Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 28
JÓLABLAÐ 1985
Öldrunarmál á Suðurnesjum
Erindi flutt á síðasta aðalfundi SSS
Undir liðnum „Málefni aldraðra (á Suðurnesjum) í
nútíð og framtíð“ á aðalfundi SSS a dögunum fluttu
Stefán Tómasson formaður Öldrunarráðs Grinda-
víkur og Jón A. Jóhannsson yfirlæknir, form. Þjón-
ustuhóps aldraðra á Suðurnesjum, athyglisverð erindi
sem við munum birta hér að mestu óstytt.
Stefán Tómasson:
Arum saman hefur það
verið þannig í Grindavík að
hafi aldraðir þurft að leita
sér vistunar á vistheimili,
hafa þeir þurft að leita út
fyrir bæinn, því í Grindavík
er engin aðstaða til vist-
unar aldraðra.
Það munu vera all
nokkur ár síðan að Grinda-
víkurbær samdi við Hrafn-
istu í Hafnarfirði um að
kaupa tíu vistrými þar. En
þá mun DAS hafa leitað til
margra sveitarfélaga utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins
um kaup á vistrýmum, en
Grindavíkurbær mun hafa
verið eini bærinn sem gekk
inn í það samstarf.
Það var svo á árinu 1982
að nokkur félagasamtök í
bænum tóku sig saman um
að hrinda af stað byggingu
vistheimilis á staðnum, en
íessi samtök eru: Kiwanis-
tlúbburinn Boði, Lions-
tlúbbur Grindavíkur,
Stefán Tómasson
Kvenfélag Grindavíkur,
Sjómanna- og vélstjórafél-
a^ Grindavíkur, Verkalýðs-
felag Grindavíkur, JC
Grindavík, Rauðakross-
deildin í Grindavík og Ut-
vegsmannafélag Grinda-
víkur. Þá fengu þessi félög
bæjaryfirvöld einnig í lið
með sér. Fljótlega var svo
DAS boðin aðild og þáðu
þeir að taka þátt og nöfum
við notið góðs af þeirri
miklu reynslu sem þeir aðil-
ar hafa í slíkum fram-
kvæmdum.
Fyrsta verkefni hópsins
var að gera könnun á þörf-
inni fyrir slíkt heimili á
staðnum og í því sambandi
voru gerðar tvær kannanir
meðal aldraðra íbúa bæjar-
ins. Aðra könnunina ann-
aðist Rauðakrossdeildin og
hina JC Grindavík. í þess-
um könnunum kom fram
að mikill áhugi var fyrir
vistheimili á staðnum og að
vistheimili fyrir 40 vist-
menn muni vera heppileg
stærð.
í Ijósi þessara niður-
staðna var sótt um leyfi
stjórnvalda til að reisa 40
manna vistheimili. Þegar
það leyfi var fengið var
stofnsett sjálfseignarstofn-
un sem kallast „Heimili
aldraðra í Grindavík“ og
aðildarfélögin tilnefndu 1
fulltrúa hvert í stjórn og
stjórnin kallar sig „Öldrun-
arráð Grindavíkur“. Þá var
hafist handa við að kanna
hvað verið væri að gera í
þessum málum annarsstað-
ar og í því sambandi skoð-
uðu stjórnarmenn allmörg
vistheimili víðsvegar um
landið.
Ut úr því var svo ákveðið
að heppilegast væri að reisa
verndaðar þjónustuíbúðir
með umtalsverðu sameigin-
legu rými. I sameiginlega
rýminu er gert ráð fyrir
borðsal, eldhúsi og umtals-
verðu rýmþ fyrir tóm-
stundaiðju. I byggingunni
er gert ráð fyrir 16 hjónaí-
búðum og 8 einstaklingsí-
búðum, en 4 hjónaíbúðir
eru þannig hannaðar að
með litlum breytingum má
breyta hverri þeirra í tvær
einstaklingsíbuðir. I hverri
íbúð er gert ráð fyrir stofu,
svefnherbergi, baði og
ágmarks eldhúsaðstöðu,
Dannig að vistmenn ráða
5ví, hvort þeir borða í sam-
eiginle^a borðsalnum eða
inni á íbúðunum.
