Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
Ég er ekki heimsins mesti hófsemdarmaður.Fjarri því. Þó finnst mér hófsemi eftirsókn-arverð. Ekki síst fyrir litla þjóð í litlu landi.
Vandi Íslendinga er að vera aldrei alveg vissir um
hvort þeir eru 330 þúsund eða 330 milljónir. Hallast
heldur að hinu síðara og vilja vera bestir í heimi og
stærstir.
En gæti verið að það sé gott að búa í litlu, fallegu
og fámennu landi. Ég er á því. Heyri hins vegar
marga tala í gagnstæða átt. Jafnvel að Íslendingar
geti ekki orðið þjóð á meðal þjóða fyrr en þeir eru
orðnir að minnsta kosti milljón talsins.
Á fundi í Hörpu heyrði ég einu sinni erlenda hag-
fræðinga gera upp efnahagshrunið. Einn þeirra
sagði að Íslendingar hefðu verið dæmdir til mistaka
vegna fámennis. Við gætum varla átt margt fólk
með viti, þjóð álíka fjölmenn og sveitarfélagið Cov-
entry í Bretlandi. Ekki man ég hvaðan þessi hag-
fræðingur kom, en sennilega frá stað þar sem stutt
er á milli húsa og sjónarhornið þröngt. Og í hag-
fræðinni sinni var hann greinilega vanur að hugsa
samkvæmt reikniformúlum og líkindareikningi.
Síður í sprengikrafti aðstæðna sem geti framkallað
það besta í fólki og gert hinn áhugalausa og sljóa
veranda að áhugasömum og vakandi geranda.
Fámenni getur verið gott og jafnvel lúxus. Lítið
samfélag, sem þó er sjálfbært, á að geta hleypt
mörgum að, virkjað hlutfallslega fleiri þegna sína
en fjölmennt samfélag er fært um að gera.
En þetta getur verið vandasamt. Á sama hátt og
það er vandasamt að passa upp á viðkvæmt land
þar sem aðdráttaraflið er víðernið og – viti menn,
fámenni. Ég er í hópi þeirra sem fagna auknum
straumi ferðamanna til Íslands. Að sýna gestum
landið okkar og kynna fyrir þeim menningu okkar,
örvar okkur til að vilja fara vel með land og náttúru
og leggja rækt við það besta í menningu okkar.
Fyrir bragðið verðum við glöggskyggnari á hið
góða og eftirsóknarverða sem við búum yfir.
En þá komum við aftur að hófseminni. Við þurf-
um að fara hægt í sakirnar, líka í ferðamennskunni.
Gleyma því ekki hvað þar er sem heillar, aðkomu-
menn ekkert síður en okkur sem hér búum.
Ég hef oft glaðst yfir því hve ferðaþjónustan er
að þroskast, bjóða upp á sífellt fjölbreyttara og
vandaðra val. Innanum er að sjálfsögðu fúskið og
græðgin og hraðinn. Ég hef samúð með sveit-
arfélögum sem óar við byggingu sífellt stærri hót-
ela í sinni heimabyggð. Nú loksins þegar núverandi
hótel og bændagisting eru að byrja að borga sig er
hætt við að risahótelin ryðji hinni smágerðari flóru
úr vegi. Varla getur það talist eftirsóknarvert. Ég
sendi því stuðningskveðjur til sveitarfélaga og
skipuleggjenda sem vilja fara varlega í sakirnar og
ekki gerast of ginnkeypt fyrir stórum glanshót-
elum.
Þótt ég fagni vaxandi ferðamennsku óttast ég að
við ætlum okkur um of. Hvernig væri að slökkva á
auglýsingaskiltunum um stund og láta land íss og
elda sjálft um að auglýsa sig? Við getum orðið eft-
irsóknarverð og öflug ef við aðeins kunnum fótum
okkar forráð, kunnum að flýta okkur hægt – festina
lente eins og Rómverjar orðuðu gamalt grískt heil-
ræði. Hófsemi er góð.
Festina lente
* Þótt ég fagni vaxandiferðamennsku óttast égað við ætlum okkur um of.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Margir féllu fyrir gervisíðu fast-
eignasala á Facebook, sem sagðist
ætla að gefa nýjustu gerð af iPhone.
