Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 57

Víkurfréttir - 19.12.1985, Síða 57
VIKUR-fréttir JÓLABLAÐ 1985 Draumur Dóra litla eftir Margréti Jónsdóttur óri litli á Brekku var búinn að missa mömmu sina. Hún hafði dáið skömmu fyrir vetur- nætur og nú var komið fast að jól- um. Dóri var aðeins 9 ára gamall, og honum hafði tekist furðanlega að saetta sig við móðurmissinn. En nú, þegar jólin voru komin, rifjaðist allt upp fyrir honum að nýju. Hann hafði verið sendur inn á dal og var á heimleið. Það var aðfanga- dagur jóla og'tekið að rökkva. — Jólahelgin nálgaðist. — Hvlt fann- breiða lá yfir öllu, og stjörnurnar voru nýbúnar að opna blikandi aug- un sln. Dóri fór sér ofur hægt. Hafði hon- um þó verið sagt að flýta sér, svo að hann gæti verið búinn að hafa fataskipti I tæka tið. Hann leit upp hliðina. Skógar- hrlslurnar stóðu á kafi I snjó, og það litla, sem I þær sást, var bert og nakið og dökkleitt, svo að það minnti á litinn á likkistunni hennar mömmu. Og snjórinn, öll þessi mjöll, hún var eins og llkklæðið, sem hann mundi svo vel eftlr. Hvemig stóð á þvf, að hin börn- in á bænum áttu bæði mömmu og pabba. Hann hafði aldrei séð pabba sinn, og Guð tók mömmu hans frá honum. Ailir sögðu að mamma hans væri hjá Guði, og að henni liðl fjarska vel. •— En hvers vegna gat hún þá aldrei komið til Dóra, og hvernig gat henni liðið vel, þegar Dóri var ekki hjá henni. Um allt þetta var Dóri að hugsa, þar sem hann labbaði heimleiðis. Og hugsanirnar urðu æ þyngri. Það var ekki Dóri hennar mömmu, sem rölti heim túnið á Brekku, það var þroskaður unglingur, sem gllmdi við gátur tilverunnar. Heima á bænum var allt á tjá og tundri. Fólkið var á þönum úti og inni, og allir voru venju fremur glað- ir i bragði. En Dóra litla var svo þungt fyrir brjósti, að hann vissi ekki, hvað hann átti af sér að gera. Hann læddist fram á stofuloft. Þar var rúmfleti eitt, er stundum var not- að um sláttinn, þegar flest var fólk- ið. Einhverjir fataræflar voru I rúm- inu. Dóri grúfði sig niður I fatalepp- ana og grét þungum ekka. — Og það var gott að gráta. — Þunginn hvarf smátt og smátt, og raunahugsanirnar hurfu á braut. Það var alveg eins og mamma væri að klappa ofan á hann og hann heyrði rödd hennar í fjarska. Sofðu Ijúfi sveinninn minn sit ég hér við stokkinn þinn. Þó að úti þjóti hrlð, þér skal vera hvlldin blið. Ró, ró og bíum bl. Ró, ró og blum bl, - bráðum kemur vor á ný. Úti lifna broshýr blóm, börnin syngja glöðum róm. Ró, ró og blum bl. Sofðu góði sveinninn minn, sástu hvlta engilinn, laut hann niður hægt og hljótt, hvlslaði að þér, góða nótt. Ró, ró og blum bl. VÍKUR- fréttir Jólabókin í ár. Dóri litli leit upp. Á loftskörinni stóð skinandi bjartur engill. Hann var svo stór, að hann náði nærri þvl upp I mæni. Vængirnir fagrir og hvítir og lágu aftur á bakið og sló á þá gullslit. Hárið bylgjaðist eins og norðurljósasveipur og lék um engilinn alian. Hann gekk hægt og tlgulega f áttina til Dóra. Dóri var sestur upp I 'rúminu og starði á engilinn, hann kom nær og nær, og nú brosti hann svo undur blíðlega. Þá þekkti Dóri bros móður sinn- ar. Dóri litli hrökk upp úr svefnin- um og stökk fram á gólfið. Honum sýndist engillinn hverfa niður af loftsbrúninni. ,,Dóri minn, értu þarna, góði minn? Ég er búinn að leita þln um allan bæinn. Hvernig stendur á þér að gera þetta b.arn?“ Það var húsmóðirin, sem kom upp stigann. Dóri var svo utan við sig eftir drauminn, og varla vaknaður. Hann hljóp I fang konunnar. „Elsku mamma," hrópaði hann. „Blessaður munaðarleysinginn," búa til jólagjafirnar og allir spurðu þelr hvað væri langt þangað til að það kæmi kvöld. Búálfamamma lét þá strax hafa eitthvað að gera, svo að tlminn væri fljótari að llða. Hún bað þá um að fara út I kirkju og veiða allar mýsnar þar, vesalings litlu dýrin væru svöng og köld, það væri ekkert ætilegt þar. Mýsnar létu veiða sig auðveld- lega nema ein, hún skemmti sér svo vel við að hlaupa á nótunum á orgelinu, en að lokum náðu þelr henni llka. Búálfamamma læddist niður af loftinu og setti allar mýsn- ar inn I búrið hjá prestsfjölskyld- unni. Hún var nú ekki alveg viss um að fjölskyldan væri hrifin af músum, en hvað gerðl það til þegar prest- urinn kom aldrei I búrið og prests- maddaman — já, hún æpti bara plnulltið og skellti svo aftur dyr- unum. Mýsnar hins vegar komust þegar I stað I reglulegt jólaskap. „Við flytjum aldrei I kirkjuna aftur," sögðu þær hver við aðra, meðan þær átu lifrarkæfuna, ostinn og annað góðgæti. Þær völdu sér stórt bjúga að jólatré, það var betra að dansa I kringum það en grenitréð, það er jú ekki hægt að éta grenl- tré. Loksins var komið kvöld, dásam- legasta kvöld ársins, allir litlu bú- átfakrakkarnir voru komnir með magaplnu af eftirvæntingu. Las sat og veifaði öðrum tréskónum með stórutá, hann var eins og venjulega glorsoltinn. En búálfamamma var búin að sjóða mjólkurgrautinn og búálfapabbi stóð á skörinni og tók á móti öllum gestunum. Þegar dyrnar voru opnaðar inn I jólastofuna, heyrðust undrunaróp frá öllum- búálfunum. Á jólatrénu sátu alllr fuglar skógarins, allir staðfuglarnir, þrestir, krákur, hrafn- ar, músarrindlar og fleiri. Bæði fjöl- skyldan og gestimir voru allir sam- mála um að þetta værl fallegasta jólaskraut, sem þeir hefðu nokkru sinni séð. Þeir tókust I hendur og dönsuðu kringum jólatréð og sungu gamla jólasálma, og allir fuglarnir sungu með nema hrafninn og krák- an, þeir höfðu æft sig svo mlkið fyrir kvöldið að þeir voru orðnir þegjandi hásir. Þegar hætt var að syngja jóla- sálmana bar búálfamamma fram mjólkurgrautinn og allir búálfamlr tóku I flýti fram skeiðarnar slnar. Las hafði skeið I sinn hvorri hendl, þvl eins og áður er sagt er hann alltaf svangur, en I þetta sinn sagði búálfamamma ekki neitt, þvl nú voru jól.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.