Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 22
Skemmtilega innréttuð borðstofan er samliggjandi rúmgóðu eldhúsi og
þaðan er útgengt á svalir.
É
g hef lengi haft mikinn
áhuga á fallegri hönnun og
eftir að ég lauk íþróttaferli
mínum í handboltanum
gafst mér tími til að sinna hönn-
unaráhuganum. Ég hef alltaf þurft
að hafa nóg fyrir stafni og þar sem
það fór alltaf meiri og meiri tími
hjá mér í að liggja inni á helstu
hönnunarsíðunum var bara næsta
skref að opna netverslun,“ útskýrir
Dagný sem rekur netverslunina
www.reykjavikbutik.is ásamt tví-
burasystur sinni Drífu, en versl-
unin fagnar eins árs afmæli sínu
um þessar mundir.
Dagný segir heimilisstílinn stíl-
hreinan, skandinavískan, bjartan
og hlýlegan. „Ég vil hafa fáa vel
valda hluti í kringum mig, enga
vitleysu. Í bland við stílhreinan stíl
er ég orðin veik fyrir alls kyns
plöntum, mér finnst plönturnar
lífga svo upp á heimilið en það er
svo annað mál hversu lengi ég næ
að halda þeim lifandi.“
Aðspurð hverju sé mikilvægt að
huga að við innréttingu heimilisins
segir Dagný lýsingu skipta miklu
máli ásamt því að hafa frekar fáa
vel valda hluti á heimilinu en hún
sækir meðal annars innblástur á
pinterest, instagram og í tímarit.
„Ég er dugleg að breyta og bæta
við dóti inn á heimilið, en í leiðinni
næ ég að losa mig við það gamla
sem ég er orðin leið á. En númer
eitt tvö og þrjú er að láta þinn stíl
skína í gegn,“ bætir hún við.
Dagný segist aðallega versla til
heimilisins í Epal og Ilvu og svo er
hún mikið með vörur úr eigin net-
verslun, Reykjavikbutik, á heim-
ilinu. „Auk þess er einn og einn
gullmoli sem ég hef tekið með mér
frá útlöndum … manninum mínum
til mikillar skemmtunar.“
Aðspurð hvað sé á óskalistanum
inn á heimilið segir Dagný það
vera sófa og fallegt málverk.
„Við þurfum stóran sófa því hús-
ið okkar er eins og félagsmiðstöð,
okkur hjónunum til mikillar
ánægju.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
GLÆSILEGT HEIMILI Í GARÐABÆ
Hlýlegur heimilisstíll
DAGNÝ SKÚLADÓTTIR, FERÐARÁÐGJAFI HJÁ ICELANDAIR OG EIGANDI VEFVERSLUNAR-
INNAR REYKJAVIKBUTIK.IS, BÝR ÁSAMT EGINMANNI SÍNUM OG ÞREMUR BÖRNUM Á BJÖRTU
HEIMILI Í GARÐABÆ SEM EINKENNIST HELST AF SKANDINAVÍSKUM STÍL OG HLÝLEIKA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Ro-hægindastóllinn frá Fritz Hansen er í sérstöku eftirlæti hjá Dagnýju og á
hún þar notalegar stundir með yngstu dóttur sinni.
Falleg uppröðun smáhluta í forstofunni,
sem er einstaklega hlýleg.
Dagný ásamt þriggja mán-
aða dóttur sinni en þær
mæðgur hafa það notalegt
saman í fæðingarorlofi um
þessar mundir.
Notalegt horn í stofunni. Notknot-
púðinn kemur vel út í Eames-ruggustól.
Tekkstóllinn kemur vel út í notalegri
forstofunni.
Fallegur kertaarinn nýtur sín vel út í borðstofunni og
skapar afar notalega stemningu.
Heimili
og hönnun
Ljósmynd/Falk Kruger
*5. október næstkomandi er alþjóð-legur dagur arkitektúrs og af því tilefnibýður Arkitektafélag Íslands á opinnfund frá kl. 16-18 í Hannesarholti,Grundarstíg 10, Reykjavík.Á dagskrá verða nokkur erindi umvistvæna hugsun í manngerðu um-
hverfi.
Þá er frítt inn og allir velkomnir.
Opinn fundur á degi arkitektúrsins