Baggalútur hafði svar við því:
„Við erum að spá í að vera með
léttan og skemmtilegan leik og gefa
nokkrum heppnum vinum okkar
fasteignasala.“
Mikil umræða skapaðist um
slæman aðbúnað svína á Facebook.
Börkur Gunn-
arsson kvik-
myndagerð-
armaður ritaði:
„Utanríkismála-
og innkaupanefnd
heimilisins ákvað
að taka upp sína eigin sniðgöngu og
setja viðskiptabann á svínakjöt. Ég
gekkst undir það, kærastan mín er
einráð í þessari nefnd og mitt hlut-
verk aðeins að samþykkja. Þetta
var auðvelt enda kaupi ég aldrei
grísa- eða svínakjöt, kaupi eiginlega
allar aðrar kjötvörur en það. Þetta
var fullkomið viðskiptabann sem
hvorki skaðaði mig né þann sem
bannið beindist gegn. Svona eiga
viðskiptabönn að vera. Þangað til
ég fattaði að þetta næði líka til
beikons.“
Bragi Valdi-
mar Skúlason
skrifaði: „Iss. Þessi
svín ættu að prófa
millilandaflug.“
Eva Einars-
dóttir tjáði sig:
„Ég hef verið grænmetisæta örugg-
lega í 13 ár og hef frekar þurft að
verja mitt val en
hitt. Við fjöl-
skyldan erum öll
mjög hraust svo
ekki er fæðið að
fara illa með okk-
ur. Það er staðreynd í dag ef allir
myndu alla vega minnka sína kjöt-
neyslu, að þá væri það betra fyrir
vistsporið sem við mannfólk
dúndrum á umhverfið. Ég virði al-
gjörlega að fólk hafi val og borði
það sem þeim hentar. Þess vegna
hef ég lítið sem ekkert tjáð mig um
þetta hér. En árið er 2015 og nú er
það ykkar neytenda að láta í ykkur
heyra. Þetta er bara ógeðslegt.“
AF NETINU
Leikkonunni Amy Schumer gengur
allt í haginn þessa dagana en nú
hefur hún skrifað undir útgáfu-
samning við forlagið Simon &
Schuster. Ekki er búið að gefa upp
virði samningsins en þeir sem
þekkja til segja að hann sé upp á
átta milljónir bandaríkjadala, eða
um milljarð íslenskra króna, að
sögn Vanity Fair.
Bókin verður samansafn gaman-
sagna. Schumer hefur áður gert út-
gáfusamning, árið 2013, áður en
þáttur hennar sló í gegn og hún
kynntist Judd Apatow og varð
besta vinkona Jennifer Lawrence.
Fyrri samningurinn var uppá millj-
ón dali, eða um 128 milljónir króna,
að sögn New York Times, og var
við HarperCollins.
Eftir að þátturinn Inside Amy
Schumer fór í loftið í fyrra hætti
grínistinn við og greiddi fyrirfram-
greiðsluna til baka með vöxtum.
Hún ætti að vera ánægð með það
enda mun eftirsóttari nú og verður
spennandi að sjá hvaða viðtökur
bókin fær.
Sló met Tinu Fey
Hún fær meira borgað en Lena
Dunham fékk í fyrirframgreiðslu
fyrir bók sína sem var 3,5 milljónir
dala og meira en Tina Fey fékk fyr-
ir Bossypants (6 milljónir dala) árið
2008.
„Árum saman hafa allir umboðs-
menn í bænum notað fyrirfram-
greiðsluna sem Tina Fey fékk sem
viðmið fyrir stjörnurnar sínar en
núna hefur Amy hækkað viðmiðið,“
sagði Michael Morrison útgáfustjóri
HarperCollins.
Tímasetning skiptir öllu, í bóka-
útgáfu rétt eins og í gríni. Tilkynnt
var um samninginn skömmu eftir
að Schumer fékk Emmy fyrir grín-
þátt sinn. Einnig er ekki langt síðan
að fyrsta Hollywood-mynd hennar
var frumsýnd, gamanmyndin Train-
wreck, sem hún skrifaði og Apatow
leikstýrði. Myndin hefur halað inn
meira en átján milljarða króna á
heimsvísu.
Hér er handritshöfundurinn og leikkonan Amy Schumer með Emmy-verðlaun
sín fyrir gamanþáttinn Inside Amy Schumer en þau voru afhent í september.
AFP
Schumer landaði risa-
stórum útgáfusamningi
Vettvangur