Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 16.07.2016, Qupperneq 24
heit lifrarpylsa Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur hefur undanfarin ár starfað í Afganistan, Bosníu, Kósovó og starfar nú í Palestínu. „Ég sakna í raun og veru einskis þegar ég er í burtu en hlakka þeim mun meira til að koma heim og fá mér mitt þjóðlega sælgæti. Eitt það fyrsta sem ég geri eftir að ég lendi er að fara í Melabúðina og kaupa mér heita lifrarpylsu. Svo er það harðfiskur með smjöri og kleinur, kringlur og súkkulaðisnúður. Þegar ég fer til Akureyrar þar sem ég er fædd og uppalin líður mér eins og Gollum í Hringadróttinssögu en í stað hringsins eru það ástarpungar og soðið brauð sem heltaka hugann. Ég tek stefnuna ein- beitt að minni uppáhaldsbrauðbúð, framkvæmi kaupin hratt og örugglega og held svo inn í eldhúsið hjá föður mínum þar sem ég gæði mér á kræsingunum! Þar er hápunktinum náð! Einu sinni sem oftar fór ég í Melabúðina til að kaupa mér heita lifrarpylsu og fór með hana heim til syst- ur minnar sem á fjögur börn. Næstyngsti sonurinn, Einar Valur, sem þá var fjögurra ára, er mikill matgæð- ingur og hann þáði lifrarpylsu. Svo sátum við tvö, ég og hann, og borðuðum lifrarpylsuna saman í þögn fyrir utan regluleg velþóknunar- og vellíðunarhljóð sem við gáfum frá okkur. Ég hef sjaldan upplifað jafn mikla samkennd og einlægan skilningi á þeirri ánægju sem fylgir því að borða mat sem maður hefur saknað lengi.“ Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Jón Ívar Vilhelmsson| jonivar@365.is | s. 512-5429 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Hvaða sælgætis saknar þú mest?  Margs er að sakna þegar flutt er frá heimahögunum á Íslandi og út í hinn stóra heim. Nokkrir brottfluttir Íslendingar voru inntir eftir því hvaða íslensks sælgætis þeir sakna mest og svörin voru allt frá fjólubláum tópas til ástarpunga. magnea marínósdóttir saknar þess mest að geta ekki keypt sér ástarpunga og heita lifrarpylsu þegar löngunin grípur hana. Sykurávöxtur og mandarína frá Papúa nýju-gíneu eru það sælgæti sem helst freistar eggerts gunnarssonar í 32 stiga hita. Svanhildur Heiða væri til í að geta keypt bland í poka í dúbaí en verður að láta sér nægja sendingar að heiman. lakkrís í ýmsum útgáfum er vinsæll hjá Íslendingum sem búa erlendis. Bland Í poka svanhildur heiða snorradóttir er flugfreyja hjá Emirates-flugfélaginu í Dúbaí. „Ég er ekki búin að búa lengi í útlöndum en ég er strax farin að sakna alls konar sælgæt- is frá Íslandi. Það sem ég sakna helst er sterkur brjóstsykur, bland í poka og svo auðvitað íslensk- ur lakkrís! Ég er búin að borða endalaust mikið af súkkulaði síðan ég flutti til Dúbaí og þá verður Kinder-súkkulaði oftast fyrir valinu. Ég hef aldrei verið mikið fyrir súkkulaði og borðaði lítið sem ekkert súkkulaði þegar ég bjó á Íslandi en núna borða ég súkkulaði eins og ég veit ekki hvað. Ég held að það sé vegna þess að ég þarf að vakna á mismunandi tímum sólarhrings- ins og sef ekki nóg svo súkkulaðið gefur mér orku og huggun þegar mikið er um að vera. Planið er að alltaf þegar ég kem í heimsókn eða ef vinir mínir sem búa í Dúbaí fara til Íslands að þeir komi með stafla af íslensku nammi fyrir mig til baka. Það væri svo geggjað gott að fá bland í poka með sterkum brjóstsykri, íslenskum lakkrís frá Kolaportinu, saltlakkrís og fjólubláan Tópas. Íslenskt nammi er besta nammi í heimi.“ sykuráVöxtur og MandarÍna eggert gunnarsson framleiðslu- og fréttastjóri hjá stærstu sjónvarpsstöð Papúa Nýju-Gíneu „Ég, nammigrísinn ógurlegi, hef að mestu leyti hætt að borða sælgæti hér enda langar mann einhvern veginn minna í súkkulaði í 32 stiga hita. Ég sakna íslensks sælgætis þess vegna furðu lítið. Hef til dæmis ekkert hugsað um Hrís eða Nóakropp síðan ég kom hingað í janúar sem er það nammi sem ég féll oftast fyrir. Fjölskyldan kom í heimsókn hingað um daginn en þau komu ekki með neitt íslenskt nammi með sér enda hefði það verið orðið ansi mauk- að eftir 34 tíma ferðalag. Mesta sælgætið hér eru ávextirnir. Mangó, an- anas og bananar eru miklu betri á bragðið hér en annars staðar sem ég hef prófað. Svo uppgötvuðum við sykurávöxt eða „sugarfrutt“ á meðan fjölskyldan var hér. Sá ávöxtur er algert nammi.“ lakkrÍs og suðusúkkulaði guðrún Jóhanna ólafsdóttir söngkona hefur búið erlendis í næstum tvo áratugi – lengst af í Madrid. „Uppáhaldsnammið mitt er lakkrís en ef sælgætisþráin gríp- ur mig þá er ég líka alltaf veik fyrir Suðusúkkulaði frá Nóa Siríus. Svo hafa Nóa-páskaegg líka alltaf verið í upp- áhaldi en ég er reyndar svo lítill nammigrís að ég afþakkaði páskaeggið sem mamma ætlaði að senda mér í vor. Hún hefur alltaf sent mér páskaegg en í þetta skipti fannst mér ómögulegt að vera að senda súkkulaði milli landa.“ TM ...verðlaunin fyrir besta bíónammið fær Litríkt bíónammi ALLTAF VIÐ HÖNDINA Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu ... allt sem þú þarft Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum nammidagUr Kynningarblað 16. júlí 20162 1 6 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :3 8 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 4 -E 6 5 0 1 A 0 4 -E 5 1 4 1 A 0 4 -E 3 D 8 1 A 0 4 -E 2 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 1 5 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.