Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 4
JÓLABLAÐ 1985
VÍKUR-fréttir
Jólamatseðillim
BÁKAÐIR FERSKIR SVEPPIR
fylltir með hvítlaukssmjöri
0 , LETTREYKTAR FYLLTAR
1S GRÍSARIFJUR
„ T i
1< '
i
BAKAÐAR PERUR
„Amaretto“
Bakaðir, ferskir
sveppir
fylltir með
hvítlaukssmjöri
6 stk. pr. mann.
Þvoið sveppina vel úr
köldu vatni og þerrið.
Losið stöngulinn úr. Fyllið
holuna með hvítlauks-
smjöri.
Smjörið:
250 gr. smjör (lint)
Fínt saxaðir sveppastönglar
3 rif hvítlaukur - pressaður
/i tsk. jurtakraftur (Picanta)
1 búnt söxuð steinselja
/i tsk. paprikuduft
1 msk Worchestersósa
Hrærið vel saman. Gott
er að láta smjörið standa
um tíma eftir að búið er að
hræra það.
Leggið þar næst i eldfast
form og bakið uns smjörið
fer að krauma. Borið fram
með grófu snittubrauði og
dýftð í bráðið smjörið.
Léttreyktar fylltar
grísarifjur
Skerið í rifjurnar með
beittum hníf, í breiðari end-
ann, sem næst miðju. Passið
að skera ekki út úr. Fyllið í
gatið með mauki úr ca. Vi
ananas, bita af Brieosti,
Dijon sinnepi, örlitlu karrý
og timian. Lokið með tré-
pinna eða saumið fyrir.
Veltið þar næst upp úr
rúgmjöli krydduðu með
salti og pipar eftir smekk.
(Þeytið saman 2 egg, 4-5
msk rjóma og 1 tsk timian.
Dugir fyrir 6).
Steikið úr vel heitu
smjöri í 3-5 mín. á hvorri
hlið, en passið ykkur á að
brenna ekki hjúpinn.
Leggið í ofnskúffu og
bakið í ofni í 3á-1 klst. Hell-
ið rauðvínsglasi yfir og látið
krauma í því, við 150-200°.
Lagið sósu úr soðinu úr
skúffunni, 1 söxuðum lauk,
/i Brieosti, !4 1 rjóma og
e.t.v. glasi af rauðvíni og 1
tsk rifsberjasultu. Kryddið
með kjötkrafti og timian.
Bakaðar perur
„Amaretto“
Afhýðið perurnar, skipt-
ið eftir endilöngu og fjar-
lægið kjarnhúsið. Leggið í
eldfast fat.
Hellið yfir Amaretto
líkjör (möndlulíkjör) ca. 1-
2 glösum. Bakið í vel
heitum ofni uns perurnar
eru orðnar meyrar (ljós-
brúnar). Upplagt er að láta
þær malla í ofninum meðan
rifjurnar eru snæddar.
Takið þar næst pönnu,
bræðið 2 msk smjör, 6-8
msk sykur - brúnið. Leggið
perurnar á pönnuna og
veltið upp úr sykrinum.
Hellið því næst safanum úr
fatinu ásamt Vi glasi af
líkjör og kveikið í.
Borið fram með þeyttum
rjóma eða ís.
Verði ykkur að góðu.
Ögmundur Rúnar
Marvinsson,
yfirkokkur á Búðum,
Snæfellsnesi
JÓLAFÖNDUR
í MYLLUBAKKASKÓLA
Jólaföndur var í Myllubakkaskóla í keflavík um næst síðustu helgi. Þátttaka var
að venju mjög góð, enda föndurdagarnir skemmtileg tilbreyting fyrir foreldra og
börn þeirra frá hinu hefðbundna daglega amstri.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tækifæri - pket.
Ungir sem eldri föndra af kostgæfni.