Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 26

Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 26
JÓLABLAÐ 1985 VÍKUR-fréttir rlprg^irl Vestur-þýsk fullkomnun. Grossag á að baki 120 ára sögu í framleiðslu heimilistækja. í dag væri Grossag ekki til nema vegna þess að gæðin hafa alltaf verið sett á oddinn. Svo er enn. ~\ r Einnar, tveggja og þriggja hæða galdragrill, úti- og inni- grill. Nú taka gestirnir þátt í matseldinni og allir fá matinn samtímis, hver og einn eftir s(n- um smekk. Gerir matmálstímann að ógleymanlegri skemmtun. Hraðsuðukanna. Eldsnögg að ná upp suðu. Hefur alla eiginleika venjulegs hraösuðuketils og fjöl- marga aðra. Ekki aðeins til að sjóða vatn heldur líka egg o.m.fl. Sléttur botn - auðveld þrif. Djúpsteikingarpottur. Loksins rétt stærð og lögun; pott- ur sem lítið fer fyrir í eldhúsinu. Fullkomnun I tæknibúnaði og hönnun. Sjálfvirk hitastilling sem útilokar eldhættu. Vestur-þýsk verðlaunahönnun. / N f.y “ *' V j Sjáltvirk kaffivél. Engin venju- leg kaffivéll Með nútímatækni er séð til þess að I þessari 15 bolla vél sé kaffið nýtt til hins ítrasta. Ein af örfáum vélum með sér- stakt tesigti. S jón er sögu ríkarí. RAFBUÐ R.O. Hafnargötu 44 Keflavik Sími 3337 LINDIN - Alltaf í leiðinni - Minnum á okkar margrómaða jólakonfekt og annað góðgæti. Hjá okkur er konfektið alltaf nýtt. LINDIN Hafnargötu 39 - Keflavík - Sími 1569 Almennar bílaviögerðir Mótorstillingar - Hjólastillingar M. Guðbergsson Vinnusími: 7139 Heimasími: 7185 Orðvar skrifar: Jóla hvað? Árið er bara liðið og aftur komin jól. Húsmæðuráöll- um aldri eru byrjaðar að bera út húsgögnin, berja þau og lemja, svo undir tek- ur í húsunum í kring. Ná- grannarnir þyrpast út í glugga til að láta í ljós aðdá- un sína á myndarskapnum. Allt er þvegið og málað; sumir skipta um eldhúsinn- réttingar og teppi en aðrir láta sér nægja nýtt sófasett, eða annað smávegis. Eftir viku Ajaxæði um íbúðina hefst svo jólabaksturinn. Hvergi er hægt að leggja neitt frá sér fyrir deigi og kökuboxum, sem eru á öll- um ólíklegustu stöðum um íbúðina. Baksturinn stend- ur líka yfir í viku, þá er snarl í öll mál og síminn upptekinn allan tímann við að skiptast á uppskriftum. Þegar fyrri hreingern- ingu og bakstri er lokið, hefst búðarrápið. Það geta hæglega farið 4-5 dagar í að kanna vöruverð og gæði, nema hjá þeim veraldar- vanari, sem versla aðeins erlendis fyrir jól og páska. Eftir að hafa borið saman bækur sínar og náð sam- komulagi um hvað hver á að fá, fer öll fjölskyldan af stað. Venjulegast ræður konan ferðinni, hinir elta. Sá sem er svo heppinn að vera væntanlegur þiggjandi fær að bíða útí bíl meðan kaupin fara fram. Oft er það hátíðlegasta stundin í öllu þessu standi, þegar meirihluti fjölskyldunnar kemur með gjöfina fyrir aftan bak og setur hana í farangursgeymsluna. Meira má alls ekki kaupa í þeirri ferð, allir heim, losað úr bílnum og látið á þann stað heima, þar sem vænt- anlegur eigandi rekst ekki á það. Svona endurtekur sagan sig, þangað til búið er að kaupa fyrirallt heimilis- fólkið, þá loksins fer öll fjölskyldan saman í að kaupa fyrir afa og ömmu og fíeiri. Kauptíðin stendur alltaf fram á hádegi á aðfanga- dag, sama hvað byrjað er snemma í desember. Sumir heimilisfeður eru jafnvel svo erfiðir, að það verður að hella þá fulla á Þorláks- messukvöld, til að kaupin gangi fyrir jól. Aðfangadagur er mesti bónusdagur ársins. Þá er seinni hreingerning, skipt á öllum rúmum, sparifötin dregin fram og pressuð, hárgreiðsla og farið einu sinni enn yfir jólaseríuna. Venjulega er einn á stans- lausum hlaupum útí búð, því alltaf vantar eitthvað, jafnvel kerti í bílinn, sem er alveg að gefast upp á öllu saman, enda veit hann ekki að það eru að koma jól. Um hádegið færist ró yfir mannskapinn en það er að- eins í örfáar mínútur. Þaðá eftir að keyra út gjöfunum og öllum kortunum, eigin- menn og yngstu börnin eru að jafnaði notuð í það. Þeg- ar þau koma heim um fjög- urleytið, útkeyrð og skjálf- andi úr kulda, kemur í ljós að gleymst hefur að skrifa nokkur kort. Þau eru skrif- uð í hvelli og tekinn annar rúntur. Þrátt fyrir allan þennan hamagang er mat- arlyktin og jólaóskir til sjómanna á hafi úti í út- varpinu smám saman að koma öllum í jólaskap. Hárréttur tími til að birtast aftur heima er kl. 5, þá eru sendlarnir reknir í bað og höfð fataskipti. Rétt fyrir kl. 6 stendur öll fjölskyldan prúðbúin og bíður bara eft- ir að útvarpið hringi inn jól- in, þá loksins eru jólin komin. Jólasteikin, sem hús- móðirin hefur lagt allt sitt stolt í síðustu 3-4 tímana hverfur ofaní mannskap- inn á 10-15 mínútum. Venjulegast hjálpast allir við uppvaskið, í eina skiptið á árinu. Um níuleytið eru allir búnir að fá gjafírnar og mamman steinsofnuð í sóf- anum. Þá ryðjast börnin út til vina sinna til að bera saman eftirtekjuna. I mess- unni um miðnætti eru flest- ir búnir að ná sæmilegu andlegu jafnvægi, sem rugl- ast svo aftur í kossaveseni í lokin, þegar jólastemming- in nær hámarki. Gleðileg jól. Orðvar

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.