Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 42

Víkurfréttir - 19.12.1985, Side 42
JÓLABLAÐ 1985 VÍKUR-fréttir „Verð þeirri stundu fegnastur þegar ég hætti að elda kjöt“ - segir Rúnar Marvinsson, Sandgerðingur og hóteleigandi að Búðum á Snæfellsnesi Ögmundur Rúnar Marvinsson er Sandgerðingur, fæddur árið 1945. Hann hóf sinn atvinnuferil á venjulegan hátt og fór á sjóinn ungur að árum, eins og margir Suðurnesjamenn. Þar byrjaði hann að búa til mat og enn þann dag í dag, um 20 árum síðar, er hann enn að. Ögmundur Rúnar, eða bara Rúnar, eins og hann er kallaður, er einn af eigendum hótelsins að Búðum á Snæfellsnesi. Búðir hafa fengið afburða góða dóma hjá fólki og ekki síst hjá matargerðar-ritstjóra DV, Jónasi Kristjánssyni, sem segir Búðir vera næst besta veitingastað á Islandi. Og eins og kannski margir kannast við, þarf bara þó nokkuð meira en nokkuð gott til að fá góða dóma hjá ritstjóranum. Okkur lék forvitni á að vita um hagi Rúnars, sem flutti snemma frá heimahögum og er nú yfirkokkur á Búðum, stað í sveitinni, sem gerir það gott og er aðeins opinn 4-5 mánuði á ári. Við spurðum Rúnar fyrst um æsku og uppeldisár: ,,Ég er fæddur og uppalinn í Sandgerði og dvaldist þar til um tvítugt. Þá flutti ég til Keflavíkur sem var draumaborgin á þessum tíma, því Sandgerði var nújítið þorp á þessum árum. I Keflavík bjó ég í ein 3-4 ár. Síðan hef ég verið á hinum ýmsu stöðum“. Hvar þá? „Ég bjó í Ólafsvík í 5-6 ár og á Eskifirði var ég svo- lítinn tíma og síðan í Reykjavík. Þar á ég nú íbúð“. Hvað hefurðu verið að bardúsa? . ,,Ég hef verið í mat- reiðslu og byrjaði snemma sem kokkur til sjós. Ég mátti ekki vera að því að vera í skóla og hætti, 14 ára pjakkur. Og af því ég var svo lélegur að fiska á hand- færunum þá var ég skikkað- ur til að kokka. Ög ég sem kunni ekki einu sinni að sjóða vatn, hvað þá meira. Ég man alltaf eftir orðum Braga Björnssonar skip- stjóra, er hann sagði svo oft eftir matinn: „Komdu svo með kaffi til að ná óbragð- inu úr munninum". Varstu áfram á sjó? „Já, ég var það þó ég flytti til Keflavíkur. Ég kom þó aðeins við á Vell- inum en kunni illa við mig þar og hætti fljótt“. Af hverju? „Ég var á móti hernum, ekki Ameríkönunum sjálf- um, heldur bara hernum. Annars var ég mest á sjó, alveg fram til 1970. En hvað kom til að þú fluttir? „Ég man nú ekki ástæð- una. Ætli ég sé ekki bara flakkari í eðli mínu“. Er þér eitthvað minnis- stætt úr Sandgerði frá æskuárunum? „Það er nú ýmislegt. Eitt er nú kannski sem situr í mér. Það er þegar við lékum okkur svo stundum skipti með kassavörubíla, sem við smíðuðum sjálfir. Við útbjug^um vegi um allt, þá voru náttúrlega malarvegir um allt, svo gerðum við þetta í mikilli alvöru og fór- um í alvöru bílaleik. Einn var stöðvarstjóri og sendi hina með mjólk til Reykja- víkur. Mjólkinni, sem voru kökudropaglös, var svo raðað á pallinn og svo fékk maður útborgað í happ- drættismiðum. Þeir voru skrautlegir á þessum árum og þóttu mjög heppilegir í Verka kvennafélag Keflavíkur og Njarövíkur sendir félagsmönnum sínum og öðrum Suðurnesjabúum bestu óskir um gleðileg jól, gott og farsœlt komandi ár, og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða. „Ég var svo lélegur á handfærunum, að ég var skikkaður til að kokka, - og ég sem kunni ekki einu sinni að sjóða vatn ..." stað peninga. Þetta var svakalega gaman. Að þessu undanskildu var aðal sport- ið að fara í sundlaugina í Keflavík og að því loknu að fara í Alþyðubrauðgerðina og fá sér vínarbrauð og litla kók“. En snúum okkur að alvörunni. Nú ertu kokk- ur á Hótel Búðum á Snæ- fellsnesi. Ritsjóri DV, einn helsti gagnrýnandi á sviði matargerðar, segir Búðir vera næst besta veitingastað á Islandi? „Já, hann segir það“. Er það rétt? „Þetta hefur gengið von- um framar. Annars segi ég nú bara eins og Lási kokk- ur, sem landsfrægur er, je^ar hann var spurður að dvi hvort hann væri góður tokkur: „Ég, elskan mín, tef aldrei misst mann“. Lási kokkur var frægur maður og sagði margar fleygar setningar“. Segðu okkur meira frá Búðum. Ertu eigandi þarna? „Við erum sjö saman sem eigum þetta. Þetta er gistihús og matsölustaður með gistirými fyrir 40 manns og ýmsilegt í krin^- um það. Við höfum t.d. bat til að afla fanga á. Meining- in er að setjast þarna að, en við höfum hingað til aðeins haft opið frá vori og fram á haust“. Hvenær byrjaði þetta ævintýri? „Við tókum við þessu árið 1979, en þá hafði stað- urinn verið lokaður í tvö ár og húsið orðið ansi sjúsk- að. Við tókum þetta á leigu og voru margir hissa á því og þótti þetta feigðarflan, þar sem aðrir höfðu gefist upp á þessu. En þetta tokst“. Og þú „brasar“ því nú á Búðum? > Já, já“. Hefurðu brasað ofan í Jónas Kristjánsson? „Ég hef brasað ofan í Íónas, ég er nú hræddur um að“. Var það meira spenn- andi? „Ja, ég veit ekki. Það er náttúrlega voða gaman að fá góða umfjöllun. Vandaðirðu þig meira en venjulega? „Ég veit ekki hvort ég vandaði mig meira, alla vega ekki minna“. Leggurðu meiri áherslu á fiskrétti en kjöt? ^,,Já, ég hef lagt fyrir mig sérstakan stíl, ákveðna mat- argerð, getum við sagt. Er mjög hrifinn af fiski og hér er auðvelt að fá ferskan fisk. Bæði veiðum við hann sjálfir og svo er auðvelt að fá nýjan fisk frá Ólafsvík og Grundarfirði. Við fáum mikið af fiski þaðan. Nú, svo hefur áhugi minn fyrir grænmetisfæði aukist mikið. En ég verð þeirri stund fegnastur þegar ég hætti að elda kiöt. Mér leiðist kjöt, mér finnst við ekkert þurfa að éta kjöt“ En eldar samt kjöt? „Já, ég elda auðvitað hvað sem er“. Er kannski hægt að fá vínarbrauð eins og úr Alþýðubrauðgerðinni? „Já, auðvitað, og litla kók með“. Koma Suðurnesjamenn í heimsókn að Búðum? „Það koma margir Suð-

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.