Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 29
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ 1985
þyrftu að komast strax á
njúkrunardeild. Annar
starfshópur sér um heima-
hjúkrunina í Grindavík
undir stjórn hjúkrunar-
fræðings.
Þessi 10 gamalmenni sem
nefnd eru, eru of lasburða
til að geta vistast á öldrun-
ardeild, hvað |)á í heima-
húsum, oft hja öldruðum
maka sem oft er alls ófær
sökum elli að veita aðstoð
þurfandi maka sínum. Við
sem vinnum við þetta erum
oft ráðþrota, því oft er
erfitt að koma pessu fólki
inn á spítala, til dæmis til að
hvíla aðstandendur um
tíma. Legupláss hér eru
óvenjufá fyrir svona stórt
byggðarlap, versni líðan
þessara sjuklinga þurfa þeir
oft að biða dögum saman,
jafnvel vikum, eftir sjúkra-
húsvist. Þá reynir verulega
á þolrif heimahjúkrunar-
innar, hvað þá aðstand-
enda. I sumum tilvikum
verður þá að leggja þetta
fólk inn bráðainnlögn á
sjúkrahús í Reykjavík um
tíma. Sjúkrahúsið hér er
allt of lítið og yfirleitt
yfirfullt. A sjúkrahúsinu
dvelja að jafnaði 18-20
hjúkrunar- og langlegu-
sjúklingar en það eru legu-
pláss fyrir 26 á almennu
deildinni og 8 á fæðingar-
deild. A sjúkrahúsinu eru
jafnframt reknar umfangs-
miklar handlækningar. Við
stækkun og breytingar á
skurðstofu fækkaði legu-
plássum um 5. Handlæknar
verða auðvitað að halda
einhverjum rúmum lausum
til að geta tekið inn fólk til
aðgerðar.
Opnun hjúkrunardeildar
við Garðvang hefurbættúr
brýnni neyð, en þörfin er
miklu meiri.
A Garðvangi og Hlé-
vangi dvelja nú um 54-55
vistmenn. Þar af er leyfi
fyrir vistun 20 hjúkrunar-
sjúklinga, en það eru samt í
dag 26 sjúklin^ar sem þyrfti
að vista á Hjúkrunardeild.
Ekki verður hægt að hafa
þunga hjúkrunarsjúklinga á
Garðvangi vegna skorts á
faglærðu fólki enda ekki
gert ráð fyrir því í upphafi.
Meðalaldur vistmanna á
Garðvangi er 83-84 ár og
ákveðinn kjarni hefur verið
ar frá upphafi. Nokkur
ópur hefur þurft að flytj-
ast á hjúkrunardeildina við
opnun hennar vegna hrak-
andi heilsu og hjúkrunar-
þarfar. Það opnaði síðan
möguleika að taka inn nýja
vistmenn á öldrunardeild-
ina. Biðlisti fyrir hjúkr-
unar- og langlegusjúklinga
á sjúkrahúsið telur að jafn-
aði 10-15. Biðlisti fyrir
Garðvang og Hlévang telur
37. Nokkur nöfn eru þau
sömu á báðum listunum.
Það skal þó tekið fram að
fólk á J>essum listum er flest
þegar í miklum vandræðum
og er í mikilli þörf fyrir
skjóta úrlausn. Fáir sýna
fyrirhyggju og sækja um
vist á dvalarheimili löngu
áður en vistunar er þörf.
Það getur talist æskilegt
að aðstandendur annist
sjúkt gamalmenni lengi
heima, þrátt fyrir ýmsa
aðstoð. Það hefur auk þess
sýnt sig að fólk sem þetta
gerir á það á hættu að ein-
angrast félagslega enda
tekur umönnunin mikið af
andlegum og líkamlegum
þrótti fólks.
Félagsmálastjóri Kefla-
víkur hefur nokkuð stóran
hóp á sinni könnu sem er á
mörkum að geta verið
heima. Sumt af þessu fólki
hefur elliglöp, orðið gleym-
ið. Sveitarfélögin hafa
komið til móts við svona
fólk og margt annað með
replubundinni heimilis-
hjalp auk heimahjúkrunar
og í dag fá t.d. 24 einstak-
lingar eina heita máltíð á
dag heimsenda í Keflavík
og 2 í Njarðvík. Eg veit
ekki nákvæmlega hvernig
þessu er háttað hjá hinum
sveitarfélögunum. Allt
þetta er í anda laganna og
stuðlar að því að fólk geti
dvalið lengur á heimilum
sínum.
