Víkurfréttir - 19.12.1985, Blaðsíða 5
VÍKUR-fréttir
JÓLABLAÐ 1985
Votiorðslaus jðlatré
Er Rainbow Hope kom
til Njarðvíkur í síðustu viku
stöðvaði Tollgæslan á
Suðurnes|um einn gám úr
skipinu. Astæðan var sú að
í gámi þessum voru jólatré
ætluð tii skreytinga uppi á
flugvelli, en trjánum fylgdu
engin heilbrigðisvottorð.
Oll jólatré sem flutt eru
inn í landið þarf áður að
sprauta með sóttvarnarefni
og koma vottorð með þeim
um að slíkt hafi átt sér stað
og síðan gefur landbúnað-
arráðuneytið heimild til
innflutnings ef allir pappír-
ar eru í lagi.
Þegar ljóst var að vott-
orðin voru ekki í lagi var
þeirra aflað og gaf ráðu-
neytið síðan grænt ljós á
innflutninginn og heimilaði
tollgæslan þá innflutning á
þeim upp á flugvöll, eftir að
trén höfðu verið í gámum á
hafnarbakkanum í Njarð-
vík í rúman sólarhring.
epj.
Flugeldasala Stakks
Enn er liðið heilt ár og
stundum vitum við ekki
hvað orðið hefur um allan
þennan tíma. Við erum þó
flest nokkuð ánægð með
þetta tímabil hverju sinni.
Og hefur það verið venja
okkar að koma saman með
vinum og ættingjum og
gera okkur glaðan dag. Há-
punktur þessa hátíðahalda
er gamlárskvöld og eins og
venjulega höfum við versl-
að eitthvað smávegis af
flugeldum og blysum til að
kveðja gamla árið.
Eins og venjulega býður
Björgunarsveitin Stakkur
bæjarbúum flugelda til
sölu. Sveitin notar hagnað
af flugeldasölu til að fjár-
magna starfsemi sína og
hefur sú fjármögnun gengið
mjög vel, og eiga bæjarbúar
svo sannarlega þakkir
skilið fyrir sitt jákvæða
hugarfar í garð sveitarinn-
ar. Sveitin hefur staðið í
stórræðum að undanfömu
og stendur í raun enn.
Fyrirhugað er að taka nýja
húsnæðið í notkun í endað-
an febrúar n.k. og verður
húsið þá fullbúið.
Flugelda-útsölustaðir
verða eins og hér segir:
Eins og venjulega í skúr
við gömlu Fiskiðjuna, í
miðbænum og svo heljar-
mikill markaður í nýja
húsinu við Iðavelli gegnt
Bifreiðaeftirlitinu.
Stakksfélagar bjóða alla
Suðurnesjamenn hjartan-
lega velkomna, og biðja um
leið fólk að lesa leiðarvís-
ana sem fylgja flugeldum
og blysum og fylgja þeim út
í æsar. Þannig getum við átt
gleðilegt áramót og allra
fyrst slysalaus.
Þar að auki mun sveitin
starfrækja heimsendingar-
þjónustu alla dagana milli
jóla og nýárs og verður þá
hægt að fá tvenns konar
fjölskyldupoka senda
heim. Síminn er 1916 og er
honum svarað frá 10 á
morgnana til kl. 22.
Félagar i Björgunarsveit-
inni Stakk óska Suður-
nesjamönnum öllum
nesjamönnum öllum gleði-
legrar hátíðar og þakka
hjartanlega fyrir samstarf-
ið á árinu sem er að líða.
Þ.M.
Gneistar til grips
- Ný Ijóðabók eftir Kristin Reyr
Út er komin hjá bókaút-
gáfunni Letri í Kópavogi
ný ljóðabók: GNEISTAR
TIL GRIPS eftir Kristin
Reyr. Hann er löngu þjóð-
kunnur fyrir ljóð sín, leik-
rit og sönglög. Hafa nú
komið út eftir hann ellefu
ljóðabækur, átta leikrit og
fimm sönglagahefti. Enn-
fremur ritsafn og úrval
Suðurnesjaljóða á snældu.
Kristinn Reyr á sér fjöl-
breytta strengi á hörpu og
hefur frá fyrstu tíð verið í
hópi þeirra, sem yrkja jöfn-
um höndum háttbundið og
í því frjálsa formi, er reynd-
ist vaxtarbroddur íslenskri
ljóðagerð undanfarna ára-
tugi.
I verkum Kristins er per-
sónulegur tónn og hefur
hann eignast fastan les-
endahóp gegnum tíðina.
Ljóðabókin Gneistar til
grips er 80 blaðsíður og hef-
ur að geyma 42 ljóð. Höf-
undur hannaði útlit og
kápu. Setningu annaðist
Acta hf. Hafnarfirði og
Letur hf. Kópavogi fjölrit-
aði.
Útgefandi
ATVINNA
Beitningamenn vantar á m.b. Albert Ólafs-
son KE 39. Upplýsingar í símum 2304 og
1333 eftir kl. 17.
HATIÐAR-
DAGSKRÁ:
Af
-^atseðnT
Vili~IKfi
y&Dað
lAMb
AlÆRi
,raer>rn
hú
Ssiris
695
Ljúffengur matseðill
helgarinnar framreiddur
föstudag, laugardag og
sunnudag frá kl. 18.
Opið yfir hátíðarnar sem hér segir
Þorláksmessa: Opið kl. 10-23.30.
Aðfangadagur: Lokað.
Jóladagur: Lokað.
2. í jólum: Opið kl. 11-22. - Barinn opinn
Gamlársdagur: Lokað.
Nýársdagur: Lokað.
Barinn opinn.
Suðurnesjamenn - Verslum heima.
VÍK UR-fréttir
Því miður verðum við að tilkynna það, að nýi
pítu-, pizzu- og hamborgarastaðurinn okkar
opnar ekki fyrr en á nýju ári.
En, viðskiptavinir góðir, - biðin er þess virði.
Veitingahúsið GLÚÐIN
og VEISLUÞJÚNUSTAN
hafnargötu 62:
^Kaupmenri^
Verslunarfóik
Athugiö aö panta SNITTURNAR og
BRAUÐTERTURNAR
i timanlega fyrir iól. i
Sendum viðskiptavinum okkar
og öðrum Suðurnesjamönnum
bestu óskir um gleðileg jól og
farsælt nýtt ár, með þökk fyrir
stuðning við uppbyggingu
fyrirtækja okkar.
Verið ávallt velkomin til viðskipta.
F.h. Glóðarinnar og Veisluþjónustunnar.
AXELJÓNSSON
OPNUM NÝJA STAÐINN A NÝJU ARI!