSaFni
Allir leiðast í hring og standa kyrrir
nema einn sem er utan við hringinn
og stillir sér upp á bak við einn (hér
Siggu). Þegar komið er að „Inn og
út um gluggann“ í vísunni leggur
Sigga af stað inn í hringinn, gengur
til vinstri og fer undir armana á
krökkunum í hringnum sem nú halda
höndunum uppi, en leiðast áfram
og fara undir hendurnar á þeim sem
standa í hringnum. Þegar komið er
að þeim síðasta tekur sá næsti við:
lagið sem sungið er með:
Nem ég staðar bak við hana Siggu,
nem ég staðar bak við hana Siggu.
Nem ég staðar bak við hana Siggu
svo fer hún sína leið:
Inn og út um gluggann,
inn og út um gluggann,
inn og út um gluggann
og alltaf sömu leið.
(fengið af leikjavefurinn.is)
Leikur vikunnar
Inn og út um gluggan
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
1 6 . j ú l í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R30 h e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
1
6
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:3
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
0
4
-D
C
7
0
1
A
0
4
-D
B
3
4
1
A
0
4
-D
9
F
8
1
A
0
4
-D
8
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
5
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K