Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
HEIMURINN
SÝRLAND
Rússar
rlandi muni geta stloftárásir þeirra í Sý
ánuði, að sögn áhrifamikilsyfir í þrjá til fjóra m
vu á föstudag. Sjálfirþingmanns í Mosk
ásirnar beinist aðallegasegja Rússar að ár
is íslams, IS, en vestrænir hegegn sveitum Rík n segja að
ist einkum vera aðrir hóparskotmörkin virð ppreisnarmanna sem
Bashar al-Assad ý Rússar styðja.
afa um hhBandaríkjamenn og Frakkar á IS-liða í
ra ogða gnandi. Nú óttast margira til árekst
andi.na flugl bardaga milli vestræ
BANDA
WASHIN O ki ðist á
fimmtudag ð s a á fó
Umpquca-háskóla u cer t
upHann er talinn hafa t
i.3.000 nemendur eru
. Bsinn síðan í ágúst að g
u hn yrforseti hvatti til þes
KKM O
T jSt órnvöld í
að badag vera að íhuga
dinja í lanænskra fyrirtæk
a við sjálfs
ahara er sunn
uðlindir.gur að Atlantshafi
eirraeru liðlega hálf m
eftkó lagði landið u
kurðaðn íadó
amtakaVop
SVÍÞJÓÐ
STOKKHÓLMI skirSæn
m stvísindamenn hafa ko
aðað þeirra niðurstöðu
líkamshæð skipti mikl
a ámáli varðandi hættun
fá krabbamein. Könn
n mæld.Varvoru gögn um 5,5 mill
niðurstaða a sem bættustn að fyrir h
við hæð ju 11% hjá
körlum og kirorsa
krabbamei di eftirvísl
einstakling kil
áhrif líkam
Alls búa 215 manns í Gallifa í
Katalóníu en þeir lýstu yfir
sjálfstæði frá Spáni fyrir
nokkrum árum. Þáverandi
bæjarstjóri, Jordi Fornas, af-
henti Katalóníu skatttekjur
þorpsins, um 1600 evrur, ekki
stjórnvöldum í Madrid.
Þau svöruðu m.a. með því
að rifja upp gömul lög og
krefjast þess að spænski
fáninn, ekki sá kata-
lónski, yrði látinn
blakta í Gallifa. Fornas
lét þá hengja up fána á
stærð við lítinn
farsíma. „Lögin
segja ekkert
um stærð-
ina,“ sagði
hann.
Hugmyndin um þjóðríkið erfjarri því að vera dauð,það hljóta flestir að viður-
kenna núna. Skoskir sjálfstæðis-
sinnar töpuðu að vísu atkvæða-
greiðslunni í fyrra en mikill
árangur þeirra varð vatn á myllu
margra annarra slíkra í Evrópu.
Vonir kviknuðu. Of sterkt er
sennilega að nota orðið skelfingu
til að lýsa viðbrögðum margra
ráðamanna í álfunni við auknum
krafti sem hlaupinn er í sjálfstæð-
iskröfur einstakra héraða, en
margir hafa áhyggjur. Rifjað er
upp að öfgafull og herská þjóð-
ernisstefna hefur stundum kveikt í
gömlu og hálfgleymdu tundri.
Hér verður ekki einu sinni reynt
að skilgreina hvað sé þjóð og hvað
ekki þjóð. En sjálfstæðishreyfingar
í Evrópu eru um margt ólíkar.
Sumar eru aðallega skipaðar
vinstrisinnum og bera þess keim,
aðrar hægrisinnum. Hjá sumum er
kveikjan krafa um aukið lýðræði
innan Evrópusambandsins. Andlit-
in eru mörg, sum frjálslynd, um-
burðarlynd, önnur boða ákafa
þjóðrembu og jafnvel rasisma. Og
inn í þetta allt spilar svo tíðarandi
uppreisnar þar sem hefðbundnir
stjórnmálaflokkar fá á baukinn.
Og minnstu munaði að meiri-
hluti Katalóna á Spáni greiddi
flokkum sjálfstæðissinna atkvæði
sitt nýverið. Stjórnvöld í Madrid
hafa brugðist við sjálfstæðisþrá
margra Baska með því að láta þá
hafa aukið sjálfsforræði í eigin
málum. Minna ber því á þessum
kröfum núna og hryðjuverka-
samtökin alræmdu, ETA, eru að
mestu hætt að sprengja. En sjálf-
stæðishreyfingar starfa líka í Gal-
isíu og jafnvel Andalúsíu. Ótti
manna í Madrid við að Spánn gæti
klofnað í mörg brot er ekki
ástæðulaus. Sumir vilja sameinast
öðru ríki. Transdnéstría er að-
allega byggð Rússum og íbúarnir
vilja sennilega fæstir vera hluti
Moldóvu, vilja verða rússneskir
borgarar þótt móðurlandið sé
langt í burtu. Á Kýpur hafa tyrk-
neskumælandi menn í norðurhlut-
anum lýst yfir sjálfstæði frá Kýp-
ur, aðeins Tyrkland viðurkennir
þetta nýja ríki.
