Víkurfréttir - 21.12.1988, Blaðsíða 9
MÍKUR
juau
Miövikudagur 21. desember 1988 9
Tvö gjaldþrot:
Ögreiddar kröfur
upp á 29
Skiptameðferð tveggja búa,
sem Skiptaráðandinn í Kefla-
vík og Gullbringusýslu hafði
til meðferðar vegna gjald-
þrotaskipta, er nýlokið hjá
embættinu. í hvorugu búinu
fengust greiðslur upp í lýstar
kröfur.
í öðru tilfellinu nam sú fjár-
milljónir
hæð, sem ekki fékkst greidd,
26,9 milljónum króna auk
vaxta og kostnaðar, en í hinu
var það 2,1 milljón auk vaxta
og kostnaðar. Fyrra búið var
Jón Eðvaldsson h.f., Sand-
gerði, en Kristín Hauksdóttir,
Keflavík, í hinu tilfellinu.
Rlkisendurskoðun
fær að skoða sjúkra-
skrár í Grindavík
Kveðinn hefur verið upp úr-
skurður í bæjarþingi Grinda-
víkur þess efnis að heilsu-
gæslulækninum í Grindavík sé
skylt að veita Ríkisendurskoð-
un beinan aðgang að sjúkra-
skýrslum þeirra sjúklinga, sem
leituðu til Heilsugæslunnar í
Grindavík mánuðina mars,
apríl og maí 1988.
Urskurður þessi kemur í
beinu framhaldi af synjun
heilsugæslulæknisins til Ríkis-
endurskoðunar um skoðun
gagna þessara. Rökin fyrir
þeirri synjun voru tíunduð í
síðasta tölublaði Víkurfrétta.
„Blóm handa mömmu
nn ri5lhh5láá - segir Sigurbjörg
Uy |JC1BJ1JCI Magnúsdóttir í Kósý
Kósý í Keflavík. Sigurbjörg er
alltaf að bæta við vöruúrvalið
og stækka verslunina, svo
okkur þótti ástæða að kynnast
því sem þarna er á ferðinni.
„Við höfum verið með svo-
lítið af leikföngum í nokkurn
tíma, sem hefur verið nauðsyn-
legt. Pólk kemur mikið hingað
um helgar og er þá að leita að
gjöfum til þess að gefa í barna-
afmæli, þannig að leikfanga-
verslunin sem ég var að bæta
við reksturinn mælist vel
fyrir“.
Nú er vöruúrvalið fjöl-
breytt. Er mikið um það að
fólk sé að versla til jólagjafa,
eða er það að versla hluti til
þess að skreyta hjá sér?
„Bæði og. Krakkar koma
oft með smá pening til þess að
kaupa eitthvað fallegt handa
foreldrum sínum, eins og til
dæmis eitt blóm handa
mömmu og pabba,“ sagði Sig-
urbjörg Magnúsdóttir að end-
ingu.
„Þaðermikilblómasalafyr- i hafa í vasa yllr jólahátíðina,“
ir jólin og þó nokkuð um það sagði Sigurbjörg Magnúsdótt-
að fólk kaupi blóm til þess að I ir, eigandi verslunarinnar
Starfsstúlkurnar í versluninni Kósý, Hanna Otterstedt, Sigurbjörg
Magnúsdóttir og Esther Ævarr. A myndina vantar Grétu Jóns-
dóttur. Ljósm : libb.
Jólamatinn færðu í
HAGKAUP
HAGKAUF
Nj arðvík
Samkvæmt verðkönnun fást
ódýrustu leikföngin
í Hagkaup.
Minnum á okkar lága
verð á niðursuðuvörum.
Úrval af fatnaði á alla
fjölskylduna.
Svínahamborgarhryggur
m/beini - 858 kr. kg.
Kalkún 966 kr. kg.
Sambands hangikjöt - frí
úrbeining - 752 kr. kg.
Hangiframpartur
m/beini - 467 kr. kg.