Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 14
Sagan var líka skrifuð hér heima á Íslandi í júnímánuði Heimir Guðjónsson er nú orðinn sá þjálfari sem hefur unnið flesta leiki í efstu deild karla í fótbolta á Íslandi en hann sló met Ásgeirs Elíassonar á dögunum. Ásgeir átti metið í aldarfjórðung. Heimir Guðjónsson 122 sigurleikir í efstu deild á Íslandi – nýtt met Fótbolti Íslenska knattspyrnu- sagan var ekki bara endurskrifuð á Evrópumótinu í fótbolta í Frakk- landi í júnímánuði því þá féll einnig glæsilegt met hér í deildinni heima. Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, stýrði þá FH-liðinu til sigurs í 121. sinn í efstu deild og bætti met Ásgeirs Elíassonar. Ásgeir var sumarið 1997 fyrsti þjálfarinn til að vinna hundrað leiki í efstu deild og hafði sex árum fyrr bætt met Óla B. Jónssonar yfir flesta unna leiki sem þjálfari í efstu deild. 16. júní 2016 Ásgeir var því búinn að eiga metið í 25 ár þegar Heimir tók það af honum 16. júní síðastliðinn. Það fór ekki mikið fyrir Pepsi-deild- inni í júní enda átti Evrópumótið í Frakklandi hug þjóðarinnar en þegar betur var að gáð kom í ljós að Heimir hefði komist á toppinn. Svo skemmtilega vill til að Heimir Guðjónsson bætti metið með því að vinna sinn gamla læriföður Ólaf Jóhannsson. Ólafur og Heimir unnu þrjá Íslandsmeistaratitla, tvo þegar Heimir var fyrirliði Ólafs og einn þegar Heimir var aðstoðarþjálfari Ólafs. Heimir tók síðan við FH-lið- inu fyrir 2008-tímabilið og hefur stýrt því síðan. Ólafur gæti aftur á móti náð tímamótum í sumar og orðið sjötti þjálfarinn til að vinna hundrað leiki í efstu deild. Ólafi vantar nú bara þrjá sigra upp á að ná því og enn eru tólf leikir eftir af Íslandsmótinu. Emil Pálsson tryggði Heimi met- sigurinn með því að skora sigur- markið á móti Val en Emil skoraði einnig sigurmarkið í leiknum á undan þegar Heimir jafnaði met Ásgeirs þegar FH vann 1-0 sigur á Breiðabliki í Kópavoginum. Emil skorar söguleg sigurmörk Emil Pálsson hefur verið duglegur við að skora dýrmæt sigurmörk fyrir Heimi upp á síðkastið en það var einmitt Emil sem tryggði FH-liðinu Íslandsmeistaratitilinn síðasta haust. Það var fjórði Íslandsmeistara- titill Heimis sem þjálfari FH og sjöundi Íslandsmeistaratitill hans með félaginu en hann vann einn- ig tvo sem leikmaður og einn sem aðstoðarþjálfari. Heimir hefur því unnið alla leiki sína sem þjálfari FH og var fyrir nokkru búinn að slá metið yfir flesta sigurleiki með einu liði í efstu deild. Hann er líka sá eini sem hefur unnið hundrað leiki með sama félagi. Ásgeir Elíasson þjálfaði á sínum tíma þrjú félög, eða FH, Þrótt og Fram. Hann vann flesta sigrana sem þjálfari Fram eða 96 þeirra. Ásgeir vann síðan 19 sigra sem þjálfari Þróttar og 5 sigra sem þjálfari FH sumarið 1980 en það var hans fyrsta þjálfarastaða í efstu deild. Enginn leikmaður FH-liðsins hefur verið með í öllum sigurleikj- unum en Atli Guðnason er ekki langt frá því. Atli Guðnason hefur spilað 116 af þessum 122 sigur- leikjum Heimis sem þjálfara FH. Atli Guðnason (178 leikir) er einn af fjórum leikmönnum sem hafa náð að spila yfir hundrað deildar- leiki fyrir Heimi en Davíð Þór Við- arsson (99 leikir) bætist í þann hóp í næsta leik sínum fyrir FH. Hinir þrír eru Atli Viðar Björnsson (151), Pétur Viðarsson (127) og Björn Daníel Sverrisson (108). Heimir Guðjónsson er bara rétt að byrja í boltum. Metið er komið í hús en með sama áframhaldi eru mun meiri líkur á því að hann vinni tvö hundruð leiki í efstu deild held- ur en að einhverjum öðrum þjálfara takist að ná þessu meti af honum. ooj@frettabladid.is Svona unnust þessir 122 leikir 51 eins marks sigur 32 tveggja marka sigrar 23 þriggja marka sigrar 11 fjögurra marka sigrar 4 fimm marka sigrar 1 átta marka sigur ✿ Flestir sigrar þjálfara í efstu deild á Íslandi Ásgeir Elíasson 120 Logi Ólafsson 116 Bjarni Jóhannsson 110 Guðjón Þórðarson 101 Ólafur Jóhannesson 97 +206 Markatala Heimis Guðjónssonar í þessum 186 leikjum með FH-liðið er 408-202 eða 206 mörk í plús. 116 Sigurleikirnirnir sem Atli Guðnason hefur spilað undir stjórn Heimis Guðjónssonar með FH. 64 Leikir sem Heimir Guðjóns-son hefur unnið á Kapla- krikavelli sem þjálfari. 