Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.12.1988, Page 19

Víkurfréttir - 01.12.1988, Page 19
Vvillard Fiske Ólason. Willard Fiske Ólason, Grindavík: „Byrjaði í rauða fiskinum" Hörpuútgáfan hefur gefið út nýja viðtalsbók Hjartar Gíslasonar blaðamanns við landsþekkta aflamenn. A síð- asta ári kom fyrsta bókin út í þessum bókaflokki og hlaut mjög góðar undirtektir. Fjöldi mynda prýðir bók- ina en hún gefur raunsanna mynd af lífi sjómanna og við- horfum þeirra og varpar ljósi á ýmis framfaraspor sem stigin hafa verið í íslenskum sjávar- útvegi. í bók þessari eigum við Suð- urnesjamenn einn fulltrúa, það er Willard Fiske Ólason, Grindavík. Nafn á kaflanum um hann ber heitið „Byrjaði í rauða fiskinum“. Aflakóngar og athafnamenn. Fimmtudagur 1. desember 1988 19 MDnvrwNtUR' Vöruflutningabíll umferðarnefndarmannsins og forvígismanns undirskriftasöfnunarinnar, lagt á þeim stað sem íbúarnir vilja hann burt frá. Ljósm.: epj. Smáratúns-Hátúnslokunin: Var þetta einkamál umferðarnefndar- mannsins? Nokkur og vaxandi óánægja er meðal íbúa í Há- túni með að búið sé að loka götustubbnum er tengdi Há- tún við Smáratún í Keflavík. Hafa aðilar, bæði þeir sem skrifuðu á sínum tíma undir áskorun þess efnis, og þeir sem ekki vildu skrifa undir, haft samband við blaðið. Ber sögu þeirra saman um að forvígismaður að undir- skriftum þessum fyrir lokun þessari hafi nú sannað það að þarna var hann eingöngu með eigin hagsmuni í huga en ekki hverfis síns í heild. Segja þess- ir aðilar að aðalrökin fyrir undirskriftunum hafi verið hætta af leikvelli sem er stað- settur neðan Nónvörðunnar og hefur inngang við stubb þennan. Eins er Hátúnið mjög þröng gata og því hefði verið þörf á að stöðva gegnumakst- ur um hana. Nú, eftir að götunni hefur verið lokað, notar forvígis- maðurinn umræddi, sem einnig er nefndarmaður í um- ferðarnefnd Keflavíkur, stubb þennan sem bílastæði fyrir vöruflutningabíl sem hann rekur. Með því að leggja bíln- um þarna alveg ofan í inn- ganginum að leikvellinum skapar hann þar mikla hættu, auk þess sem hann notar Há- túnið, þessa þröngu götu, sem bílgeymslu fyrir þennan stóra og mikla vöruflutningabíl. Með þessu telja viðkomandi aðilar að undirskriftasöfnunin hafi á sínum tíma verið fram- kvæmd á röngum forsendum. Vilja þeir því skora á viðkom- andi umferðarnefndarmann að hætta að leggja bíl sínum þarna eða vinna að því að gat- an verði opnuð á ný. Fyrsta flokks restaurant og bar Aftur næstu 4 daga vegna fjölda áskorana. Borðapantanir í síma 15222. Beikon saiat Kaikún aðhættiUSA Trönuberjakaka Þar sem vimr og kunningjar hittast. Hafnargötu 57 - Keflavik Simi 15222 HILLUSAMSTÆÐUR OG SÖFASETT DUUS húsgögn Hafnargötu 90 Keflavík Sími 12009 - þar sem úrvalið er mest og kjörin best NÝJAR OG SPENNANDI GERÐIR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.