Taflinu er ekki lokið í rústum
gömlu Júgóslavíu. Í sumar hótuðu
ráðamenn í Serbneska lýðveldinu,
sem er hluti af sambandsríkinu
Bosníu-Hersegóvínu, að efna til
þjóðaratkvæðis um sjálfstæði.
Sjálfstæði og þó …
ESB var upphaflega sam-
starf sjálfstæðra þjóðríkja
en afstaðan gagnvart að-
skilnaðarhreyfingum í
einstökum aðildarríkjum
hefur ávallt verið blendin. Út á við
hefur verið mælt gegn þeim, ella
hefðu heyrst ramakvein í London,
París, Madrid og Róm. En fram-
kvæmdastjórnin hefur samtímis
lagt áherslu á að héraða- og
sveitarstjórnir fengju beinan að-
gang að kjötkötlunum í Brussel.
Opinbera stefnan, nálægðarreglan
svonefnda, segir að heppilegast sé
að ákvarðanir sem snerta aðallega
hagsmuni einstakra héraða og
svæða séu teknar af íbúum þar –
stefna sem getur stundum gengið
þvert gegn stefnu ríkisstjórnanna.
Oft er um að ræða fámenna
sjálfstæðishópa. Ekki munu margir
Bæjarar enn vilja að fjölmennasta
sambandsríki Þýskalands skilji við
ríkið en þeir eru samt til. Í Belgíu
er hins vegar stærsti flokkurinn
nú þjóðernisflokkur Flæmingja
sem margir vilja sjálfstæði. Margir
frönskumælandi Vallónar vilja líka
sjálfstæði. 37% fólks á Bretaníu-
skaga í Frakklandi kalla sig Bre-
tóna fremur en Frakka og nær
fimmti hver kjósandi valdi sjálf-
stæði í könnun árið 2013.
Fleiri dæmi má nefna. Bæði á
Korsíku og Sardiníu eru aðskiln-
aðarhreyfingar, á fyrrnefndu eyj-
unni er lítill sjálfstæðishópur sem
öðru hverju sprengir til að láta
heyra í sér, á þeirri síðarnefndu
vilja margir ríkjasamband við
Sviss. Dæmi um gamalt vandamál
er Suður-Tíról sem varð hluti Ítal-
íu 1918 þótt nær allir íbúar væru
þá þýskumælandi.
Í nýlegri könnun sagðist nær
helmingur Suður-Tíróla vilja að-
skilnað frá Ítalíu. Efnahagsmálin
hafa sín áhrif: Héraðið, sem nú
hefur verulega sjálfsstjórn, er eitt
af þeim auðugustu á Ítalíu. Eins
og í öðrum norðlægum héruðum
Ítalíu, þ. á m. Feneyjum og Lang-
barðalandi, vilja margir losna úr
faðmlögum við fátæk héruð í suðri.
Nýjum Evr-
ópuþjóðum
gæti fjölgað
STAÐBUNDNAR HREYFINGAR UM AUKIÐ SJÁLFSFORRÆÐI
EÐA FULLT SJÁLFSTÆÐI ERU MARGAR Í EVRÓPU EN HAFA
FLESTAR VERIÐ FÁMENNAR. SÍÐUSTU ÁRIN LEIKA ÞÆR
HINS VEGAR MUN STÆRRA HLUTVERK, EINKUM Í SKOT-
LANDI EN EINNIG Á ÍTALÍU OG SPÁNI.
Jordi Fornas
VAGGA SJÁLFSTÆÐIS?
Sjálfstæðishreyfingar í Evrópu
Skotland
Bretlandi
Flæmingjaland
Belgíu
Transdnéstría
Moldóvu
Abkasía
Georgíu
Norður-Ossetía
Rússlandi
Téténía
Rússlandi
Nagorno-Karabakh
Aserbaídsjan
Kúrdistan
Tyrklandi, Írak & Íran
Bæjaraland
Þýskalandi
Suður-Tíról
Ítalíu
Korsíka
Frakklandi
Sardinía
Ítalíu
Serbneska lýðveldið
Bosníu & Hersegóvínu
Hersegóvína - Bosnía
Bosníu & Hersegóvínu
Kósóvó &Metohía
Serbíu
Norður-Kýpur
Tyrklandi
Vallónía
BelgíuBretaníaFrakklandi
Galisía
Spáni Baskaland
Spáni
Katalónía
SpániAndalúsía
Spáni
Grunnkort: freevectormaps.com
Heimild:The Guardian
* Aldrei ætti að láta nokkra þjóð eða þjóðarbrot vera gegnvilja sínum þátttakandi í stjórnmálalegu samstarfi.Ludwig von Mises, austurrískur hagfræðingur.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is