Athvarf fyrir aldraða
hefur verið starfrækt í
Keflavík um nokkurt skeið
og gefist vel. Fólk þarf að
vera rólfært til að geta sótt
athvarfið en gerður hefur
verið samningur um flutn-
ing á fólkinu til og frá heim:
ilum með leigubílum. I
athvarfinu er möguleiki á
ýmsu til dægrastyttingar.
Að lokum í þessari upp-
talningu er vert að minna á
Styrktarfélag aldraðra sem
er með ýmiskonar starf-
semi fyrir eldra fólk.
Framtíðarsýn í málefn-
um aldraðra.
Mjög fjárfrekar fram-
kvæmair eru brýnar í heil-
brigðismálum Suðurnesja-
búa og alls ekki dugir að
sofna á verðinum. Fagna
ber því sem þegar hefur
áunnist.
Bæta þarf úr skorti á
sjúkrarúmum á Suðurnesj-
um og það verður best gert
með stækkun sjúkrahúss-
ins. Talað hefur verið um
100 rúma spítala og þá 60
rúm fyrir lyflækninga- og
langlegusjúklinga. Verður
þá nér um að ræða deildar-
skiptan spítala og rekstur
allur hagkvæmari en nú er.
Hægt væri að annast
flesta sjúka, unga sem gaml-
a, á heimaslóðum auk þess
sem aðstandendur ættu
auðveldara að vera nálægt
sínum nánustu þegar veik-
indi ber að höndum. Stórt
sjúkrahús skapar ný at-
vinnutækifæri og dregur að
sér meira sérhæft fólk. Eg
tel að finna verði stað fyrir
SKIPTING SAMKVÆMT HAGSTOFU ÍSLANDS 1.1 2. 1 983:
F. 1888-’99 F. 1900-’19 Alls
Keflavík:
Karlar 14 208 222
Konur 22 253 275
Grindavík:
Karlar 6 52 58
Konur 6 53 59
Njarðvík:
Karlar 6 44 50
Konur 13 47 60
Hafnir:
Karlar 1 10 11
Konur 2 5 7
Miðneshreppur:
Karlar 5 45 50
Konur 2 39 41
Gerðahreppur:
Karlar 4 39 43
Konur 4 41 45
Vatnsleysustrandarhreppur:
Karlar 1 13 14
Konur 2 5 7
Konur 494 = 88 854 942
Karlar 448.
Elstu einstaklingar 95 ára.
Yngstu einstaklingar 64 ára.
nýtt dvalarheimili á Kefla-
víkur-Njarðvíkur svæðinu
og hefjast handa sem fyrst.
'Hugsa mætti sér að byggja
slíka byggingu í áföngum
eftir þörfinni. I slíkri bygg-
ingu kæmi til greina að hafa
einstaklingsherbergi og
hjónaherbergi með eldhús-
krók auk sameiginlegra
vistarvera. Hlévangur er í
óhentugu húsnæði og
jyrfti starfsemin að flytjast
jaðan þegar nýtt dvalar-
íeimili verður byg^t.
Mikill hugur er í Grind-
víkingum að byggja upp að-
stöðu fyrir aldraða og hefur
þegar verið hafist handa við
að byggja þjónustustaði
fyrir aldraða. Fyrirhugað er
að byggja heilsugæslustöð í
tengslum við þessa bygg-
ingu, að ég best veit.
Það er ekkert annað en
gott um það að segja að
sveitarfélögin byggi hent-
ugar íbúðir fyrir aldrað fólk
og stuðli þannig að því að
gamalt fólk geti haldið
neimili lengur e.t.v. með
einhverri hjálp.
Oldruðu folki kemur til
með að fjölga hratt hér til
aldamóta og hugsanlega
hraðar en annarsstaðar á
landinu. Skv. tölum Hag-
stofu Islands árið 1983 voru
494 konur á aldrinum 64-95
ára en 448 karlar.
(Sjá töflu hér að neðan t.v.)
Að lokum: látum Jjað
ekki sannast að erfitt se að
vera gamall. Gerum allt til
að tryggja gömlum
áhyggjulaust ævikvöld og
búum þannig í haginn fyrir
okkur sjálf.
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Bifreiðaverkstxðið
Berg hf.
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum samstarfið á árinu.
S tarfsmannafélag
Keflavíkurbxjar
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Ljósboginn
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Fiskanes hf, Grindavík
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu.
Aðalstöðin hf
Sendum storfsmönn-
um okkar, suo og öörum
Suðurnesjomönnum
bestu óskir um
gleðileg jól, gott og
forsælt komondi ár.
Þökkum somstorfið á
árinu sem er oð líða.
DVERGHAMRAR
KEFLAVÍKURFLUGVELLI