Það var svo seint á árinu
1983 að hafist var handa við
jarðvinnu og var henni lok-
ið um vorið 1984. Þá um
haustið var byrjað á sökkl-
um og voru þeir kláraðir á
fyrrihluta þessa árs. Þá hef-
ur nýlega verið samið um
uppsteypu alls hússins og er
þar gert ráð fyrir að þjón-
ustuálman verði uppsteypt
og fullkláruð að utan í mai á
næsta ári og íbúðaálmurnar
verði uppsteyptar og full-
kláraðar að utan síðla árs
1987.
Fjármögnun hefur farið
[>annig fram, að í upphafi
ögðu aðildarfélögin fram
stofnframlög og dugðu þau
fyrir frumteikningum. Þá
var farið af stað með fjár-
mögnun meðal bæjarbua í
formi gjafabréfa. Þeim var
mjög vel tekið og tókst að
klára jarðvinnu fyrir þá fjár-
muni. Þá var leitað til
Framkvæmdasjóðs aldr-
aðra, en þaðan hafa ekki
komið miklir fjármunir
ennþá. Þá fengum við lán úr
Byggingarsjóði aldraðra á
síðasta ári en skv. reglum
)ess sjóðs reynir hann að
ána um 10% af byggingar-
tostnaði vistheimila. Þá
tefur verið samið við
Húsnæðisstofnun ríkisins
um framkvæmdalán og
mun það lán duga til upp-
steypu á um 2/> hluta huss-
ins. Það er von okkar sem
að byggingunni stöndum
að takast megi að fá það
mikið fjármagn frá Fram-
kvæmdasjóði aldraðra, að
það takist að ljúka upp-
steypu hússins á tilsettum
tíma.
VÍKUR-fréttir
Þau félagasamtök sem
standa að pessu eru ekki
einu félögin í bænum sem
vinna að rramgangi málefna
aldraðra í Grindavík. Það
gerir deild Styrktarfélags
aldraðra í Grindavík einnig
og hefur deildin haldið uppi
kröftugu félagsstarfi í Safn-
aðarheimili og staðið fyrir
heimsóknum aldraðra
Grindvíkinga til annarra
byggðarlaga á Suðurnesj-
um. En það er von okkar
sem stöndum að heimili
aldraðra í Grindavík, að
takast megi í framtíðinni
jafn gott samstarf við aðrar
hliðstæðar stofnanir á
svæðinu og samstarf sveit-
arfélaganna á Suðurnesj-
um.
Jón A. Jóhannsson
Jón Á. Jóhannsson:
Ætla ég í bvrjun að rifja
upp hlutverk þjónustu-
hóps aldraðra sem skil-
greint er í lögum um mál-
efni aldraðra sem samþykkt
voru á Alþingi 18. desem-
ber 1982. Þar segir að þjón-
ustuhópurinn skuli fylgjast
með heilsufarslegri og fél-
agslegri velferð aldraðra í
umdæminu og nota vist-
unarþörf aldraðra í um-
dæminu á stofnanir fyrir
aldraða. Ætíð skal þó haft
að leiðarljósi það markmið
laganna að aldrað fólk gæti
sem lenpt búið eðlilegu
heimilislifi.
Núverandi ástand í mál-
efnum aldraðra.
Heimahjúkrun hefur
verið rekin um árabil við
Heilsugæslustöð Suður-
nesja. Starfshópurinn sem
annast hana hefur saman-
staðið af hjúkrunarfræðing,
sjúkraliðum og ófaglærðu
fólki. Starfshópurinn hefur
alla tíð haft gott samstarf
við heilsugæslulækna.
Starfið felst í almennri
hjúkrun, eftirliti, lyfjatil-
tekt, böðum og leiðbein-
ingum til aðstandenda. Þarf
í sumum tilvikum að vitja
þessara sjúklinga jafnt á
helgum sem virkum
dögum. Það hefur s)Int sig,
að þörfin fyrir vist a hjúkr-
unardeild er minni á stöð-
um, þar sem svona þjónusta
er rekin. 47 einstaklinga er
nú vitjað reglulega og af
þeim teljum við að 10