Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2015, Qupperneq 34
Tíska
AFP
*Hönnuðurinn Ralph Lauren, 75 ára, tilkynnti í vik-unni að hann ætlaði að segja af sér sem forstjóritískuhússins sem hann stofnaði, Ralph Lauren.Stefan Larsson, sem áður var forstjóri Old Navy,mun taka að sér stöðu Laurens. Ralph Lauren
mun þó áfram sitja sem formaður og yfirmaður
hönnunardeildar tískuhússins.
Ralph Lauren kveður
forstjórasætið
H
vað er það sem heillar þig við tísku? Ég hef alltaf heillast af fötum og tísku,
hvernig manneskjan getur nýtt sér föt til að koma persónuleika sínum og
smekk á framfæri. Það heillar mig hvað hún er fjölbreytt og kemur fram í mis-
munandi myndum. Svo er líka bara mjög áhugavert fyrirbæri hvernig hún mót-
ast af sögunni og því sem er í gangi í heiminum hverju sinni. Fyrir mér væri heimurinn
mjög daufur án tísku.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa?
Ég myndi vera sjúklega ópraktísk og kaupa mér haute couture flík, helst
kjól, frá Givenchy. Sem ég myndi svo að sjálfsögðu aldrei tíma að fara út í,
heldur bara standa í heima og dást að honum í speglinum.
Áttu þér uppáhalds hönnuð? Ég myndi segja að það væri jafntefli á milli
Phoebe Philo hjá Céline og Iris Van Herpen. Céline gæti fyllt fataskápinn
minn af fötum sem ég myndi nota endalaust og Iris Van Herpen gerir
ótrúlegustu hluti með öðruvísi efnum í fatnað, eins og t.d. málma sem
mér finnst mjög áhugavert. Annars finnst mér líka mjög margir hérna
á Íslandi gera góða og fallega hluti eins og t.d. Sigga Maija, Guð-
mundur Jörundsson og Magnea.
Ætlar þú að fá þér eitthvað sérstakt fyrir veturinn? Ég ætlaði að
fjárfesta í stórri ullarkápu en þar sem ég er í yfirhafnakúrs í skól-
anum þá ákvað ég að gera bara draumakápuna fyrir mig sjálf, svo
þetta er í vinnslu.
Hvað er þitt uppáhalds tískutrend þannan veturinn? Ég er ekki mik-
ið fyrir að eltast við trend en veturinn er uppáhalds tíminn minn hvað
varðar föt því að mér finnst ekkert betra en að vera í mörgum
lögum af fallegum fötum.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur
að fatakaupum? Kannski ekki beint mottó en það sem ég hef
bak við eyrað varðandi fötin sem ég vel mér er frekar að
kaupa sjaldnar en þá velja vandaðan og vel gerðan fatnað
þegar ég splæsi. Áður fyrr var það kannski græðgi sem
stýrði kaupunum hjá mér og ég keypti mér meira
magn og þá oft ódýrari föt sem entust ekki lengi en í
dag eru það gæðin sem skipta mig mestu máli.
Hvert er þitt eftirlætis tísku-tímabil og hvers
vegna? Ég á erfitt með að gera upp á
milli 1970-80 og 1920-1930. 20-30
fyrir kjólana, perlurnar, fjaðr-
irnar og glamúrinn sem fylgdi
flapper-stílnum og 70-80 fyrir
formin, rúskinnið, munstrin,
blúndurnar og tónlistina. Ég er
Fleetwood Mac fíkill.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fata-
stíl? Það sem höfðar mest til mín í
fatnaði er að hann sé vandaður og vel
sniðinn, helst úr einhverjum gæðaefnum
líka. Yfirleitt er litapallettan í dekkri
kantinum hjá mér sjálfri en innra með mér
býr litaglöð manneskja sem brýst helst
fram í því sem ég
hanna, þar eru litirnir.
Hvað kaupir þú þér
alltaf þótt þú eigir
nóg af því? Það eru
rúllukragabolir eða peysur.
Ef það er rúllukragi á því
þá eru svona 85% líkur á
að ég kaupi það.
Hvaða þekkta andlit
finnst þér með flottan stíl?
Ég myndi segja franska söng-
og leikkonan Françoise Hardy,
bæði á sínum yngri árum í
kringum 1965 og í dag, alveg
ótrúlega flott kona í alla staði.
SAUMAR DRAUMAKÁPUNA SJÁLF
María Nielsen velur
vandaðan og vel
sniðinn fatnað.
Morgunblaðið/Golli
Heimurinn væri
daufur án tísku
MARÍA NIELSEN NEMANDI Á ÖÐRU ÁRI VIÐ FATAHÖNNUNARDEILD
LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS, HEFUR ALLA TÍÐ HEILLAST AF TÍSKU. MARÍA SEG-
IR VETURINN SÍNA UPPÁHALDS ÁRSTÍÐ HVAÐ VARÐAR FÖT ÞVÍ ÞÁ GEFST
HENNI FÆRI Á AÐ KLÆÐA SIG Í MÖRG LÖG AF FALLEGUM FATNAÐI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
María heillast mikið
af rúllukragabolum
og peysum.
María segist vera mikill Fleetwood Mac fíkill.
Franska söng-
konan Françoise
Hardy árið 1970.
María heldur
upp á hönnun
Phoebe Philo
hjá Celine.
Úr vetrarlínu
Iris Van Her-
pen fyrir
veturinn
2015/2016.