10 Skiptin sem Heimir Guðjóns-son hefur unnið lið undir stjórn Ásmundar Arnarssonar. 12 Leikirnir sem Heimir Guðjónsson hefur stýrt FH-liðinu til sigurs á móti Fram eða fleiri en á móti nokkru öðru liði. 20 Félögin sem FH hefur mætt í efstu deild síðan Heimir Guðjónsson tók við en hann hefur fagnað sigri á móti öllum. 100% Hlutfall stiga FH í húsi í 2. umferð (9 leikir) og í 13. umferð (8 leikir) undir stjórn Heimis. 1. eða 2. Sæti FH-liðsins á öllum átta tímabilum liðsins undir stjórn Heimis Guðjónssonar en uppskeran er fjögur gull og fjögur silfur. Í dag 09.00 The Open Champ. Golfstöðin 16.00 ÍBV - FH Sport 16.00 Keflavík - Leiknir R. Sport 2 20.00 Marathon Classic Golfst. 14.00 Haukar - Fjarðabyggð Ásvellir 14.00 Leiknir F. - HK Fjarðab.höllin 14.00 Fram - Grindavík Laugardalsv 14.00 Huginn - Selfoss Seyðisfj. 16.00 KA - Þór Akureyrarvöllur Á morgun 10.00 The Open Champ. Golfstöðin 20.00 Fjölnir - Breiðablik Sport 20.00 Marathon Classic Golfst. 19.15 Víkingur Ó. - Stjarnan Ólafsv. 19.15 Fylkir - KR Flórídanavöllur 19.15 ÍA - Valur Norðurálsvöllur ÓlAFur nælDi Í HAnnES landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er genginn í raðir randers. Hannes skrifaði undir þriggja ára samning við danska liðið sem Ólafur Kristjánsson þjálfar. Hinn 32 ára gamli Hannes hefur leikið með Bodö/Glimt í noregi undanfarna mánuði á láni frá hollenska liðinu nEC nijme- gen. Hannes stóð sig frábærlega með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi en enginn markvörður varði fleiri skot á mótinu en hann. Hannes verður í hóp hjá randers þegar liðið mætir Midt- jylland í 1. umferð dönsku deildarinn- ar á mánu- daginn. MiCKElSon ÁFrAM Í ForyStu Bandaríski kylfingurinn Phil Mick elson er áfram með forystu eftir annan keppnisdaginn á opna breska meistaramótinu í golfi. Mickelson, sem lék frábærlega í fyrradag, fór annan hringinn á 69 höggum, eða tveimur höggum undir pari. Mickelsen er samtals á 10 höggum undir pari. næstur kemur Svíinn Henrik Stenson sem lék á sex höggum undir pari í gær og er samtals á níu höggum undir pari. Daninn Sören Kjeldsen og Bandaríkjamaðurinn Keegan Brad- ley eru jafnir í 3. sæti á sjö höggum undir pari. Öflugir kylfingar á borð við Jordan Spieth og Bubba Watson lentu í vandræðum í gær og rétt komust í gegnum niður- skurðinn. Ég er 100% liðsmaður. Að efast um fagmennsku mína er eitthvað sem ég læt ekki viðgangast. Samband mitt við liðsfélaga mína er frá- bært. Ingólfur Sigurðsson @11ingosig GÍSli oG Guðrún BrÁ EFSt Gísli Sveinbergsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða eftir fyrsta hringinn á Borgunarmótinu á Eimskipsmótaröðinni. leikið er á Hvaleyrarvelli og er keppt um Hvaleyrarbikarinn í fyrsta sinn. Gísli lék fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari og er með eins höggs forystu á Kristján Þór Einars- son og Axel Bóasson. Guðrún Brá lék á fjórum höggum yfir pari og er einu höggi á undan Berglindi Björnsdóttur. 1 6 . j ú l Í 2 0 1 6 l A U G A R D A G U R14 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð Sport 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 4 -E B 4 0 1 A 0 4 -E A 0 4 1 A 0 4 -E 8 C 8 1 A 0 4 -E 7 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.