Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Page 28
CREPES MEÐ RÆKJU- OG SVEPPA-
FYLLINGU
Fylltar pönnukökur voru líkt og hjá nágranna-
þjóðum okkar kallaðar Crepes á 8. áratugn-
um þegar þær urðu vinsælar.
Ýmsar fyllingar voru settar inn í ósætar
pönnukökur og yfirleitt bakaðar í ofni. Þessi
uppskrift er úr Vikunni árið 1975.
Deig
3 egg
1 tsk. salt
3 dl hveiti
6 dl undanrenna
½ dl bráðið smjörlíki
Búnar eru til pönnukökur á
venjulegan hátt og látnar kólna.
Fylling
3 msk. smjör
3 msk. hveiti
2 dl mjólk
2 dl rjómi
½ dl. rækjusoð
1-2 dl sveppasoð
1 msk. chilisósa
2-3 msk. majónes
200 g sveppir
ca. ½ kg af óhreinsuðum rækjum, þær
soðnar í 3 dl af vatni og soðið síað.
Bakið upp jafning og þynnið með vökv-
anum. Blandið saman sneiddum sveppunum
og að síðustu rækjunum, en látið krauma í ca
7 mínútur, áður en rækjurnar eru settar úti.
Setjið síðan jafninginn á pönnukökurnar og
rúllið þeim saman. Raðið þeim á eldfast fat
og setjið smjörbita á hverja pönnuköku. Bak-
ið við 250°C í 15-20 mínútur.
Þegar pönnukökur urðu matur
Í hverri einustu uppskriftabók, tímariti og dag-
blaði sem fjallaði um mat var nær alltaf gefin
uppskrift að kartöflusalalti. Matarbloggarar
þessa lands hafa verið iðnir síðustu misserin við
að gefa uppskriftir að slíku kjarnameðlæti. Hér
er uppskrift sem birtist í Vikunni árið 1976:
8 kartöflur
2 dl sýrður rjómi
½ dl majónes
2-3 tsk. sinnep
2 msk. kaperskorn
1 msk. fínt saxaður laukur
1-2 litla radísur, skornar í þunnar sneiðar
smávegis steinselja, fínt skorin
Sjóðið kartöflurnar og kælið vel. Skerið í sneiðar
þegar þær eru orðnar kaldar. Blandið sýrða
rjómanum, majónesinu og sinnepinu vel saman í
skál. Bætið kartöflunum, kaperskornunum, lauk,
radísum og steinselju varlega saman við. Einkar
gott með kótelettum að sögn vikublaðsins.
Endurkoma kartöflusalatanna
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2015
Matur og drykkir
Ananas varð vinsæll ávöxtur á 8. ára-
tugnum og í íslensku dagblaði var
fólki kennt hvernig átti að skera hann,
þræða upp á spjót með rækjum, baka
ananaskökur og búa til ananassalat.
Sérlega spennandi þótti fólki að
bæta ananasnum í alls kyns pott- og
kjötrétti. Hér er uppskrift að súr-
sætu svínakjöti sem birtist í Heim-
ilistímanum árið 1976:
600 g magurt svínakjöt
2 msk. hvítvín
6 msk. sojasósa,
2 msk. hveiti
2 msk. maísenamjöl
2 rauðar paprikur
125 g laukur
1 stk. 150 g ananas,
4 msk. olía
engifer eftir smekk
150 g rækjur
5 msk. sykur
3 msk. edik
1 msk. tómatsósa,
1¼ dl vatn
Skerið svínakjötið í teninga og
veltið þeim upp úr blöndu af 1 msk.
hvítvíni, 2 msk. sojasósu, 2 msk.
hveiti og 1 msk. maísenamjöli. Látið
kjötbitana liggja í þessari blöndu í ½
klst.
Á meðan skerið þið papriku,
lauk, gulrót og ananas í litla bita.
Harðsteikið kjötið í 2 msk. olíu,
takið það af pönnunni og haldið því
heitu. Látið grænmetið og
ananasinn malla í afganginum af
olíunni.
Stráið engiferinu yfir og setjið
baunirnar í. Hrærið sykurinn saman
við afganginn af sojasósunni, hvítvín-
inu, edikinu og tómatsósunni. Hellið
þessari blöndu yfir grænmetið í pott-
inum og látið allt malla í 15-20 mín-
útur. Hrærið afganginn af maísena-
mjölinu út í 1½ dl vatn og hellið út í
pottinn. Setjið kjötið í seinast.
Bragðbætið réttinn með salti og
breið fram með soðnum hrís-
grjónum.
Ananas í kjötréttum
Á 8. áratugnum gat ekkert heimili kallað sig
slíkt nema eiga tartalettur í búrskápnum til
að skella afgöngum hátíðanna ofan í. En
einnig voru útbúnar fyllingar sem voru sér-
staklega ætlaðar fyrir tartaletturnar. Og eins
og í öðrum 8. áratugar uppskriftum var
stundum örlítil sletta af sjerrí eða koníaki.
TARTALETTUR MEÐ OSTAKREMI
OG RÆKJUM
Fylling
12 tartalettur
150 g gráðostur
75 g smjör
cayennapipar á hnífsoddi
2 msk. koníak
Skreyting
1-2 rækjur ofan á hverju
Merjið ost og smjör hrærið vel. Kryddið
með koníaki og cayennapipar. Sprautið osta-
kreminu í tartaletturnar og skreytið með
1-2 rækjum eða öðru sem vill. Ostakremið
má búa til með fyrirvara en því ætti ekki að
sprauta fyrr en í mesta lagi klukkustund áð-
ur en tartaletturnar eru bornar fram.
Tartaletturnar teknar fram