Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 55

Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 55
VIKUR-fréttir JÓLABLAÐ 1985 LdGGULÍF Jólamynd Félagsbíós. Sýningar hefjast n.k. sunnudag Sunnudaginn 22. desember sýpir kvikmyndafélagið NÝTT LÍF gamanmyndina LÖGGULÍF í Félagsbíói. Þetta er þriðja myndin um þá félaga Þór og Danna, en áður hafa verið sýndar hinar vin- sælu myndir, Nýtt líf, þar sem Þór og Danni innleiddu ýmsar nýjungar í fiskiðnaði í Vest- mannaeyjum, og Dalalíf, þar sem þeir hrelldu bændur og búalið í Kjósinni. Auk þess- ara þriggja gamanmynda hefur kvikmyndafélagið Nýtt líf gert myndina Skammdegi, sem valin var sem framlag íslands til Óskarsverðlauna- keppninnar á næsta ári. LÖGGULÍF var kvik- mynduð í Reykjavík í júlí og ágúst í sumar og hlaut 1.9 milljón króna styrk úr Kvik- myndasjóði. Kostnaður við myndina á frumsýningardegi er orðinn 12'á milljón króna. í hlutverkum Þórs og Danna eru sem fyrr Eggert Þorleifsson og Karl Agúst Úlfsson. Aðrir leikarar eru Lilja Þórisdóttir, Sigurður Sig- urjónsson, Flosi Ólafsson, Guðrún Þ. Stephensen, Sigur- veig Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Rúrik Haralds- son, Bríet héðinsdóttir o.fl. Söguþráður myndarinnar er þessi: Þeir félagar Þór Magnús- son og Daníel Ólafsson reka þjóðþrifafyrirtækið DÝRA- ATHVARFIÐ, sem hefur það að markmiði að koma villuráf- andi gæludýrum í hendur eig- enda. Af hagsýnisástæðum hafa þeir Þór og Danni komist að því að fyrirhafnarminna sé að finna dýrin áður en þau týnast, svo hægt sé að koma þeim til réttra aðila fljótt og vel gegn hæfilegu gjaldi. Frú Friðbjörg, eiginkona dómsmálaráðherra, er ein af föstum viðskiptavinum þeirra, því síamskettinum Petru finnst næturlíf Reykjavíkur lokkandi. Litlir kærleikar er með frú Friðbjörgu og lögregluliði borgarinnar, því að frúin hefur hannað nýjan lögreglubúning undir kjörorðinu FRÁ GRÁ- MYGLU TIL GLÆSILEIKA. Um þennan búning eru skiptar skoðanir. Frú Friðbjörgu finnst hann glæsilegur, en allt lögregluliðið undir forystu Þorvarðar Hanssonar varð- stjóra, er þeirrar skoðunar að fremur vilji lögreglumenn ganga naktir að skyldustörf- um en bera þennan frumlega og glæsilega búning. Þeir Þór og Danni eru ein- mitt að skila Petru á heimili dómsmálaráðherrahjónanna, þegar Þorvarður varðstjóri er þar í heimsókn að ræða um nýju búningana. Frú Frið- björg, sem er mjög hrifin af snarræði þeirra félaga við að finna heimilisköttinn eftir að lögreglan hefur gefist upp, krefst þess að þeir Þór og Daníel verði tafarlaust teknir inn í lögregluna. Maður hennar, dómsmálaráðherr- ann, tekur í sam streng og Þor- varður varðstjóri á erfitt með að neita. Lögreglustarfið reynist að sjálfsögðu mjög fjölbreytt og innan skamms hafa þeir fé- lagar kynnst mörgu merki- legu fólki, svo sem nætur- drottningunni Sóleyju Eiríks- dóttur sem er örvhent og ekur um á hvítum sportbíl, og frænkum hennar, þeim Hlín og Laufeyju, sem hafa villst út af hinum mjóa vegi dyggðar- innar og hafa handtekið Hilm- ar vatnsveitumann og spila við hann Matador. Þær frænkur fara óvarlega með skotvopn. Utigangsmaðurinn Kormák- ur Reynis, kallaður Koggi, til heimilis á Arnarhóli, leiðbein- ir þeim Þór og Danna við lög- reglustörfin fyrst í stað, en þeir komast fljótlega upp á Iagið með að vinna störfin með sínu eigin lagi og allt gengur eins og í sögu þar til þeir félagar ákveða að freista þess að frelsa Hilmar vatnsveitumann úr haldi - og nota til þess „vík- ingaaðferðina“. Þá fer eitt og annað úrskeiðis og mikill elt- ingarleikur hefst og berst víða um götur borgarinnar. Þráinn Bertelsson skrifaði handrit að LÖGGULÍFI ásamt Ara Kristinssyni, sem einnig annaðist kvikmynda- töku og klippingu. Þráinn er einnig Ieikstjóri. Sýningar í Félagsbíói hefj- ast eins og áður segir n.k. sunnudag. I Atriði úr „LöggulífT1. Hví tasunnukirkj an Fíladelfía, Hafnargötu 84 Aðfangadagur jóla: Aftansöngur kl. 18.00 Jóladagur: Guðsþjónusta kl. 17.00. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl. 17.00. Allir velkomnir. Verslanir í Keflavík verða opnar til kl.22 á morgun, föstudag. Félag kaupsýslumanna. JÓLABLAÐ 60 SÍÐUR VÍKUR-FRÉTTA 4700 EINTÖK Jóla- og nýárskveðju sendi ég nemendum mínum, með ósk um að þeim gangi áuallt sem best á uegum og strœtum þeirrar umferðar sem bíður þeirra. Magnús Þ*ór, ökukennari Flugeldasala Hjálpar- sveitar skáta Njarðvík hefst 27. desember í söluskúr við Spari- sjóðinn í Njarðvík, við Netaverkstæði Suð- urnesja og í íþróttavallarhúsinu í Njarðvík. Opið verður frá kl. 10-22. Verið velkomin. Höfum úrval af ilm- og syrtivörum fyrir dömur og herra á öllum aldri. Hálsfestar, eyrnalokkar og ýmislegt fleira til gjafa. E Greiðslukorta- EUROCARD þjónusta. í dag kl. 17 verður kynning á ilm- og baðlínunni frá TINA FARINA, þar sem hvert stjörnumerki hefur sinn ilm. Á meðan á kynningu stendur veitum við 10% kynningarafslátt. Einnig verður boðið upp á jólaglögg. Opið virka daga til kl. 22. Opið laugardag til kl. 18. Óskum öllum viöskiptavinum okkar gleðilegrar jólahátiðar og farsældar á komandi ári. C\\w \ i / ////, ^ SOLBAÐS-& NUÐÐSTOFAh' ^ 8’OIiEY slmi 7747 SUÐURGÖTU 16, SANDGERÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.